Bændablaðið - 18.05.1999, Blaðsíða 2

Bændablaðið - 18.05.1999, Blaðsíða 2
2 BÆNDABLAÐIÐ Þríðjudagur 18. maí 1999 Korn- Olpaunip RALA i Nú er verið að sá korni um land ailt. RALA hefur þegar sáð í fyrstu korntilraunirnar og var það á Þorvaldseyri undir Eyja- fjöllum 28. apríl. Áætlað er að sá í kornræktartilraunir tvær fyrstu vikurnar í maí í Borgar- firði, Skagafirði og Eyjafirði, auk þess sem sáð verður á til- raunastöð RALA að Korpu. Aðalþættimir í komræktar- rannsóknum RALA árið 1999 eru: * kynbætur byggs og prófun á kynbótaefniviði * erlend afbrigði * áburður á kom * sáðdýpt og niðurfelling áburðar * sáning grasfræs með komi Tilraunareitir í komrækt þetta árið munu verða á bilinu 800-1000 talsins. Ábyrgðarmenn em Jóna- tan Hermannsson (jonatan@ rala.is) og Láras Pétursson (lams- @rala.is). ítarlegar upplýsingar um kom- ræktartilraunir RÁLA er að fmna á heimasíðu stofnunarinnar, http:// www.rala.is/. Bændablaðið Kemur næst út þriðjudaginn 1. júní. — Stjóm Búnaðarsambands Austurlands ræðir um mjólkurkvóta Óttast að mjólkurkvúti á Austurlandi Á stjórnarfundi Búnaðar- samband Austurlands fyrir skömmu komu fram áhyggjur þess eðlis að Austfirðingar gætu misst mjólkurkvóta þar sem bændur treystu sér ekki til að kaupa kvóta af þeim bændum sem ákveddu að hætta búskap. Sigurbjöm Snæþórsson, for- maður sambandsins, segir að aust- firskir bændur megi ekki við því að missa kvóta því það sé það lítið sem haldi afurðastöðinni gang- andi. „Við óttumst að við missum fullvirðisrétt úr fjórðungnum," segir hann. Sigurbjöm segir að bændur með lítinn rekstur séu að hætta á Austfjörðum eins og annars stað- ar. „Spumingin er hvort aðrir séu tilbúnir til að taka við þeirra full- virðisrétti. Ég held hins vegar að bændur séu fáanlegir til að stækka við sig, a.m.k. vonar maður það.“ Sigurbjörn bendir einnig á að spenna sé á kvótamarkaðnum og verðið sé að lækka vegna mikillar framleiðslugetu. Að sögn Sigurbjöms hefur heildarmjólkurkvótinn á Austur- landi þó ekki minnkað neitt að ráði. Hins vegar verði menn að halda vöku sinni og það hafi verið tilgangurinn með umræðunum á stjómarfundinum. W Bændasamtök íslands og Rann- sóknastofnun landbúnaðarins hafa á liðnum mánuðum unnið að aukinni samþættingu rannsókna- og leiðbeininga- starfsins. Nú hefur verið gengið frá samningi um að Bútækni- deild sinni tilteknum verkefnum á sviði leiðbeininga. í þessum samningi fellst að BÍ greiðir fyrir þessi verkefni á kostnaðar- verði og ákveður í samráði við Bútæknideild hvaða verkefni skuli unnin. Viðfangsefnin verða fyrst og fremst fólgin í ráðgjöf varðandi bútækni, þ.e. vélvæðingu og vinnuhagræðingu á búum bænda, ekki síst við gripahirðingu. Sérstök áhersla verður lögð á að meta hag- kvæmni fjárfestinga og að útbúa leiðbeinandi efni fyrir ráðunauta og bændur. Á heimasíðu beggja stofnana er nú aðgengilegt töluvert efni um bútæknileg málefni og er ætlunin að samræma það eftir föngum. Til að samtvinna aðgerðir verða reglulegir samráðsfundir í samvinnu við bútækniráðunaut Bændasamtakanna og Verkefnaráð í bútækni. Að sögn Grétars Einars- sohar deildarstjóra Bútæknideildar er mikill fengur að þessum samningi, þar sem á undanfömum ámm hefur stöðugt aukist eftir- : spum eftir þessari þjónustu og samningurinn auðveldar til muna að koma til móts við þær þarfir bæði hvað snertir beinar leið- beiningar og námskeiðahald. Aðalfundur LK verður haldinn í Skagafirði Ákveðið hefur verið að halda aðalfund Landsambands kúabænda í félagsheimilinu Ásgarði, Lýtingsstaðahreppi, Skagafirði, dagana 25. og 26. ágúst. Undirbúningur vegna fundarins hófst nokkru fyrr en venjulega og stefnt er að því að senda kjörnum fulltrúum ársskýrslu stjómar í byrjun júní. Þannig hafa fulltrúar meiri tíma til að kynna sér störf stjórnar á líðandi starfsári og stjórnir kúabændafélaganna meiri möguleika á að koma sjónar- miðum sínum á framfæri. Formenn kúabændafélaganna hafa fengið form fyrir skýrslu til LK fyrir liðið starfsár til útfyllingar og einnig kjörbréf vegna aðalfundarins. Skrifstofa LK þarf að fá nöfn og heimilisföng þeirra fulltrúa sem kjömir hafa verið til þess að hægt sé að senda þeim gögn í byrjun júní. Fyrir nokkru var grunnskólanum í Djúpárhreppi slitið og þá var þessi mynd tekin. í skólanum voru 33 nemendur í 1. - 7. bekk og kennt var í þremur bekkjardeildum. Auk þess er ieikskólinn Gljábær í sama húsi en þar voru 10 börn. Við leik- og grunnskólann starfa fjórir kennarar auk skólaliða og annarra starfsmanna. Þrír nemendur kvöddu skólann sinn að þessu sinni en þessir krakkar munu sækja nám á Hellu næsta vetur. Fjögur börn munu iíklega yfirgefa leikskólann og hefja nám við grunnskólann í haust. Skólastjóri er Vilmundur Hansen. Nýlokið gagngerum endur- bótum á skólahúsi Hólaskóla Þann 17. apríl lauk formlega gagngerum endurbótum á skóla- húsi Hólaskóla. Eftir áralangt undanhald var hafist handa fyrir um 20 ámm til að hefja Hóla aftur til vegs og virðingar sem skóla- og menningarsetur. Skólahald lá niðri, húsakostur var að niðurlot- um kominn og uppi vom hug- myndir að finna húsinu annað hlut- verk. Fyrir lágu tillögur um bygg- ingu nýrra skólahúsa, heimavista og kennsluhúsnæðis. Það var svo árið 1981 þegar núverandi skóla- stjóri Jón Bjamason, sem þá var ráðinn að skólanum, og skólanefnd ásamt Bimi Kristleifssyni, arkitekt endurbótanna, tóku þá ákvörðun að skólahúsið skyldi gert upp í áföngum. Það skyldi áfram vera þungamiðja skólastarfsins og þörf- in fyrir aukið rými og aðstöðu yrði leyst með tengi og viðbyggingum. Samkvæmt þessari áætlun hefur verið unnið allar götur síðan. Árið 1995 samþykktu þeir Halldór Blöndal, þáverandi landbúnaðar- ráðherra, og Friðrik Sophusson, þáverandi fjármálaráðherra, að verkið færi í gang með sérstakri yfirlýsingu og vilyrði var gefið fyrir því að framkvæmdin yrði fjármögnuð til enda. Af hálfu land- búnaðar- og fjármálaráðuneytis var skipuð sérstök byggingar- stjóm. Hana skipuðu Ingimar Jó- hannsson og Gylfi Ástbjömsson af hálfu ráðuneytanna, ásamt Jóni Bjamasyni, skólastjóra og for- manni nefndarinnar. Arkitekt end- urbótanna var ráðinn Bjöm Krist- leifsson. Endurbætumar á skólahúsinu sjálfu hófust árið 1995. Auk þess hafa verið byggð við skólann mat- stofa, anddyri og tengibygging. Hafist var handa á eldri hluta hússins sem er frá 1910, byggt af Rögnvaldi Ólafssyni, arkitekt. Húsið var steinsteypt, en með timburgólfum, og hafði því verið breytt í tímans rás. Yngri hluti hússins er frá 1927, hannað af Guðjóni Samúelssyni, arkitekt. Þar sem byggingarhlutinn frá 1927 er allur steinsteyptur hef- ur hann haldist að mestu óbreyttur. Húsið er sambyggt húsinu frá 1910, jafn stórt og mynda þau eina heild og verða hlutamir ekki greindir í sundur. Formið samsvar- ar sér og úr verður látlaus en glæsi- leg bygging. Eftir að byggingunni lauk lét Guðjón Samúelsson hafa það eftir sér að þama væri besta skólahús landsins risið. í 20 ár bjuggu allir nemendur, kennarar og starfsfólk búsins í skólahúsinu og þurfti því oft að að- laga það breyttum aðstæðum. Þannig vom stigar rifnir og endur- byggðir, veggir færðir til og frá og hreinlætisaðstöðu komið fyrir, en í upphafi voru engin vatnssalemi í húsinu. Eldri hlutinn var kynntur með kolaofnum í upphafi og var óeinangraður, hann var því kaldur á vetmm. Ur þessu var seinna bætt með einangmn að hluta og vatns- hitun. Raflagnir vom engar í upp- hafi en var síðan bætt við eftir hendinni. Skólahúsið hefur nú verið fært til nýrri tíma, staða þess verið end- urskoðuð og það fengið hlutverk við hæfi, sem miðstöð kennslu, rannsókna og vísinda við Hóla- skóla. Hið glæsilega skólahús hefur aftur öðlast sína fyrri reisn.

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.