Bændablaðið - 18.05.1999, Blaðsíða 16

Bændablaðið - 18.05.1999, Blaðsíða 16
16 BÆNDABLAÐIÐ Þriðjudagur 18. maí 1999 Vörur fyrir búfénað Hófaklippur Kálfa- og lambapelar Krítar og vaxlitir m m & Merki fyrir búfénaö Kálfafötur VÉLAR& ÞJÓNUSTAhf Járnhálsi 2, Reykjavík, sími 587-6500, fax 567 4274 Útibú á Akureyri, sími 461 4040, Óseyri 1a Merkilitir á úöabrúsum Utboð lækka rekstrarkostnaðinn Leiðari Bændablaðsins 4. maí sl. fjallaði um útboð í landbún- aði. Athygli var vakin á að útboð geta lækkað kostnað landbúnaðarins og benti á útboð Bændasamtakanna á tryggingum og Búnaðarsam- bands Suðurlands á búvélum. - Hér eru orð í tíma töluð. Bændur hafa sannarlega þörf á að bæta afkomu sína. Þá eiga kaupfélögin víða undir högg að sækja og breytingar, sem eru að verða á rekstri þeirra benda til að framvegis verði erfíðara fyrir bændur að nálgast aðföng til búskaparins. Af þessu tilefni vill undirrit- aður segja frá reynslunni af starfsemi Vildarkjara ehf. Til- gangur fyrirtækisins er að lækka aðfangakostnað þeirra sem eru áskrifendur að Vildarkjörum. Undanfarin tvö ár hafa Vildar- kjör efnt til nær 30 útboða og nú eru í gildi samningar við yfir 20 fyrirtæki á margvíslegum svið- um vöru og þjónustu. Meðal vöru- og þjónustuflokka eru málning, áburður, girðingarefni, byggingarefni, símatæki, tölvur, fjarnám, hljóðbækur, hjólbarðar, bílaleigubílar, öryggis- og eld- varnabúnaður, vinnuföt, vöru- flutningar, afþreyingarefni, o.fl. Samningarnir veita áskrifendum afslætti en áskrift er ókeypis og kvaðalaus. Áskrifendur eru nú komnir nokkuð á annað þúsundið, flestir bændur auk annarra smáatvinnu- rekenda. Afslættir eru á bilinu 15-32%, mis miklir eftir vöru- tegundum. Tekjur Vildarkjara eru þóknanir af viðskiptum áskrifenda. Vildarkjör leggja áherslu á að nýta nútíma tölvu- og samskiptatækni, til að halda rekstrarkostnaði í lágmarki og til að koma upplýsingum á fram- færi. Áskrifendur fá fréttabréf sér að kostnaðarlausu, vefsíðan á Internetinu er upplýsingaveita og tölvupóstur er mikið notaður í samskiptum við áskrifendur. Kerfi Vildarkjara er í raun- inni mjög einfalt og vel þekkt: Heilbrigðisþjónusta í dreifbýli Rætt um kennslu i dreífbýlís- lækningum ii Akureyri Nokkuð hefur verið rætt um læknaskort í dreifbýli og hafa margir áhyggjur af því að erfitt muni reynast að fá lækna til að starfa úti á landi. Stjómvöld eru hins vegar að vinna nokkuð í þessum málum samkvæmt svari heilbrigðisráðherra við fyrirspum Katrínar Fjeldsted um heilbrigðis- þjónustu í dreifbýli. Þar kemur fram að heilsugæslustöðvar á Vestfjörðum, Austfjörðum og Suðurlandi hafi veríð sameinaðar í stærri stofnanir og svokallaðar Hl- stöðvar, þar sem starfar a.m.k. einn læknir, hjúkmnarfræðingur og annað starfsfólk, muni leggjast af. Þessi breyting gefi aukna möguleika á vaktasamstarfi sem minnkar álagið á hvem lækni. Ráðuneytið hefur leitað leiða til að tryggja mönnun í dreifbýli, m.a. í samstarfi við Félag íslenskra heimilislækna, landlækni og læknadeild Háskóla íslands. Kom- ið hefur verið á sémámsstöðum í heilsugæslulækningum og sam- starf verið haft milli Læknavaktar- innar í Reykjavík og einmennings- ÖVERUM plógur ♦ Brotplógur ♦ Akurplógur ♦ Vendiplógur ♦ Vökvaútsláttur eða brotboltaöryggi ♦ Hágæða plógur á góðu verði Einnig mikið úrval annarra jarðvinnslutækja VÉLAR& PJ6NUSTAhf Járnhálsi 2, Reykjavík, sími 587-6500, fax 567 4274 Útibú á Akureyri, Óseyri 1 a, sími 461 4040, Margir smáir rekstraraðilar beina viðskiptum sínum með atbeina Vildarkjara til eins fyrirtækis. Með því eykst velta þess og gef- ur tilefni til að bjóða hagstæðara verð en ef einn og einn ætti við- skipti. Reynslan af starfi Vildar- kjara hefur sýnt að lækka má að- fangakostnað til búrekstrar og heimila umtalsvert. Eftir því sem áskrifendum fjölgar er auðveld- ara að gera hagstæða samninga. Smáatvinnurekendur, s.s. trillu- kallar, vinnuvélaeigendurog iðn- aðarmenn eiga fullt erindi í slík- an innkaupahóp. Sama á við um sveitarfélög, búnaðarsamböndin og svo má áfram telja. Vildarkjör ehf. er einkahluta- félag í eigu undirritaðs og til- gangur þess í samvinnu við smá- atvinnurekendur að fá aðföng sín á hagstæðara verði með því að nýta mátt hinna mörgu og styrkja þar með lífið á landsbyggðinni. Jón Ragnar Björnsson. héraða til að létta á næturþjónust vaktlækna. Ráðherra segir vand- ann hins vegar margþættan og flókinn. Þá kom fram að heilbrigðis- ráðuneytið hafi ásamt landlækni nýlega átt viðræður við forsvars- menn Háskólans á Akureyri og Fjórðungssjúkrahússins á Akur- eyri um að koma á fót kennslu í dreifbýlislækningum. Áhugi á þessu sé mikill hjá báðum aðilum. Islenski hesturinn standi heiðurs- vörð íriö komu erlendra gesta Á nýafstöðnu þingi fluttu Guðni Ágústsson, Jónas Hallgrímsson og Hjálmar Árnason þingsálykt- unartillögu þess efnis að land- búnaðarráðherra yrði falið að undirbúa í samvinnu við önnur stjórnvöld og samtök að íslensk- ir hestar og hestamenn gegni veigamiklu hlutverki við opin- berar móttökur erlendra þjóð- höfðingja og við önnur hátíðleg tækifæri. I greinargerð með tillögunni segir að íslenski hesturinn hafi vakið verðakuldaða athygli um víða veröld og sé einn dýrmætasti þjóðararfur sem Islendingar eiga. Einnig er tilgreint að talið sé að ár- lega komi þúsundir ferðamanna hingað eingöngu vegna þess að þeir hafi bundist íslenskum hest- um og hestamönnum tryggðar- böndum. Flutningsmenn telja það þess virði að gera íslenska hestinn meira áberandi við móttöku er- lendra gesta, ekki síst þjóðhöfð- ingja. Þá standi knapar og hestar heiðursvörð og hesturinn sé sýnd- ur í allri sinni litadýrð. Flutningsmenn leggja einnig til að um helga á sumrin fari skrautreið hesta niður Almannagjá á Þingvöllum til að leggja áherslu á helgi Þingvalla og hversu samof- inn hesturinn er sögu þjóðarinnar. Slfk reið muni auglýsa land og þjóð. Allt þetta mun að mati flutn- ingsmanna auglýsa íslenska hest- inn sem fjölskylduhest, skapa þjóðinni sérstöðu og efla ferða- þjónustu sem atvinnugrein. Bæjarnaln misritaðist Sigríður Sverrisdóttir, nem- andi á Hvanneyri og handhafi Morgunblaðsskeifunnar, var í síð- asta blaði sögð frá Skarði í Hörg- árdal. Þetta er alrangt. Sigríður kemur frá Skriðu og í Hörgárdal kannast ekki nokkur sála við bæj- amafnið Skarð og segjast menn þurfa að fara alllangt út fyrir dal- inn sinn góða til að finna slíkt nafn. Við biðjum Sigríði velvirð- ingar á misrituninni og óskum henni alls hins besta í framtíðinni.

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.