Bændablaðið - 18.05.1999, Blaðsíða 24

Bændablaðið - 18.05.1999, Blaðsíða 24
24 ;f BÆNDABLAÐIÐ '-n'»a Þriðjudagur 18. maí aí 199$ Pólland hækkar innflutningstolla ð niðurgreiddum bnvörnm írá E8B í nýjasta tölublaði AGRA FOCUS (apríl 1999) er sagt frá því að pólska ríkisstjórnin hafi ákveðið að hækka tolla á ýmsum búvörum sem fluttar eru inn frá ESB, Ungverjalandi og Tékkóslóva- kíu. Þessi ákvörðun var tekin í kjölfar mótmælaöldu frá pólskum bændum gegn innflutningi á ódýrum búvörum og í tilfelli ESB, ríkulega niðurgreiddum, með tilheyrandi undirboðum á pólskum markaði. Sem dæmi hækkar tollur á jógúrt sem inniheldur ávaxtabita úr 9% í 35% gagnvart ESB, til að koma einhverskonar jafnvægi á markaðinn á ný, að sögn pólskra embættismanna, Þei kvarta jafnframt yfir að innfluttar vörur séu seldar á 30% lægra verði en innlendar afurðir og markaðshlutdeild sé nú orðin 25%. Tollar á svína og alifuglakjöti sem flutt er inn frá Ungverjalandi og Tékkóslóvakíu hafa einnig verið hækkaðir. Þessar aðgerðir samrýmast WTO samkomulaginu þar sem þær hafa ekki áhrif á skuldbindingar Póllands um lágmarksaðgang, að sögn pólskra embættismanna. ESB hefur hins vegar mótmælt þessum ákvörðunum og segja þær skref i öfuga átt miðað við aðgerðir sem í gangi hafa verið til gagnkvæmra tollalækkana. Fleiri sjónarmið eru tiltekin í þessari deilu en þessar aðgerðir endurspegla þó það grundvallar viðhorf að samkeppni verði að eiga sér stað á jafnréttisgrunni. Hlýtur þá að gilda einu hvort sem um er að ræða niðurgreiðslur framleiðslunnar eða kröfur til framleiðsluhátta sem vissulega eru misjafnir milli landa. Þróun smásðluverQs n búvörum Síðustu 12 mánuði hafa búvörur án grænmetis hækkað um 2,3% og má einkum rekja hana til verðbreytinga um síðustu áramót. Síðustu þrjá mánuði hafa þær hins vegar aðeins hækkað um 0,15% meðan vísitala neysluverðs hækkaði um 0,9% eins og áður segir. Meðfylgjandi myndir sýna þróunina sl. 2 ár, eftir helstu flokkum í undirvísitölum Hagstofu íslands. Þess má geta að lokum að vægi búvara að grænmeti meðtöldu hefur smám saman farið lækkandi s.l. misseri og er nú 7,4% en var t.d. í maí 1997 7,7%. Skýrist það eflaust fyrst og fremst af auknum kaupmætti launa. Heimild: Hagstofa íslands. SO So IS 1 £ s r O) Svínakjöt, nýtt eða </) Mjólk I °- frosið S § .2 S 2 S > Mars 97 - Apríl 99 > Mars 97 - Apríl 99 Hækkuná neysluverðs Nú í maí hafði vísitala neyslu- verðs hækkað um 2,0% sl. 12 mánuði samkvæmt fréttatilkynn- ingu frá Hagstofu Islands. Sl. þrjá mánuði var hækkunin hins vegar 1,5%, sem svarar til 6,0% verð- bólgu á ári. Margt fróðlegt kemur fram við nánari skoðun á þessum upplýsingum. Hækkanir á hús- næðiskostnaði vega þyngst í hækkun vísitölunnar síðustu 12 mánuði, 0,82%. Liðirnir „opinber þjónusta" (0,28%) og „önnur þjónusta" (0,72%) lögðu samtals til 1,0% hækkunarinnar. “Aðrar innlendar mat- og drykkjarvörur” hækkuðu um 0,18% og “aðrar innlendar vörur” um 0,15% eða alls 0,36%. Búvörur án græn- metis hækka vísitöluna um 0,14% og grænmeti lækkar hana um 0,02%. Liðurinn “innfluttar vörur aðrar” lækkar svo vísitöluna mest einstakra liða, um 0,23%. Hag- stæð þróun á verði innfluttra vara hefur verið mikilvægt framlag til þess að halda verðlagi stöðugu hér á landi á undanfömum miss- erum. Grunnur vísitölunnar hefur ný- lega verið endurskoðaður. Meðal annars var bflaliðurinn hækkaður vegna verulegrar aukningar á inn- flutningi bfla árið 1998. Þversðgn í stefnu bandarískra sprnvalda? Bandaríkjamenn hafa lengi leitt þann hóp þjóða sem krefjast aukins frelsis í viðskiptum með búvörur og samdrátt í opinber- um stuðningi við landbúnað. A síðasta ári urðu bandarískir bændur hins vegar fyrir veru- legum þrengingum af völdum verðlækkana á afurðum á heimsmarkaði. í ræðu sem bandaríski land- búnaðarráðherrann, Dan Glick- man, hélt í febrúar sl. kemur fram að heildar fjárhagsaðstoð rfldsins við bandaríska bændur á árinu 1999 mun nema 18 billjónum dollara og hefur ekki verið meiri síðan 1987. Fimmtíu milljónir dollara fara t.d. í beinar greiðslur til svínabænda til að mæta verð- lækkunum á síðasta ári. Að auki verður varið 129 milljónum doll- ara til að kaupa svínakjöt í skóla- máltíðir og aðra opinbera matvæla aðstoð. Öðrum 80 milljónum doll- ara verður varið í að kaupa grísahjarðir sýktar af pseudorabi- es. Einnig eru 10 núlljón tonn af mat send til fátækra ríkja í mat- vælaaðstoð. Bandaríski ráðherrann sagði nauðsynlegt að skilja að efnahags- kreppan sem steðjaði að landbún- aðinum þar í landi bitnaði á fjöl- skyldum sem árum saman hefðu stundað búskap sér til lífsvið- urværis en sæu nú jarðir sínar hverfa á uppboðum lánadrottna. Engu að síður hafa bandrísk stjómvöld engin áform um að hverfa frá þeirri stefnu sinni að af- nema viðskiptahindranir og niður- greiðslur, hvar sem þær fyrir- finnast. Markaösmál Erna Bjarnadóttir MMMMUMllMHa

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.