Bændablaðið - 18.05.1999, Blaðsíða 20

Bændablaðið - 18.05.1999, Blaðsíða 20
20 BÆNDABLAÐIÐ Þriðjudagur 18. maí 1999 Vantar þig aðstoð við gerð áburðaráœtlunar? Vantar þig aðstoð við gerð áburðarpöntunar? Þarftu að halda utan um túnabók Jyrir býlið? Taktu þá íþjónustu þína jarðrœktarforritið NPK frá Bœndasamtökum Islands. Forritið heldur utan um túnabók búsins, hjálpar til við gerð áburðaráœtlunar og tekur saman áburðarpöntun. Jarðrœktarforritið NPK er Windows forrit fyrir tölvur með Windows95 eða 98. Forritið kostar aðeins kr. 8.800 m.vsk. Bœndasamtök íslands - tölvudeild, Sími: 5630300 t-póstur: helpdesk@bi.bondi.is fax: 5625177 Á sýningunni í París. F.v. Jón Valgarðsson, Miðfelli, Guðmundur Steinar Björgmundsson, Kirkjubóli, Guðmundur Hallgrímsson, ráðsmaður á Hvanneyri og Haukur Pálsson á Röðll. Á bak við þá má sjá gífurlega stóra, franska holdanautatudda. HðlfO út f heim með Inpri Helgasyni hf Fyrir skömmu fór hópur á vegum Ingvars Helgasonar hf. í ferð til Frakklands. Ferðin var farin undir slagorðinu „Hátíð út í heim“. í hópnum voru tæplega 80 manns og var farið í nokkrar verksmiðjur sem framleiða vélar sem Ingvar Helgason hf. selur bændum hér á landi. I pistli um daginn var greint frá heimsókn til í verksmiðju KUHN í Saverne en þaðan lá leið okkar til Parísar á Sima landbúnaðarsýninguna sem er ein stærsta landbúnaðarsýning í Evrópu og hefur verið haldin annað hvert ár síðustu 70 árin. Sýnt á 200 þúsund fermetrum Umhverfi sýningarinnar er allt hið glæsileg- asta. Sýningarsvæðið er 200.000 fermetrar í sjö samtengdum sýningarhöllum Yfir 1200 fyrir- tæki taka þátt í sýningunni og sýna þeir rúm- lega 2000 vöruheiti, allt frá smæstu handverk- færum upp í stærstu þreskivélar. Þar var einnig búfjársýning. Sýningin er svo yfirgripsmikil að hún verður vart skoðuð að gagni á einum degi. MF í Frakklandi Frá París var haldið til Beauvais en þar eru verksmiðjur Massey Ferguson í Frakklandi. Þar hafa verið framleiddar dráttarvélar í 40 ár undir Ferguson nafninu. í dag eru framleiddar þar vélar frá 75 hö upp í 260 hö. Þessi verksmiðja er að mestu samsetningarverksmiða þ.e. hlutim- ir koma tilbúnir inn á færibandið, eins og hás- ingar, mótorar, gírkassar o.s.frv. Hverri ein- stakri vél fylgir pöntunarseðill þar sem segir hvernig vélin skuli vera útbúin. Á Sima sýningunni var kynntur arftaki MF 6100 línunnar, þ.e. MF 6200 sem er hlaðin nýj- ungum og vakti hún mikla athygli sýningar- gesta ásamt nýjungum í 4200 línunni. Á meðan verksmiðja MF var skoðuð, var þeim konum sem voru búnar að fá nóg af verk- smiðjuröltinu boðið að skoða Beauvais dóm- kirkjuna í fylgd með fyrrum starfsmanni verk- smiðjunnar, sem greinilega naut sín vel í kvennahópnum. Hann sýndi kirkjuna og sagði frá Stjömuklukkunni í kirkjunni sem smíðuð var á ámnum milli 1865 og 1868. Hún er gerð úr 90.000 hlutum og er 12.1 metri á hæð, 6.09 m. á breidd og 2.7 m. "djúp". Ferðinni lauk með tveggja nátta gistingu í Trier í Þýskalandi. Þar gafst fólki kostur á að skreppa í búðir og eyða dýrmætum gjaldeyri. Síðasta kvöldið var svo haldin dýrðleg veisla þar sem ferðafélagamir tróðu upp með ýmis skemmtiatriði. Hópurinn fékk frábærar móttök- ur hjá þeim fyrirtækjum sem heimsótt vom, en það vom Claas, Kuhn og Massey-Ferguson. Það var samdóma álit þátttakenda að ferðin hefði tekist í alla staði hið besta og eiga starfs- menn Ingvars Helgasonar hf. hrós skilið fyrir góða skipulagningu. Haukur Pálsson á Röðli rifjar upp gamla tíma. Ljósmyndir: Grétar Einarsson. Ferðinni lauk í Trier. íslendingarnir kunnu vel við meginlandslofslaglð og snjóleyslð.______________________________ Dýralæknir á Vest- fjörðum með aðsetur á ísafirði Verður í Strandasýslu 19. og 20. maí, 26. og 27. maí. Á Barðaströnd 1. og 2. júní. Vinsamlegast pantið í tíma. Símar: 456-3350 og 854-2568. Sigríður Inga Sigurjónsdóttir dýralæknir Hitamet árifi 1998 Meðalhiti á jörðinni árið 1998 var hinn hæsti frá því al- mennar hitamælingar hófust árið 1860. Hitinn reyndist um 14,5°C, sem er 0,58°C hærri hiti en meðaltal áranna 1961- 1990. WMO, sem er veðurfræði- stofnun Sameinuðu þjóðanna, hefur það verkefni með höndum að fylgjast með veður- fari um alla jörðina. 1 skýrslu sem hún hefur sent frá sér kemur í ljós að sjö af tíu af heit- ustu árum frá 1860 hafa orðið frá 1990 og hin þrjú frá 1983. WMO áætlar að hiti á jörð- inni við lok aldarinnar verði um 0,7°C hærri en fyrir 100 árum. Þá spáir stofnunin því að á næstu öld muni meðalhit- inn hækka um tvær gráður. Það mun leiða til þess að sjáv- arstaða muni hækka um 50 cm á þeim tíma. WMO, (World Metero- logical Organization) hvetur til þess að samfélag þjóðanna geri allt sem í þess valdi stend- ur til að koma í veg fyrir þessa hlýnun. (Landsbygdens Folk nr. 2/99) BREVIGLIERI jarðtætarar ♦ Fjölhraða gírkassi ♦ Vinnslubreidd frá 205- 300 cm ♦ Með og án jöfnunarvalsa ♦ Með bognum eða beinum hnífum Einnig mikið úrval annarra jarövinnslutækja VÉLAR& ÞJÖNUSTAhf Járnhálsi 2, Reykjavík, sími 587-6500, fax 567 4274 Útibú á Akureyri, Óseyri 1 a, sími 461 4040,

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.