Bændablaðið - 18.05.1999, Síða 10
10
BÆNDABLAÐIÐ
Þriðjudagur 18. maí 1999
CASE m - STEYR
Mest selda dráttarvélin á íslandi 1996-1998
CASt'
VÉLAR&
r
ÞJásNUST/ HF járnhálsi 2, pósthólf 10180,130 Reykjavík, sími 587 6500, fax 567 4274
Útibú Akureyri, Óseyrí 1a, sími 461 4040, fax 461 4044
STEVR^
STEYn
9000
f-i
Borgartúni 26 • Sími: 535 9000 • Fax: 535 9040
Netfang: bilanaust@bilanaust.is • Vefsíða: www.bilanaust.is
Dráttarvélasæti
með sleða
og fjöðrun
S71471E Svart
Verð kr. 14.900
Kartöfluverksmiðjur Þykkvabæjar hafa
framleitt kartöfluafurðir í nær 20 ár
að aukast aftur!
í Þykkvabænum er rekin Kart-
öfluverksmiðja Þykkvabæjar og
er verksmiðjan í eigu um 35-40
kartöflubænda í Þykkvabænum.
Frá upphafi hafa ýmis afbrigði
af kartöflum og matvælum verið
framleidd í Þykkvabænum og
hafa ýmsar nýjungar skotið upp
kollinum á þeim tíma.
Sigurbjartur Pálsson stjómar-
formaður verksmiðjunnar segir að
í raun megi segja að framleiðslan
núna sé á þremur línum; steikt
framleiðsla, þar sem m.a. eru
nokkur afbrigði af frönskum kart-
öflum; forsoðin framleiðsla sem
fer mest inn á mötuneyti og veit-
ingahús en er þó eitthvað að færa
sig inn á neytendamarkaðinn og
svo að lokum snakkframleiðsla.
Þegar verksmiðjan fór af stað fyrir
tæpum 20 ámm var lítil önnur
framleiðsla en þessar hefðbundnu
kartöflur í tveggja kílóa pokum.
„Þá var töluverður innflutningur á
frönskum kartöflum og framleiðsla
okkar hefur veitt samkeppni við
þann innflutning. Fljótlega eftir að
starfsemin hófst kom forsuðan síð-
an til sögunnar. Þetta og allt annað
sem við höfum komið með hefur
síðan bæst inn á þennan markað.
Þetta var ekki til áður,“ segir hann
og bætir við að þessi framleiðsla
sé ekki einungis í samkeppni við
innflutning heldur einnig annað
meðlæti á borð við pasta og hrís-
grjón.
Sigurbjartur telur að verk-
smiðjan hafi staðið sig ágætlega í
að búa til nýjungar. „Húsnæðið
hefur reynar haldið okkur niðri á
köflum en það hefur verið byggt
þrisvar við verksmiðjuna frá því
að hún hóf starfsemi. Við höfum
samt alltaf reynt að hugsa upp
hvað við gætum framleitt næst. Til
þess þurfum við bæði að fylgjast
með óskum neytenda og fylgjast
síðan með hvað er að gerast
erlendis."
Sigurbjartur segir það einnig
há verksmiðjunni að markaðurinn
er ekki stór. " Við getum ekki farið
út í að framleiða marga vöruflokka
því íslenski markaðurinn er ekki
það stór að það réttlæti fjárfestingu
á þeim búnaði sem þarf til að geta
framleitt meira unnar kartöflur.
Þetta þarf allt að vega og meta,"
segir hann.
Að sögn Sigurbjarts eru óskir
neytenda alltaf meira og meira í þá
átt að fá sem tilbúnasta vöru. For-
soðnu kartöflumar njóta af þessum
sökum nokkurra vinsælda vegna
þess hversu stuttan tíma það tekur
að gera matinn tilbúinn. „Neytand-
inn vill nú fá eitthvað sem hann er
fljótur að matbúa. Fólk nennir ekki
að bíða í hálftíma eftir að kartöfl-
umar sjóði þegar það kemur þreytt
heim að loknum vinnudegi,“ segir
hann.
Um 100 tonn af kartöflum em
notuð í framleiðsluna í hverjum
mánuði. í framleiðsluna er alltaf
notað íslenskt hráefni þegar það á
annað borð er til og stenst gæða-
kröfur. Stundum hefur þó komið
til þess að þurft hafi að flytja inn
hráefni.
1 Þykkvabæ búa um 200 manns
og það má nærri geta að þessi
vinnustaður hlýtur að vera dýr-
mætur fyrir byggðina. "í raun jafn-
gildir þessi staður 4.500 manna
vinnustað í Reykjavík. Þetta er því
mjög mikilvæg starfsemi, ekki að-
eins fyrir kartöflubændur heldur
einnig fyrir samfélagið hér í
Þykkvabænum," segir Sigurbjartur
en um 10 manns vinna hjá verk-
smiðjunni. Hann bendir á að þetta
sé nánast eini vinnustaðurinn í
byggðinni sem tengist ekki beint
búskapnum fyrir utan hefðbundnar
þjónustustofnanir á borð við skóla
og leikskóla.
Sigurbjartur segir að neysla á
kartöflum hafi stöðugt verið að
dragast saman undanfarin ár, sér-
staklega á hefðbundnum kartöflum
í þessum tveggja kílóa pokum. Sú
þróun mun halda áfram að hans
mati. „Styrjöldin við pasta stendur
stanslaust og menn hafa óttast að
hún sé að tapast. Nú upp á síðkast-
ið virðist kartöfluneyslan hins veg-
ar vera farin að aukast aftur og það
getur verið að það sé afleiðing
þess að kartöflunum er stillt öðru-
vísi fram.“
Sigurbjartur segir stöðuga
vinnu vera í gangi í því skyni að
þróa nýjar vörutegundir. "Það er
öruggt að það munu koma nýjar
framleiðsluvörur frá okkur sem
svara þessum þörfum markaðarins
að koma með tilbúna vöru. Þar
liggur framtíðin og menn verða að
fylgja þessu," segir hann.
í lok apríl gerði tölvudeild þjón-
ustukönnun hjá notendum
þriggja forrita sem Bændasam-
tök Islands bjóða upp á. Forritin
eru bókhaldskerfið Búbót, sauð-
fjárræktarforritið Fjárvís og
margmiðlunarforritið íslands-
fengur. Bændasamtökin eru með
fleiri forrit til sölu en útbreiðsla
þeirra er ekki eins almenn.
Könnunina fengu alls 200 not-
endur, víðsvegar um landið, sem
nota a.m.k. eitt af ofangreindum
forritum. Nú þegar hafa allmargir
skilað inn svörum við könnuninni.
Margar athugasemdir notenda ber
að sama meiði. Þetta greinarkom er
hugsað sem svar við nokkrum
þeirra þó ekki sé það tæmandi.
í hugbúnaðargerð er mjög ör
þróun. Margir velta því fyrir sér
hvort verið sé að vinna markvisst að
uppfærslu forrita BI en sú vinna er
að sjálfsögðu ætíð í gangi.
Forrit jyrir stýrikerfið Windows
Eins og flestir vita tók Islands-
fengur við af Einkafeng í desember
síðastliðnum. Forritið er skrifað
fyrir stýrikerfið Windows og er gef-
ið út á geisladiski. íslandsfengur er
margmiðlunarforrit og er mjög til
þess vandað. I því má finna
upplýsingar um á annað hundrað
þúsund hross. Eigendur íslands-
fengs eru flestir nokkuð ánægðir
með forritið en nokkrir benda þó á
að uppruni sumra hrossa sé ekki
réttur. Ástæðan fyrir þessu er sú að
tekin vom í notkun ný landsnúmer
frá Fasteignamati ríkisins í stað
gömlu lögbýlisnúmeranna. Þessi
ákvörðun var tekin í samræmi við
stefnumótun um gæðaskýrsluhald í
hrossarækt. Við þessa kerfisbreyt-
ingu varð til misræmi á milli gömlu
lögbýlisnúmeranna og hinna nýju
landsnúmera sem lýsir sér þannig
að stundum birtist rangt bæjarheiti í
uppruna á sumum stöðum í forrit-
inu. Að sjálfsögðu verður bætt úr
þessu í næstu útgáfu og biðjum við
eigendur þessara hrossa velvirðing-
ar. Stefnt er að því að íslandsfengur
verði endurútgefinn í desember á
þessu ári.
Forrit fyrir stýrikerfið DOS
Bókhaldskerfið Búbót og sauð-
fjárræktarforritið Fjárvís em skrifuð
í stýrikerfinu DOS. Búbót kom
fyrst út fyrir um áratug og Fjárvís
nokkm seinna. Síðan hefur mikið
vatn mnnið til sjávar. Forritin hafa
verið lagfærð og bætt reglulega
þannig að þau séu auðveld og
meðfærileg í notkun.
Þegar bændur hafa keypt nýja
tölvu, hefur borið á að tölvusalar
hafi gert þeim að setja sjálfir upp ís-
lensku fyrir doshermi þannig að hún
komi rétt þegar íslensk dosforrit em
keyrð. Margir hafa lent í töluverðu
umstangi af þessum sökum og
jafnvel orðið að senda tölvuna aftur
til baka. Þetta er því eitt af þeim
atriðum sem bændur þurfa að huga
að þegar tölvukaup standa fyrir
dymm. Rétt er að taka fram að slík
uppsetning hefur ekkert með
uppsetningu á Fjárvísi og Búbót að
gera nema á þann hátt að sér-
íslenskir stafir þeirra komi fram.
Tölvusalar geta auðveldlega sett
íslensku stafina upp á tölvunum
fyrir afhendingu án þess að hafa
Fjárvísi eða Búbót inni.
I dag er Windows stýrikerfið
nánast alls ráðandi á einkatölvu-
markaðnum. Því hafa margir not-
endur DOS forrita lent í vandræðum
t.d. við útprentun skjala. Á mark-
aðnum eru margvíslegar gerðir
prentara. Allir þessir prentarar em
nothæfir með stýrikerfinu Windows
en ekki alveg allir með DOS
forritum, sem nýta sér ekki
Windows rekla. Þetta þarf að hafa í
huga þegar fest em kaup á nýjum
tölvufylgihlutum eins og prentur-
um. Enn em margir prentarar sem
ganga bæði með Dos og Windows
stýrikerfum og úrvalið ætti því að
vera nóg.
Verið er að endurskoða allt
skýrsluhald í sauðfjáiTækt um þess-
ar mundir með það að markmiði að
leysa 2000 vandann og gera
sjálfvirkni gagnaflutnings milli
skýrsluhaldara og BÍ auðveldari.
Forritið Fjárvís mun halda álfam að
koma út a.m.k. næsta árið í
núverandi mynd og þá 2000 sam-
hæft. Stefnt er að Windows útgáfu
Fjárvísar innan tveggja ára.
Nýtt forrit
I júní síðastliðinn óskaði Land-
samband kúabænda eftir samstarfi
við Bændasamtök íslands um forrit
fyrir nautgripabændur. Unnið hef-
ur verið markvisst að þessu máli
síðan hjá BÍ og er stefnt að því að
slíkt fonit verði sett á markað fyrir
næstu áramót.
Að lokum
Það tekur tíma og kostar pen-
inga að fylgja eftir öllum breyting-
um í tölvuheiminum. Við erum í
stöðugri sókn og biðjum því við-
skiptamenn okkar um að sýna þol-
inmæði og biðlund. Með þökk fyrir
viðskiptin.