Bændablaðið - 18.05.1999, Qupperneq 17
Þriðjudagur 18. maí 1999
BÆNDABLAÐIÐ
17
Hverjir eiga að
ganga lausir?
Sigvaldi Ásgeirsson.
Undirritaður reit fyrir skömmu
hugvekju í Bændablaðið, þar sem
fjallað var um lausagöngu búfjár
og komst að þeirri niðurstöðu, eftir
að hafa skoðað málið frá mörgum
hliðum, að búfjáreigendur væru
heppilegasti aðilinn til að bera
ábyrgð á fé sínu. í dag tíðkast sú
skipan, að allir aðrir en búfjáreig-
endur bera ábyrgð á fé þeirra.
Þessi skipan hentar vel búskuss-
um, sem flestar sveitir geta státað
af í einhveijum mæli. Hinir eru
áreiðanlega fleiri í bændastétt, sem
vilja grundvallarbreytingu á
skipan beitarmála. Mál þetta mun
lítt hafa verið rætt á
Búnaðarþingum undanfama
áratugi. Hef ég fyrir satt, að þar
ráði ótti manna við að sundra
stéttinni. Mér vitanlega hefur ekki
verið skipuð nefnd til að kanna
forsendur þessa ótta, hvað þá að
fyrir liggi nefndarálit þar um.
Samt leyfi ég mér að efast um, að í
þessu efni sé Búnaðarþing með
afskiptaleysi sínu að gæta hags-
muna bændastéttarinnar í heild.
Þar virðist sú skoðun hafa ríkt, að
heiðra skuli skálkinn, svo hann
skaði þig ei.
í Bændablaðinu, sem út kom
20. apríl sl., birtist pistill eftir
Níels Ama Lund, deildarstjóra í
landbúnaðarráðuneytinu og fjallar
um þann þátt beitarstjómunar, sem
snýr að vegköntum. Pistillinn er
liðlega skrifaður og laus við tepru-
skap, og ber að þakka það. Hins
vegar upplýsti hann mig ekki mik-
ið. Ég staðnæmdist þó við eitt
atriði: ''Markmið með (veg)girð-
ingunum hefur fyrst og fremst ver-
ið að loka viðkomandi löndum en
ekki að friða vegi fyrir búfé". Ég
bið menn að lesa þessa tilvitnun
tvisvar. Nefndin hefur skoðað
málið og komist að því, að
hingað til hafi stjórnkerfið ekki
ætlast til þess, að helstu
þjóðvegir landsins væru
fjárlausir, ekki frekar en hver
annar afréttur! Getur þetta verið
rétt? Sé svo, er hér um stórmerka
uppgötvun að ræða. Ég myndi þá
vilja spyrja: Ber einhver ábyrgð á
svona vitleysu?
Nefndin skoðaði málið enn
betur, og komst að niðurstöðu:
Girða þarf meðfram helstu þjóð-
vegum, einnig þar sem t.d. fjár-
lausar jarðir eiga í hlut, svo að fé
komist ekki inn á þá. Fjallið tók
joðsótt og fæddi mús. Er þetta ekki
full takmörkuð lausn á víðtæku
vandamáli? Hvað með kvótalausa
bændur? Hvers eiga þeir að
gjalda? Eiga lönd þeirra áfram að
vera afréttarlönd búskussa? Hverj-
ir eiga að smala búfé - eigendur
fjárins - eða á smölun áfram að
vera kvöð á alla landsmenn, af því
að fyrir 150 árum voru svo gott
sem allir íslendingar sauðfjár-
bændur eða hjú þeirra?^
Skv. pistli Níelsar Ama kemur
nefndin hans vissulega með
ábendingar um að gera þurfi sveit-
arfélögum „skylt með lögum, að
setja sér samþykktir um búfjárhald
og í því sambandi líta til
búskaparhátta og aðstæðna á
hverjum stað, sjónarmiða um
landgræðslu og landvemd og fleiri
atriða“. Þetta er réttmæt ábending
- svo langt sem hún nær. Ég leyfi
mér samt að halda því fram, að
þetta sé of lítið og of seint. Lög
þurfa að kveða skýrt á um hlutina.
I þessu máli eiga lögin að taka af
öll tvímæli um það, að bændur
beri ábyrgð á sínu búfé og girði
það af á eigin löndum. Ég vil í
þessu sambandi benda á, hve
mikla möguleika búfjáreigendur
hafa á að halda fé sínu til réttra
haga. Búfjáreiganda er nefnilega í
lófa lagið að farga að hausti, því fé
sem ekki er til friðs, hvað þetta
varðar.
Lausagöngubann kallar á að-
lögunartíma og viðamikið girð-
ingaátak, sem vissulega verður
ekki gert án myndarlegs stuðnings
úr ríldssjóði. Ég hygg hins vegar,
að um slíkt gæti orðið víðtæk sátt í
samfélaginu, enda ótvírætt um
mikið framfaraspor að ræða.
Nefndinni var áreiðanlega
vandi á höndum. Umboð hennar
virðist hafa takmarkast við lausa-
göngu á vegsvæðum. Hinir póli-
tísku húsbændur hafa væntanlega
ekki viljað hrófla of mikið við
grundvallaratriðum, enda þarf
kjark til þess. Nefndin telur
skýrslu sína aðeins áfangaskýrslu.
í framhaldinu þurfi að leggja "mat
á a) hvaða vegi ætti að girða
traustum veggirðingum og b)
hvaða vegi sé ekki rétt að girða en
beita þess í stað öðrum aðferðum
til að draga úr hættu á umferðar-
slysum vegna búfjár, m.a. með
uppsetningu beitarhólfa á stórum
svæðum og banna jafnframt lausa-
göngu búfjár í nágrenni þeirra eins
og dæmi eru um á Reykjanessvæð-
inu".
Þetta væri að vísu til bóta,
mikið rétt, en því miður
ófullnægjandi. Vonandi verða nýir
húsbændur í land-
búnaðarráðuneytinu nógu fram-
sýnir og kjarkmiklir til að skoða
mál þessi frá sjónarmiði almanna-
hagsmuna. Vonandi verður kann-
að, hvort sé hagkvæmara frá heild-
arsjónarmiði, réttlátara frá sið-
ferðilegu sjónarmiði og betra fyrir
bændur almennt, að girða búpen-
inginn af eða að girða allt annað
af: Vegi, tún, akra, garðlönd, sum-
arbústaðalönd, landgræðslusvæði,
skógræktarsvæði, þéttbýli, jarðir
án sauðfjárkvóta o.s.frv. Verk-
efnið felst í því, að mæla heild-
arlengd nauðsynlegra girðinga,
eftir því hvor leiðin er valin og
kanna í framhaldi af því, hve mik-
ill kostnaður hlytist af því til
lengri tíma litið að taka tillit til
réttlætisins. Slík úttekt myndi ef-
laust einnig leiða í ljós, að áfram
yrðu glufur í veggirðingum við
kvótalausar jarðir, þar sem
óbreyttir borgarar þessa lands
gætu eftir sem áður komist órifnir
út í guðsgræna náttúruna.
Vilmundarstöðum, í
sumarbyrjun 1999.
Ráðherra skipar
samninganefnd
í síðasta mánuði skipaði land-
búnaðarráðherra samninganefnd
til viðræðna við Bændasamtök
íslands um gerð nýs sauðfjár-
samnings, en gildandi samningur
rennur út í lok ársins 2000.
Hákon Sigurgrímsson, deildar-
stjóri í landbúnaðarráðuneyt-
inu,verður formaður nefndarinnar
en með honum í nefndinni eru þeir
Þórhallur Arason, skrifstofustjóri í
fjármálaráðuneytinu, og Jón
Érlingur Jónasson, sem var að-
stoðarmaður Guðmundar Bjama-
sonar, fyrrv. landbúnaðarráðherra.
Ritari nefndarinnar er Jónas
Bjamason, forstöðumaður Hag-
þjónustu landbúnaðarins.
Áburöardreifanar
og traktorskranar
Einnar og tveggja skífa 800 lítra
áburðardeifarar barka- og vökvastýrðir.
Traktorskranar fyrir 3tengi.
Eruin afl fá
óga P9.
ávinnsli
G.SKAPTASON & CO.
TUNGUHÁLS 5 • REYKJAVÍK SÍMI577 2770
Brinkhaus ver á íslandi
Atlantic Trading hefur tekið að
sér umboð hér á landi fyrir þýska
fyrirtækið Brinkhaus. Um er m.a.
að ræða ófylltar, 16 hólfa sængur
sem hafa verið vinsælar meðal æð-
arbænda sem hafa sjálflr sett dún í,
saumað fyrir og selt til ferðamanna
eða annarra. Hingað til hafa bænd-
ur orðið að kaupa verin frá Þýska-
landi en nú er afgreitt beint af
lager í Keflavík.
Efnið sem notað er í sængumar
er dúnhelt, 100% bómullarefni af
bestu gerð. Verin em til í tveimur
stærðum, venjuleg 135x200 cm og
stór 155x220 cm. Þau fást í
eftirfarandi litum: Ljósblá, jökul-
hvít, hvít, mintugrænt og rósrauð.
Verin em send í póstkröfu um
land allt, pöntunarsíminn er 421
2200 alla virka daga.
Til afgreiðslu strax
Öflugir, vandaðir tindatætarar
með packerrúllu og hnífatindum
Afmælis-
afsláttur!
* 1. eða 6. hraða gírdrif.
* Vinnslubreidd 200 - 500 cm.
* Aflþörf 70-120 hö.
* Tvöfaldar burðarlegur.
* Jöfnunarborð aftan.
Sérlega sterkbyggðir hnífatætarar
Tvöfaldar hnífafestingar,
6 vinkilhnífar á kraga,
14 mm, 10.9 hnífaboltar.
Rillutenging öxla
við tannhjól.
* 1. eða 4. hraða gírdrif.
* Vinnslubreidd 185 - 285 cm.
* Aflþörf 50-150 hö.
Hliðardrif með
tannhjólaniðurfærslu.
Leitið nánari
upplýsinga!
□RKUTÆKNI
Hyrjarhöfða 3
112 Reykjavík
Sími 587 6065
Fax 587 6074