Bændablaðið - 18.05.1999, Qupperneq 26
26
BÆNDABLAÐIÐ
Þriðjudagur 18. maí 1999
MuttiSol
INNFLUTNINGUR:
PHARMACO HF.
ÚTSÖLUSTAÐIR:
ÖLL HELSTU MJÓLKURBÚ LANDSINS
Refaveiðar og
veiðistjóri
Guðbrandur Sverrisson er bóndi á
Bassastöðum í Stelngrímsfirði og
refaskytta í Kaldrananeshreppi.
í grein í Bændablaðinu 4. maí sl.
er vitnað í veiðistjóra, Áka Ár-
mann Jónsson, vegna stóraukins
kostnaðar sumra sveitarfélaga
við refaveiðar. Þar segir hann
m.a. um það mál: „Sum þeirra
hafa jafnvel þann hátt á að
borga fyrir vinnu sem fylgir leit-
VtfDESTEINH)
Landbúnaðardekk
Eigum dekk á flest
landbúnaðartæki á lager.
Gúmmívinnslan hf.
600 Akureyri
Sími: 461 2600
inni að refnum“, og bætir svo við
að sveitarfélög sem svona hagi
sér hafi ekki við aðra að sakast
en sig sjálf. Ekki veit ég hvað í
ósköpunum Áki Ármann er að
fara þarna, eða yflrleitt hvað
knýr hann til að halda slíku
fram.
Það er alveg fráleitt að veiði-
stjóri gefi yfirlýsingu um að óeðli-
legt sé að sveitarfélög greiði starfs-
mönnum sínum laun fyrir unnin
störf. Stundum er nefnt að menn
hafi dottið á höfuðið þegar þeir
halda fram einhverju óvenju frá-
leitu, getur verið að núverandi
veiðistjóri sé óvenju hrösull mað-
ur?
En ég held hann hafi ekki dott-
ið og ég held ekki heldur að þetta
sé sett fram af eintómri flónsku.
Því miður er hitt líklegra að hann
sé að burðast við að hagræða sann-
leikanum og þaði hefur oftast verið
talinn slæmur löstur á hvers manns
ráði.
Hann veit nefnilega vel að rík-
ið ákvað að lækka kostnaðarhlut-
deild sína við að halda ref í eðli-
legri stofnstærð og greiðir nú ein-
ungis 3500 kr. á hvem ref, en tekur
ekki lengur þátt í að greiða launa-
kostnað starfsmanna, hvað þá ann-
an kostnað. Mörg sveitarfélög
skilja enn að eðlilegt er að þau
greiði starfsfólki sínu laun, og
jafnvel líka útlagðan kostnað.
Hann veit líka vel að ref hefur
fjölgað mjög undanfarin ár og það
eitt og sér veldur miklum kostnað-
arauka hjá landstómm en fámenn-
um sveitarfélögum, ekki síst ef þau
liggja nærri friðuðum svæðum.
Hann veit það líka að það er
hlutverk sveitarfélaga samkvæmt
lögum að halda ref og mink í
skefjum og tjóni af völdum þeirra
í lágmarki.
Hann veit það líka vel að það
hefur aldrei verið hlutverk æðar-
bænda umfram aðra að sjá um
fækkun refa.
Einnig veit hann að á þeim
tíma er bændum var ætlað að sjá
um fækkun refa bjó þorri lands-
manna í sveit og þá var heldur ekki
til embætti veiðistjóra, kannski vill
hann leggja embættið af um leið
og þjónustuna? Þá skilur hann
einnig, út frá því ámæli sem em-
bætti veiðistjóra hefur Iegið undir
á seinni árum, hve nauðsynlegt er
að þar starfi fólk með þekkingu og
skilning á þeim verkefnum sem
embættinu ber að sinna samkvæmt
lögum og þá ekki síður skilning á
lífríkinu og gildi jafnvægis í nátt-
úrunni.
Hann veit líka að tjón af völd-
um refa einskorðast ekki við æðar-
fugl og æðarrækt, því á hverju ári
murka refir lífið úr mörgum kind-
um og drepa mikið af rjúpu og
öðrum fugli. Þegar refastofninn er
í eðlilegri stærð er tjón viðráðan-
legt, en þegar offjölgun verður sér
fljótt á öllu fuglalífi, því að það
þarf marga smáfuglsunga á dag til
að metta eina refafjölskyldu.
Tjón í æðarrækt og sauðfé er
hægt að áætla innan einhverra
skekkjumarka, en er veiðistjóri bú-
inn að verðleggja klukkustundimar
af fuglasöng eða er embætti veiði-
stjóra ekki enn farið að skilja að
tjón er fleira en tapað gull? Öll
skemmd á íslenskri náttúru er tjón,
jafnvel þótt það valdi ekki fjár-
hagslegum skaða.
Öflugri og tæknilega fullkomnari:
John Deere 6010 línan
Nýja 6010 Premium línan af John
Deere traktorum er fullkomnari og
öflugri en áður.
Nýju John Deere PowerTech mótorarnir
uppfylla ströngustu kröfur nýrrar aldar.
Nýr og meiri valbúnaður en áður.
Fullkomin aflskipting með viðbótar
valkostum, PowrQuad+ og AutoQuad,
sem bjóða upp á meiri sjálfvirkni.
Nýr valbúnaður - TLS fjöðrunarbúnaður á
framhásingu sem fjaðrar undir fullu
burðarálagi.
Nýja 6010 traktorlínan frá John Deere er
fáanleg í stærðunum frá 80 til 135 hö.
Meðal þess búnaðar sem prýðir 6010 línuna er:
• Traktorar byggðir á grind sem ber allan þunga traktorsins.
• Grindarbygging þýðir burðarmeiri vél og betri til moksturs
• John Deere díeselmótorar: afar sparneytnir og kraftmiKiir.
• PowrQuad, PowrQuadPlus eða AutoQuad gírkassar.
• Alvöru vendigír sem leyfir stefnuskiptingu á fullri ferð.
• PermaClutch II blautkúpling sem endist aldur traktorsins.
• Öflug vökvadæla, 60 eða 96 l/mín, 200 bar.
• 3ja hraða aflúrtak, 540, 540E og 1000 sn/mín.
• Stjórntakkar í afturbrettum fyrir aflúrtak og vökvalyftu.
• Lyftutengdur dráttarkrókur með vökvaskotkrók.
• Rúmgott og vel hljóðeinangrað ökumannshús.
Leitið nánari upplýsinga hjá sölumönnum eða
komið og reynsluakið nýjum John Deere!
ÞQR HF
REYKJAVÍK - AKUREYRI
REYKJAVIK: Armúla 11, sími 568-1500 - AKUREYRI: Lónsbakka, sími 461-1070 - Vefsíða: www.thor.is