Bændablaðið - 15.06.1999, Page 12
12
BÆNDABLAÐIÐ
Þriðjudagur 15.júní 1999
Efnagreiningar á heyi 1999
Nú er bofiiO upp ú
„hrafiferð" fyrir
orkugildi og prútein
án steinefnamælinga
Samstarfsamningur um hey-
efnagreiningar fyrir bændur
milli Rannsóknastofnunar land-
búnaðarins og Bændaskólans á
Hvanneyri hefur verið endur-
nýjaður. Helsta breytingin er sú
að nú er boðið uppá nýjan val-
kost, þ.e. hraðferð fyrir orku-
gildi og prótein án steinefna-
mælinga (sjá aftar).
Vinnuferillinn verður svipaður
og á síðasta ári. Sýnin skulu öll
send að Hvanneyri þar sem þau
verða skráð. Mælingar verða unnar
á báðum stöðum og gögn send raf-
rænt á milli. Niðurstöður verða
sendar út frá RALA, en gagna-
grunnur með niðurstöðum mun
liggja fyrir hjá báðum stofnunun-
um. Fyrirspumum um niðurstöður
og túlkun þeirra skal beina til
Tryggva Eiríkssonar á RALA.
Sýnataka
Mikilvægt er að sýnin séu vel
tekin og gefi sem besta mynd af
því fóðri sem sýnið er tekið úr. I
þeim tilvikum sem bændur taka
sýnin sjálfir er best að hafa sam-
band við héraðsráðunauta sem
veita ráðleggingar um hvemig best
er standa að sýnatökunni.
Reikna má með að nokkur
hluti bænda taki hirðingarsýni, t.d.
við rúlluverkun, til að losna við að
gera göt á rúllumar. Þá er hægt að
taka hirðingarsýni með því t.d að
ganga þvert á múgana áður en
rúllað er og taka smá viskar úr
þeim, eða taka sýnið úr rúllunum
áður en plastað er og nota heybor
ef þess er kostur. A svipaðan hátt
er hægt að taka sýni við hirðingu í
vothey eða þurrhey. Nægjanlegt er
að sýnin séu um 0,5 kg. Sýnin em
sett í frysti í vel lokuðum plast-
pokum. Þegar fyrri slætti er lokið
eða í heyskaparlok em sýnin send í
efnagreiningu með tilheyrandi
upplýsingum.
Æskilegt er að sem allra flest
sýni berist fyrir 20 október.
Merking sýnanna
Mjög mikilvægt er að sýnin
séu vel merkt, það gerir skráningu
ömggari og sparar fyrirhöfn við
skráninguna.
Eftirfarandi upplýsingar skulu
fylgja:
Sendandi: Nafn bónda,
heimilisfang og kennitala. Einnig
lögbýlis og póstnúmer.
Gerð sýna: Hirðingarsýni eða
sýni úr verkuðu fóðri.
Verkunaraðferð: Þurrhey,
vothey, rúllur, grænfóður eða
annað.
Auðkenni: Af hvaða túni, úr
hvaða hlöðu, eða það sem menn
vilja auðkenna sýnið með.
Dagsetningar: Sláttudagur og
hirðingardagur.
Sláttur: Fyrri sláttur eða
seinni sláttur.
Tegund: Skrá grastegundir
aðeins ef menn em vissir á
greiningunni, þarf ekki að vera
mjög nákvæmt. Grænfóðurtegund
skal ávallt skrá (hafrar, rýgresi kál
og annað)
Mœling og afgreiðslutími
Um er að ræða:
a) Hefðbundna greiningu eins
og verið hefur, það er þurrefni,
orkugildi, prótein og steinefni. Af-
greiðslutími frá móttöku sýna er
30 dagar. Ef hirðingarsýni koma
snemma sumars gæti afgreiðslu-
tími orðið örlítið lengri, en reiknað
er með að fyrsta útsending niður-
staðna með steinefnamælingum
verði 10. ágúst.
b) Hraðferð, einungis mælt
þurrefni, orkugildi og prótein. Af-
greiðslutími frá móttöku sýna er
10 dagar. Hraðferðin hefur í för
með sér aukið vinnuálag á efna-
greiningafólk en á móti kemur að
steinefamælingum er sleppt.
Verð
Verð fyrir heildar greiningu
(með steinefnum) eins og verið
hefur er 2375.- kr
Verð fyrir mælingu á orkugildi
og próteini (án steinefna) hraðferð
2375.- kr
Verðin em án virðisaukaskatts.
Búnaðarsamböndum er boðið upp
á viðræður um afslátt í samræmi
við umfang viðskipta og fyrir-
komulag þeirra skv. samkomulagi.
Ef óskað er eftir öðm en hefð-
bundinni greiningu verður að til-
greina það sérstaklega.
Ofangreint gildir einungis um
heysýni og önnur gróffóðursyni,
en ekki um komsýni eða annað
kjamfóður.
Nánari upplýsingar og aðstoð
veita búnaðarsamböndin.
Einnig veita allar upplýsingar:
Björn Þorsteinsson Hvann-
eyri sími 4370000 fax 4370048
Tryggvi Eiríksson Rann-
sóknastofnun landbúnaðarins sími
5771010 fax 5771020
Freyr
Flytur þér vandaðan
fróðleik um
landbúnað. Ert þú
áskrifandi? Hringdu
í síma 563 0300 og
við sendum þér
blaðið um hæl.
TINDAR
í FLESTAR TEGUNDIR
Vélaval -
Varmahlíð HF
Sími: 453 8888 Fax: 453 8828
DRAMINSKI
júgurbólguneminn
Söluaðili:
NAUÐSYN ehf.
Lyngási
510 - Hólmavík
Sími/fax: 451 3543,
854 7716