Bændablaðið - 15.06.1999, Blaðsíða 29

Bændablaðið - 15.06.1999, Blaðsíða 29
Þriðjudagur 15.júní 1999 BÆNDABLAÐIÐ 29 Tæknival og íslensk miðlun gera með sér samstarfs- samning Stefnt að því að koma upp fleiri starfsstöðvum á lands- byggðinni innan tveggja ára Tæknival hf. og íslensk miðlun ehf. hafa gert með sér sam- starfssamning sem felur í sér viðamikla samvinnu fyrirtækj- anna á sviði upplýsingamiðlun- ar. Samningurinn mun leiða af sér fjöld nýrra atvinnutækifæra við markaðs- og upplýsingamál á landsbyggðinni. Fyrirtækin stefna að því að koma upp starfsstöðvum með tækniþekk- ingu og lausnum frá Tæknivali á fleiri stöðum úti á landi innan tveggja ára. I samningnum er gert ráð fyrir að Tæknival leggi til þá tæknilegu þekkingu sem felur í sér hönnun og þróun tæknilegra lausna sem notaðar eru í verkefninu. Frá Tæknivali kemur tölvu- og víðnetsbúnaður á starfsstöðvar ís- lenskrar miðlunar og fyrir fjar- fundalausn. Víðnetslausnin byggist m.a. á því að tengja saman tvo eða fleiri vinnustaði, sem geta verið í tals- verðri fjarlægð hver frá öðrum og þannig láta þá starfa saman óháða fjarlægðum og vegalengdum. Með víðnetinu er nú hægt að færa störf- in til fólksins, ólíkt því sem áður var þegar fólk varð að flytja sig þangað sem störf voru í boði. Víð- netið geri fyrirtækjum kleift að flytja hljóð, myndir og gögn á milli staða án tillits til vegalengda, þannig að starfsmenn Islenskrar miðlunar á landsbyggðinni og í Reykjavík geta staifað saman án tillits til fjarlægðar á milli staða. Þegar hafa skapast 13 ný störf á Raufarhöfn og mun annar eins fjöldi nýrra starfa skapast á Stöðv- árfirði og Patreksfirði en þegar hefur verið gengið frá samningum um starfsstöðvar þar. Hið nýja fyrirtæki mun opna nýjar leiðir og tækifæri í atvinnu- málum byggðalaganna og flytja um leið þangað fullkomna sam- skiptatækni og þekkingu. Til sölu McHale pökkunarvél árg.97, Krone 125 rúllubindivél árg.90, Zetor 7745 m/Alö 640 ámokst. árg 91, Fella heyþyrla vb.5,4 árg.96, Niemeyer stjörnumúgavél árg. 95. Tvær Khunflex múgavélar. Deutz- Fahr sláttuþyrla (biluð) vb. 165, árg.85. Uppl. í síma: 4312910. Stórlækkað verð Bætt heilsa. betri líðan. aukatekjur. Við kynnumst ótrúlegum heilsuvörum og náum frábærum árg- angri. Þú trúir því varla. Viltu vita hvernig? Persónuieg ráðgjöf og stuðningur. Hringdu núna. Símar 487 5656, 892 8756. Jörð til sölu Austurkot í Sandvíkurhreppi. Jörðin er 166 ha., ræktun er tæplega 20 ha. Á jörðinni er gamalt íbúðarhús sem þarfnast viðhalds, úthús í þokkalegu ástandi m.a. hesthús fyrir rúmlega 35 hross, reiðskemma og stór vélaskemma. Toppaðstaða fyrir hestamenn, mjög góð staðsetning; innan við 5 km frá Selfossi og klst. akstur til Reykjavíkur. Nánari uppl. á skrifstofu Fasteignasala Lögmanna Suðurlandi Austurvegi 3, 800 Selfoss S. 482 2849- Fax 482 2801 - fasteignir@log.is r Þetta er vopnið í baráttunni við dulbeiðsli hiá kúm Söluaðili: NAUÐSYN ehf. Lyngási 510 - Hólmavík Sími/fax: 451 3543, 854 7716 Hrossabœndur -ný tœkifœri- Ísteka-Lyfjaverslun íslands hf. óskar eftir samstarfi viö hrossabœndur um blóðtökur úr fylfullum hryssum í ógústbyrjun í eftirfarandi landshlutum: Suðurland Borgarfjörður Húnavatnssýslur Skagafjörður / Gott verö fyrir gœöahróefni / Vikulegar fylmœlingar / Heilsuvernd Hafið samband strax. Upplýsingapakki bíöur ykkar. Ísteka-Lyfjaverslun íslands hf. Grensásvegi 8, 108 Reykjavík s.: 581-4138; fax: 581-4108 netfang: isteka@vortex.is Nýr landbúnaðarráðherra Brynjólfur Sandholt, fyrrverandi yfirdýralæknir, er einn fjölmargra sem heimsóttu Guðna Ágústsson, nýjan landbúnaðarráðherra, á fyrstu dögum hans í embætti. Guðni sagði í stuttu spjaili við Bændablaðið að Ijóst væri að mörg spennandi verkefni biðu hans í ráðuneytinu. „Ég mun ieggja mig allan fram um að vinna fyrir íslenskan landbúnað," sagði ráðherrann. „íslendingar ganga að því sem vísu þegar þeir kaupa íslenskar búvörur að þeir séu að kaupa þá hollustu matvöru sem völ er á í heiminum. Á þetta þarf að leggja áherslu. Við eigum að setja markið hátt og eiga landbúnað í fremstu röð á næstu öld.“ ISTOII^ I Afkastamiklar hey- vinnuvélar á ein- stöku sumartilboði R-1400F múgavél, vökvastýrð - tveggja stjörnu. Rakar í einn garða til vinstri eða tvo garða til hægri. Vbr. 6,20 m. Drive 655 AS múgavél, tveggja stjörnu, dragtengd, vökvalyft. Vbr. 6,55 m. Hentar litlum dráttarvélum. SPEED680 A tætla, dragtengd, vökvalyft. Vbr. 6,80 m. Hentar litlum dráttarvélum. Valdar sem ódýrasti kosturinn í útboði Búnaðarsambands Suðurlands á síðasta ári. VÉLAR& WwNUSTAhf Járnhálsi 2, Reykjavík, sími 587-6500, fax 567 4274 Útibú á Akureyri, sími 461 4040, Óseyri 1a ISTHIIMl

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.