Bændablaðið - 15.06.1999, Side 13
Þriðjudagur 15.júní 1999
BÆNDABLAÐIÐ
13
Verið er að vinna að gæðavott-
unarstaðii í hrossaræktinni
þannig að hrossabændur geti nú
fengið ræktunarstarfið og bú-
skapinn gæðavottað til eins árs í
senn. Einnig er gert ráð fyrir að
kjötframleiðsla geti fengið gæða-
vottun. Víkingur Gunnarsson,
hrossaræktarkennari á Hólum,
og Agúst Sigurðsson hrossa-
ræktarráðunautur BÍ hafa unn-
ið að þessum gæðastaðli.
Víkingur segir að þrír þættir
séu teknir út og vottaðir; skýrslu-
hald, landnýting og heilbrigði
hrossanna. „I sumar fá menn
fyrstu folöldin sem komast á blað.
Þegar þau eru síðan komin í
skýrsluhaldið má fara að sækja um
hina tvo þættina," segir hann.
Víkingur segir að í uppruna-
vottorðunum sem menn fá fyrir
hvert folald kemur fram vottun og
staðfesting þess að hrossið sé rétt
ættfært. Þetta verður því eins kon-
ar fæðingarvottorð folaldsins.
„Það mun væntanlega skila sér í
því að útlendingar kaupi mun frek-
ar hross með trausta og örugga
ættskrá. Það hafa komið upp tilvik
þar sem komið hefur í ljós að hross
hafi verið rangt ættfærð," segir
hann. Víkingur segir það einnig
hljóta að virka söluhvetjandi að fá
staðfestingu á því að hesturinn hafi
hlotið gott uppeldi og sé heilsu-
góður, auk þess sem það sjáist að
vel sé farið með landið. „Það er
von okkar að þetta ýti undir sölu
og að viðskiptavinurinn sé frekar
tilbúinn að kaupa slíka vöru og
jafnvel borga meira fyrir hana.“
Það verður fyrst síðsumars eða
haustið 2000 sem menn munu geta
fengið bú sín vottuð á þennan hátt.
A Alfa Laval Agri
VELAVERf
Lágmúla 7,
108 Reykjavík
sími 588 2600,
fax 588 2601
<5^A^D
Tekur þú áhættu eða tryggir þú
mjólkurgæðin og notar „orginal“
varahluti í mjaltakerfið?
Yfipdýralæknip afiiakkap
slyrk frá Framleifinisjóði
Embætti yfirdýralæknis hefur
formlega afþakkað styrk frá
Framleiðnisjóði landbúnaðarins
er veittur hafði verið til rann-
sókna á sumarexemi í samvinnu
við Dýralæknaháskólann í
Hannover í Þýskalandi. Um var
að ræða styrk sem nota skyldi til
þróunar prófs er mæti næmi ís-
lenskra hrossa fyrir ofnæmis-
valdinum, flugunni Culicoides.
Að umsókninni stóðu, auk yfir-
dýralæknisembættisins og
ónæmisdeildar Hannover há-
skóla, Félag hrossabænda og Til-
raunastöðin á Keldum.
Að sögn Kristins Guðnasonar,
formanns Félags hrossabænda, náð-
ist ekki samkomulag um vísinda-
legt samstarf á milli landanna.
„Samstarf við íslenska aðila var
frumskilyrði í styrkveitingunni,
þannig að þegar ekki náðist að
semja um það voru forsendur styrk-
veitingarinnar og þai' með verk-
efnisins brostnar. Til að verkefnið
yrði íslenskum hrossaræktendum
að gagni varð þetta samstarf að vera
í lagi.“ Kristinn segir að íslensku
aðilamir hafi þó alls ekki lagt árar í
bát og að undirbúningur að öðrum
rannsóknarverkefnum á þessu sviði
sé þegar hafinn. „Vísindamenn
okkar eru að leita upplýsinga um
þær rannsóknir sem verið er að
vinna á þessu sviði víðsvegar um
heim og við munum skoða alla
möguleika á samstarfi við aðra
alþjóðlega aðila með megináherslu
á fyrirbyggjandi aðgerðir eða
lækningu/bólusetningu." Einnig
verður lögð aukin áhersla á að
kynna fyrirbyggjandi aðgerðir gegn
sumarexemi fyrir eigendum
íslenskra hesta og er von á bæklingi
þar um frá Félagi hrossabænda á
næstu dögum, auk þess sem tjallað
var um málið í síðasta tölublaði
Eiðfaxa Intemational.
DISKASLATTUVELAR
HEYTÆTLUR
STJORNUMUGAVELAR
STÓRBAGGAVÉLAR
RULLUBINDIVELAR
VELAR&
ÞJÓNUSTA
KRONE
Mest seldu
heyvinnuvélar á
íslandi undan-
KRONE
I öll þrjú skiptin sem
Búnaðarsamband
Suðurlands hefur boðið
út heyvinnuvélar hefur
Krone orðið fyrir valinu.
Krone heyvinnuvélar á
frábæru sumartilboði
Járnhálsi 2, Reykjavík, sími 587-6500, fax 567 4274
Útibú á Akureyri, sími 461 4040, Óseyri 1a
farin þrjú ár.