Bændablaðið - 16.09.2003, Side 13
H- ~v < i i
12 Bændablaðið Þríójudagur 16. september 2003 Þríðjudagur 16. september 2003 Bændablaðið 13
Lambakjfi! írá SS
vcpfiun í 60 verslunum
í DanmdPku í haust
Athyglisvert samstarf um sölu á lambakjöti
í Danmörku hefur tekist með Sláturfélagi
Suðurlands, Áformi, átaksverkefni og
Flugleiðum. Fljótt á litið mætti ætla að
Flugleiðir ættu fátt sameiginlegt með
íslenskum sauðfjárbændum en þegar að grannt
er skoðað er annað upp á teningnum. Áform
hefur starfað um hríð að markaðsmálum í
Bandaríkjunum og komið lambakjöti á
ffamfæri - og þar hafa Flugleiðir einnig átt hlut
að máli - en lambakjötið sem selt er í
Bandaríkjunum kemur frá Norðlenska á
Húsavík. Áform hefur lagt áherslu á að sala
lambakjöts ytra sé mun meira en einfold
afgreiðsla á kjöti yfir búðarborð eða uppröðun í
kæliborði. Ekki sé hægt að nefna íslenskt
lambakjöt í útlöndum án þess að segja ffá landi
og þjóð. Þannig sé hægt að vekja áhuga sem á
stundum geti leitt til íslandsferðar og enn meiri
lambakjötsneyslu.
t Bandaríkjunum hefur verslunum sem selja
íslenskt lambakjöt Ijölgað úr átta í 90 á fimm
árum og áætlun fyrir árið 2004 gerir ráð fyrir
enn fleiri verslunum. Baldvin Jónsson
ffamkvæmdastjóri,segir að þar hafi verið tekin
sú ákvörðun að herja beint á stjómendur
verslana, slátrara og yfirmenn í kjötborðum -
en síðast en ekki síst að gefa viðskiptavinum í
búðunum að smakka. Á stundum hefúr gengið
erfiðlega að fá fólk til þess að stinga upp í sig
bita þar sem reynsla margra af lambakjöti sé að
af því megi finna "ullarbragð" en 70 - 80%
þeirra sem fást til að bragða íslenska kjötið
kaupa það.
I vetur verða 720 kynningar í bandarískum
matvörumörkuðum, sem heita Whole Foods
Markets, og gert er ráð fyrir að í vetur bragði
180 þúsund manns íslenskt lambakjöt í fyrsta
skipti. Miklar og dýrar auglýsingaherferðir hafa
ekki komið til álita vegna kostnaðar. Gert er
ráð fyrir að kostnaður við kynningar í hverri
verslun í vetur sé að jafnaði 40 þúsund krónur á
mánuði meðan á kynningum stendur. Nokkrir
Ánægður Dani með islenskt lambakjöt.
bandarískir stjómendur matvöruverslana hafa
komið til íslands á vegum Áforms; farið í
göngur og réttir og kynnst bændum - landi og
þjóð. Bandaríkjamenn líta á íslenskt lambakjöt
sem árstíðabundna vöru og Baldvin segir að
það skipti verulegu máli að lengja sölutímabilið
- helst ffá því í ágúst og fram til áramóta.
Reynsla Áforms af viðskiptum í
Bandaríkjunum kemur sér vel á ýmsan hátt
þegar Danmörk er annars vegar. Á þeim tíma
lfá því að sala í Bandaríkjunum hófst hafa átt
sér stað ýmiss konar mistök, sem sum má rekja
til vankunnáttu og kæruleysis heima fyrir en
önnur til innflutningsyfirvalda í
Bandaríkjunum, sem virðast reyna að koma
veg fyrir innflutning matvæla til landsins.
Enginn verður óbarinn biskup og nú hafa
kjötútflytjendur til Bandaríkjanna öðlast svo
mikla reynslu að á síðasta ári kom engin
kvörtun sem rekja má til mistaka íslendinga.
Betri pökkunartækni ruddi sér til rúms sem
skiptir máli í þessu sambandi.
"Það tekur langan tíma að byggja upp
markað og traust en ótrúlega stuttan tíma að
rústa löngu markaðsstarfi. Við stefndum að því
að selja íslenskar landbúnaðarafúrðir sem
náttúrulega ffamleidd lúxus-matvæli. Til þess
að svo megi takast verða menn að hafa óbilandi
trú á hráefninu, tryggja stöðugleika í
ffamleiðslunni, finna kaupendur sem eru
reiðubúnir til að greiða sanngjamt verð og
hefja síðan markaðssetninguna hægt og bítandi
- og sýna þolinmæði,"sagði Baldvin sem bendir
á að Nýsjálendingar selji 900 þúsund tonn af
Iambakjöti til Evrópu, Bandarikjanna og Asíu
og að nýsjálenskir framleiðendur starfi mikið
saman til að halda mörkuðum.
Um síðustu áramót hófst umræða um það
hvort ekki mætti nota sömu vinnubrögð á
dönskum matvörumarkaði, en Sláturfélag
Suðurlands rekur kjötvinnslu á Jótlandi og er
með danska sölumenn í vinnu. SS og Áform
tóku höndum saman og nú er gert ráð fyrir að
íslenskt lambakjöt verði að fínna í 60 dönskum
búðum í haust og vonandi fleiri haustið 2004.
Gerður var bæklingur um landið og
lambakjötið og danskir neytendur geta nú tekið
þátt í spumingaleik um landið. Samningur var
gerður við verslanakeðjumar Kwikly, ISO og
Irma sem vilja fyrst og fremst fá kjötið ferskt.
Sendiráð íslands í Bandaríkjunum og
Danmörku hafa reynst mönnum vel í
baráttunni og má nefna sem dæmi að Þorsteinn
Pálsson, sendiherra í Danmörku, og Eysteinn
Jónsson, aðstoðarmaður landbúnaðarráðherra,
fyrir hönd Guðna Ágústssonar, buðu tugum
yfirmmanna kjötdeilda í veislu á heimili
sendiherrahjónanna á dögunum. Þar fengu
menn að smakka lambakjöt sem Siggi Hall og
danski sjónvarpskokkurinn Nikolai Kirk
grilluðu en íslenskir tónlistarmenn sáu um að
skemmta gestum. Daginn eftir var sams konar
boð fyrir blaðamenn og fólk sem starfar að
ferðaþjónustumálum í Danmörku.
Fullyrða má að fyrra kvöldið hafi íslenskur
landbúnaður eignast rúmlega 70 dugmikla
fulltrúa; svo hrifnir voru Danimar af gestrisni
sendiherrans og landbúnaðarráðherra og
auðvitað vörunni sem kynnt var. Segja má að
íslendingar hafi uppskorið strax því ekki skorti
ábendingar um það hvemig varan ætti að líta út
og hvemig bæri að merkja hana svo dæmi séu
nefnd. Steinþór Skúlason, forstjóri SS, sagði að
strax yrði bmgðist við sumum ábendingum
Dananna.
I DanmðPku stækkar sá hápur sem
er tilbúinn til greifia tyrir gæfii
"Ég ræddi við nokkra
kjötiðnaðarmenn og slátrara
sem sátu veisluna í sendiherra-
bústaðnum. Sumir þeirra höfðu
ekki smakkað lambakjötið og
bragðgæði þess komu þeim á
óvart," sagði Ari Teitsson, for-
maður Bændasamtaka íslands,
sem fór utan til að fylgjast með
hvernig staðið væri að
kynningunni. "Sumir þessara
manna nefndu að "ullarbragð"
af lambakjöti hefði komið í veg
fyrir að þeir borðuðu það. Þetta
bragð virðist há sölu lambakjöts
- og það er því mikilvægt að Is-
lendingar leggi áherslu á
sérstöðu íslenska kjötsins hvað
þetta varðar."
Ari sagði að það hefði vakið
athygli sína að Danir markaðssetja
eigið lambakjöt undir merkinu
"Freelamb" sem heimamenn skilja
vart á annan veg en þann að
kindumar gangi ffjálsar um í
náttúrunni. Nú biði íslenskra
markaðsmanna að sjá til þess að
samsvarandi merkingar yrðu settar
á íslenskar afurðir. Þá þyrfti líka
að skoða hvort hægt væri að auka
og bæta merkingar í verslununum.
"Við gætum lagt áherslu á að
okkar lamb er í raun og vem villi-
bráð. Þetta þýðir að við verðum að
kynna þær aðstæður sem lambið
býr við," sagði Ari og minntist
þess að hann hafði séð í danskri
verslun hjartarkjöt á helmingi
hærra verði en íslenskt lambakjöt.
"í Danmörku stækkar sá hópur
sem er tilbúinn að greiða fyrir
gæði. Þetta þurfúm við að nýta
okkur."
Ari sagði að lokum að Danir
litu á lambakjötið sem árstíða-
bundna, ferska vöm. "Þegar verið
er að reyna að opna markað eins
og þennan mega menn ekki selja
hingað ffosið kjöt á lágu verði. Eg
sá í einni verslun ffosin, íslensk
dilkalæri sem vom á mun lægra
verði en kjöt ffá Nýja Sjálandi.
Vissulega þurfa íslensk afúrða-
sölufyrirtæki að selja kjöt til út-
landa en útsala af þessu tagi getur
komið í veg fyrir að um síðir náist
viðunandi verð fyrir kjötið."
Stefan Weber stýrir ISO matvöruversluninni í
Charlottenlund. Hann lagöi mikla áherslu á aö fólk
fengi aö smakka íslenskt lambakjöt. Það væri í raun
eina leiðin til að sannfæra neytendur um að til væri
lambakjöt sem bragðaðist ailt öðru visi og væri
betra en nýsjálenskt og danskt lambakjöt. Verð á
íslensku lambakjöti væri ekki vandamál.
F.v. Þorsteinn Pálsson og systurnar Dísella, Ingibjörg og Þórunn Lárusardætur sem sungu og
spiluðu eins og englar fyrir Danina þegar þeir sóttu Þorstein Pálsson heim. Þá kemur Halldór
Harðarson hjá Flugleiðum og þrír danskir kjötiðnaðarmenn sem unnu ferö til íslands, Brian
Jensen, Irma Roskilde, Lars Larsson, ISO Lyngby. Michael Larsen, ISO Vesterbro
*
Hér má sjá hóp danskra kjötiðnaðarmanna og stjórnenda verslana ásamt nokkrum islendingum fyrir utan heimili Þorsteins Pálssonar sendiherra. Það skiptir máli aö hafa samskipti við þá menn sem standa innan við kjötborðið og eru í beinum
tengslum við neytendur.
Alhyglisvert samstarf um sfilu á
lamhakjötj í Danmörku hefur tekist
með Sláturfélagi Sufiurfands,
Áíurmi, átaksverkefni ug Flugleifium
Skilaverö SS til bænda hefur veriö
breytilegt eftir innleggsvikum. Þaö var
áriö 2002 frá 220 niður í 170 kr/kg en á
þessu ári frá 220 niður í 150 kr/kg þar
sem lægsta veröiö er greitt í
heföbundinni sláturtíö.
Sláturfélag Suöurlands hefur flutt út 100
til 200 tonn á ári undanfarin ár. Gert er
ráö fyrir aö í ár fari 70 til 90 tonn á
Danmerkurmarkaöinn.
Athygli vekur aö íslenska kjötiö er selt á
svipuðu veröi og nýtt danskt og þýskt
lambakjöt sem gjarnan er kallað lífrænt
þó svo féö lifi á rækuöu landi. Fallþungi
danskra lamba er allt aö 26 til 28 kg.
Kjötiö þykir fremur gróft og yfirleitt
viröast skrokkarnir feitir - sem danskir
kjötiönaöarmenn telja afar óæskilegt. í
samanburöi við ferskt nýsjálenskt kjöt þá
er íslenska kjötiö rauðara og fitan hvítari
enda hefur nýsjálenska kjötiö þurft aö
þola mun lengri flutning.
Þessir tveir menn, Jacob Nilsen sölustjóri og Jacy Lind slátrari ráða
ríkjum í ISO versluninni i Hellerup, en þar eru seld rösk 100 kg af íslensku
lambakjöti á viku og salan eykst jafnt og þétt. Þeir félagar fullyrða að
engin önnur ISO verslun geti státaö af jafn mikilli sölu. Til samanburðar
má geta þess að í fyrra seldi þessi sama verslun um 50 kg á viku. "Nú er
svo komið", sagði Jacob, "aö viðskiptavinirnir kvarta ef islenska
lambakjötið er ekki til. Ég vona að við getum verið með lambakjöt fram að
jólum." Það vakti sérstaka athygli hvað þessi verslun gaf íslenska
lambakjötinu mikið pláss í kæliborði.
Steinþór Skúlason, forstjóri Sláturfélags Suðurlands
Okkar bífiur mikil vinna við að
kynua Dðnum íslenskt lamkakjðt
Sláturfélag Suðurlands hóf að
vinna skipulega á dönskum
markaði árið 1996, en í tengslum
við fyrstu opinberu heimsókn
Ólafs Ragnars Grímssonar til
útlanda fékk Útflutningsráð
nokkur íslensk fyrirtæki til að
vera með íslenska daga í
verslunum Super Brugsen.
Forsvarsmenn SS ákváðu að
halda áffam starfi á danskri grund
og bjóða viðskiptavinum sínum
marinerað kjöt þann tíma ársins
sem ferskt lambakjöt var ekki
fáanlegt. Árlega hefúr SS selt 150
til 200 tonn á ári af lambakjöti til
Danmerkur. "Til þess að stýra
gæðunum og ffamleiðslu á
markaðnum ákváðum við að fara
út í eigin rekstur í byijun árs
2001 og keyptum vinnsluhúsnæði
á Jótlandi," sagði Steinþór
Skúlason, forstjóri SS, í samtali
við blaðið. "Ég er sannfærður um
að þetta átak sem nú er hafið
muni skila árangri. Við gerum
okkur vonir um 30-40%
aukningu í sölu á fersku lambi á
þessari vertíð."
Reynslan af rekstrinum á
Jótlandi heíúr sýnt að ekki er
grundvöllur fyrir ffamleiðslu á
Jótlandi og verður dregið úr
henni á næstu mánuðum en þess í
stað öll áhersla lögð á sölu- og
markaðsmál. Allt ffam til
haustsins 2002 var ferska kjötið
flutt utan með flugi en nú er það
flutt utan í gámum. Breytt
vinnulag og pökkun á kjöti gerir
það nú að verkum að
skipaflutningar eru mun fysilegri
en fyrr.
"Við leituðum eftir stuðningi
Áforms við að rækta markaðinn
hér enn ffekar," sagði Steinþór,
"og gott samstarf tókst með
okkur, Áformi og Flugleiðum.
Áhersla er lögð á uppruna
lambsins og að hvaða leyti það sé
sérstakt. Hér er neysla á
lambakjöti mjög lítil, en Danir
borða rösk 70 kg af svínakjöti á
ári á mann en innan við eitt kg af
lambakjöti. Margir virðast
neikvæðir í garð lambakjötsins.
Ástæðan er sú að fólk hefur ffam
til þessa fengið lambakjöt með
"ullarbragði" - kjöt sem að mínu
mati er ffekar í ætt við ærkjöt.
Okkar bíður mikil vinna við að
kynna Dönum íslenskt lambakjöt,
en við metum það svo að átakið
sem nú er að fara í gang lofi mjög
góðu enda erum við nú að fá
aðgang að lykilmönnum í
kjötdeildum fjölmargra
stórverslana. Þessir menn geta
haft mikil áhrif á val
viðskiptavina."
Steinþór (t.h) ásamt Claus Kranker sem er framkvæmdastjóri Guldfoss
A/S í Danmörku. Á myndinni fyrir neðan eru þeir Siggi Hall, matreiðslu-
meistari, og danski sjónvarpskokkurinn Nikolaj.