Afmælisblað Hvítabandsins - 01.04.1945, Síða 15

Afmælisblað Hvítabandsins - 01.04.1945, Síða 15
Helga S. Þorgilsdóttir: Hvítabandið 50 ára Fyrir 50 árum var Hvítabandið stofnað hér í Reykjavík og mun það vera með elztu kvenfélögum borgarinnar. Stofnfundur þess var haldinn snemma á árinu 1895 og voru það merkiskonurnar Olafía Jóhannsdóttir og Þorbjörg Sveins- dóttir, er fyrir því stóðu, en þær báðar létu ýms mannúðar- og umbótamál til sín taka, eins og kunnugt er. I fyrstu var það bindindisfélag ein- göngu, en á fyrsta aðalfundi félagsins, 7. ág. 1895, mætti fulltrúi frá hinu amer- íska Kristilega alheims bindindisfélagi kvenna, Mrs. Ancermann, og voru þá lög félagsins samin í samræmi við þann fé- lagsskap og varð Hvítabandið ein deild úr því alþjóðafélagi. Voru sams konar deildir víða um lönd og stóð Hvítabandið í beinu sambandi við þennan félagsskap, borgaði árstillag til aðalfélagsins í Ameríku, átti fulltrúa á mótum í Ameríku, Englandi og víðar, keypti dönsk og norsk Hvítabandsblöð o. fl. Þess er jafnvel getið, að félagið fékk bréf frá Hvítabandi í Ástralíu og víðar að. Nú eru 60 deildir þessa félagsskapar víða um lönd og er það eitt með stærstu kvenfélagasamböndum heimsins. Starfa þessar deildir að ýmsum málum, t. d. bindindismálum, jafnrétti karla og kvenna, friðarhugsjónum, dýraverndun, fræðslumálum, alls konar líknarstarfsemi o. m. fl. Á fyrstu árum eftir að félagið var stofnað hér, er getið um að stofnaaðr hafi verið margar deildir út um land, t. d. ísafirði, Akureyri, Eyrarbakka og víðar. Ekki er vitað hversu fjölmennt var í félaginu, en í kringum aldamót voru 250 konur hér í Reykjavík og auk þess nokk- uð margir karlmenn, og mun sú tala hafa haldizt lengi. I fyrstu starfaði hér einnig barnadeild og voru í henni 150 böm um skeið. Á þessu má sjá, að félagsskapur- inn hefur verið allumsvifamikill, enda stjórnin í styrkum höndum, þar sem þær voru Olafía Jóhannsdóttir, Þorbjörg Sveinsdóttir og síðar Ingveldur Guð- mundsdóttir. Hafa þá oft verið fjörugir fundir og margar góðar hugmyndir ftram komið. Aðalviðfangsefnið var í fyrstu bind- indisstarfsemin og var það því hliðstætt Goodtemplarareglunni og markmiðið það sama. Árið 1901 sendi félagið áskorun til al- þingis um algert aðflutningsbann áfengra drykkja. Oft var talað um þörf fyrir sjó- mannastofu og um skeið lánaði ein fé- lagskonan, frú Kristín Símonardóttir, stofu, þar sem sjómenn komu saman til að skrifa bréf o. s. frv. Eftir að Sjó- mannaheimilið komst á fót, sendu félags- konur þangað jólagjafir. Svo djarfar voru konurnar og einlægar í trú sinni á málefnið, að þeim datt í hug að halda vörð um Hótel ísland og fleiri veitinga- hús á lokadaginn, til að varna sjómönn- um að fara þar inn og eyða kaupi sínu í áfengi. Hefur það að líkindum ekki þótt kvenlegt í þá daga og verið gert gys að, en um slíkt létu þær sér á sama standa. Var starfað í sambandi við stúkurnar fyrstu árin, en brátt drógst bindindis- starfsemin yfir til þeirra og Hvítabandið sneri sér að öðrum verkefnum. Fátækramálin lélT félagið sig miklu skipta og hafa þau alltaf verið aðalverk- HVÍTABANDIÐ 1 3

x

Afmælisblað Hvítabandsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Afmælisblað Hvítabandsins
https://timarit.is/publication/915

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.