Afmælisblað Hvítabandsins - 01.04.1945, Side 17
málum, eftir því sem við varð komið.
Sýndu þá margar konur í félaginu óvenju
dugnað og þrek, því að þá voru erfiðir
tímar og margir, sem trúðu ekki á mál-
efnið. Margt var lagt til málanna og ein
uppástunga kom um að byggja heimilið
inn við Laugarnar og kalla það Baðstað
íslands, en það var áður en farið var að
nota jarðhita að nokkru ráði.
Fjár var aflað með ýmsu móti og oft
og tíðum með mjög miklu erfiði og ósér-
plægni, eins og t. d. greiðasölunni á Þing-
völlum 1930, sem lýst er hér í ritinu á
öðrum stað. Þó var það hér, eins og oft
vill verða, að aðalstörfin lentu ekki á
fjöldanum, heldur fáum konum í félag-
inu.
Árið 1932 var svo byrjað að byggja,
en af ýmsum ástæðum, einkum í sam-
bandi við lántökur, þótti betra að breyta
fyrirkomulaginu og láta það vera sjúkra-
hús, sem stæði á eignarlóð. Uppkomið
kostaði húsið, með öllum áhöldum og
innbúi, miklu meira en nam eignum fé-
lagsins, en með sérstökum dugnaði þá-
verandi formanns og með aðstoð góðra
manna tókst að koma þessu klakklaust
yfir byrjunarörðugleikana, og má í þessu
sambandi minnast Haraldar Árnasonar
stórkaupmanns, og er óhætt að segja, að
án hans ágætu aðstoðar hefði það ekki
tekizt.
Nú hefur sjúkrahúsið starfað í 11 ár
og orðið vinsælt mjög, þó að margt megi
að upphaflegu fyrirkomulagi þess finna.
Vinsældir sínar hefur sjúkrahúsið eink-
um hlotið sökum þess, að til starfa þar
hefur valizt ágætt fólk og er þá fyrst að
nefna yfirlækninn, Kristin Bjömsson,
sem er hvorttveggja í senn, afbragðs
læknir og drengur hinn bezti. Þá má
einnig nefna yfirhjúkrunarkonuna, frk.
Elísabet Guðjohnsen, sem er með af-
brigðum vinsæl, og annað hjúkrunarlið,
eldhúsráðskonuna og síðast en ekki sízt
Bjarnfríður Einnrsdóttir
frk. Guðlaugu Bergsdóttur, sem séð hefur
um rekstur sjúkrahússins þessi árin með
ágætum og hefur þessu fólki í samein-
ingu tekizt að gera sjúkrahúsið einna lík-
ast góðu heimili.
Rekstrarhalli hefur orðið á starfsem-
inni seinni árin og mun svo vera um flest
sjúkrahús landsins. Hefur því bærinn
orðið að hlaupa undir bagga með félag-
inu og greitt hallann, enda þótt félagið
léti allt, er það aflaði, til stofnunarinnar.
Fannst því mörgum félagskonum eðliiegra
að bærinn ræki sjúkrahúsið, þar sem það
var félaginu ofurefli. Varð það úr, að
ákveðið var að gefa bænum sjúkrahúsið,
með öllu innbúi og áhöldum, gegn því,
að hann tæki að sér áhvílandi skuldir,
er námu ca. 140 þúsund kr. Var húsið af-
hent bænum til eignar um nýjár 1943.
Ekki er hægt að segja að mikil viður-
kenning fyrir gjöfinni hafi fram komið af
bæjarins hálfu og finnst mörgum félags-
konum hún vanmetin.
Óhætt mun þó að fullyrða, að hefði
félagið hætt sjúkrahússrekstri og selt
HVÍTABANDIÐ 1 5