Afmælisblað Hvítabandsins - 01.04.1945, Síða 26

Afmælisblað Hvítabandsins - 01.04.1945, Síða 26
Ingveldur Guðmundsdóttir Ingveldur Guðmundsdóttir var fædd ] 20. marz 1850 að Torfastöðum í Grafn- i ingi. Foreldrar hennar voru: Guðmundur Guðmundsson, bóndi þar, og kona hans, I Þuríður Pálsdóttir. Ingveldur ólst upp hjá foreldrum sín- um, en er hún var 19 ára, fór hún til ; Reykjavíkur til að frama sig eins og margar ungar stúlkur gerðu í þá daga. Var hún þá fyrst á myndarheimili þeirra hjóna Guðmundar og Valgerðar á Hóli hér í bæ. Var mikið starf fyrir höndum, því að Guðmundur hafði bátaútgerð og í margt vinnumanna. — Síðan komst hún á hið ágæta heimili Sigurðar lektors, Melsted; var kona hans, Astríður Mel- sted, frábær að reglusemi og myndar húsmóðir, enda þakkaði Ingveldur dvöl sinni á þessum nefndu heimilum margt hið bezta, sem hún hafði unmið, og voru þessar tvær húsfreyjur beztu vinkonur hennar meðan þeim entist aldur saman. Þegar Ingveldur fór frá lektor Mel- sted gekk hún að eiga Erlend Zakarías- son, vegavixmustjóra frá Bergi í Reykja- vík (það hús stendur nú ekki lengur). þeim hóp, sem ég kyntist mest, duttu mér í hug orð skáldsins: „Sólarlag lið- inn da glaugar í gulli þá.“ Þegar ég horfði á þessar fornvinur mínar, fannst mér eins og liðnir dagar mínir laugast gulli — gulli þeirra minn- inga, sem eru mér svo dýrmætar, minn- inganna um fórnarstarf, fórnarlund og ósegjanlega mikinn kærleika. Þær rninn- inigar eru mér fjársjóður, sem hvorki mölur né ryð fær grandað. Guð blessi Hvítabandið. Bjuggu þau þar til ársins 1892, en þá keyptu þau Norðurberg (nú Ingólfsstræti 23) og dvöldu þar til ársins 1903. Ingveldur hafði engrar bóklegrar menntunar notið í æsku; hafði einungis lært að lesa og lítils háttar að skrifa og svo auðvitað kverið sitt, en með elju og áhuga tókst henni að afla sér góðrar kunnáttu í dönsku og gat þar af leiðandi lesið meira og aflað sér margvíslegrar þekkingar á þann hátt, sem laut að áhuga- málum hennar. Keypti hún sér margt af kristilegum ritum á því máli. Kom það henni síðar að góðu haldi, er hún tók að sér forstöðu fyrir hinu kristilega bind- indis- og góðgerðafélagi Hvítabandinu (New White Ribbon). Hugur hennar hneigðist snemma að fé- lagsstarfi og einkum margvíslegu góð- gerðastarfi. Mun hún hafa verið ein al stofnendum góðtemplarastúkunnar Verð- andi, sem er elzta stúka landsins, enda var Góðtemplarareglan eini kristilegi fé- lagsskapurinn innan kirkjunnar íslenzku, sem nokkuð kvað að í þá daga, enda var sá félagsskapur að hennar skapi. Það var því ekki að undra, þótt hún yrði ein af stofnendum Hvítabandsins árið 1895. Hafði hún áður gengið í Hjálp- ræðisherinn og þaðan var henni komin djörfungin og starfsgleðin, sem einkenndu hana alla ævi. í Hvítabandið gekk hún ekki sízt vegna þess, að aðalmarkmið þess var vínbindindi, en það var hennar heit- asta áhugamál frá æsku. Var hún gjald- keri Hvítabandsins um nokkurra ára skeið og lét mikið til sín taka í stjóm félagsins. Ólafía Jóhannsdóttir var fyrsti formaður félagsins, og var til þess tekið, hversu vel þær fylgdust að málum. 24 HVÍTABANDIÐ

x

Afmælisblað Hvítabandsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Afmælisblað Hvítabandsins
https://timarit.is/publication/915

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.