Afmælisblað Hvítabandsins - 01.04.1945, Side 29

Afmælisblað Hvítabandsins - 01.04.1945, Side 29
Þingvallaför 1930 Ingveldur Einarsdóttir: Ég hef lofað fonnanni Hvítabandsins að skrifa eitthvað um dvöl nokkurra fé- lagskvenna á Þingvöllum um Alþingshá- tíðina 1930. En því miður er hætt við að efndir verði lélegar, mest vegna þess, að mörg atriði þeirrar farar eru mér nú gleymd. Mig minnir að skotið væri á aukafundi nálægt mánaðamótum maí—júní 1930. Víst er það, að tíminn var stuttur fyrir stafni, þegar Sigurbjörg Þorláksdóttir bar fram tillögu um það að Hvítabandið reyndi að hafa veitingar á Þingvöllum hátíðardagana, og legði hver kona sitt til að svo mætti verða. Hvort sem talað var um þetta fleira eða færra, var tillagan samþykkt, og undirbúningur hafinn. Ég átti þess lítinn kost að taka þátt í undir- búningi veitinganna, en nokkrar konur lögðu þar til vinnu og fé af mikilli alúð. Til Þingvalla komum við sumar einum degi fyrir hátíðahöldin, aðrar næstu daga, munum hafa verið 10—15, sem vorum þama á vegum félagsins til aðstoðar sem sjálfboðaliðar. Við höfðum stórt veitinga- tjald og trégrind í skúrformi, sem tjaldað var yfir, það var búrið okkar, eldaskáli og dagstofa í viðlögum. Svo var svefn- tjald fyrir þær, sem ekki höfðu sitt eigið tjald með fjölskyldu sinni. Við höfðum 6 eða 7 olíumaskínur og prímusa og dugði illa til sumar dag- stundir þegar mikils þurfti við. Má nærri geta að allt kostaði þetta mikla fyrirhöfn, fyrst að útvega tjöld, borð og bekki og áhöld öll, — sumt var keypt, sumt fengið að láni, — að ógleymdum öllum kökun- um, sem félagskonur bökuðu og fluttu með sér í blikkkössum. — Já, flutningur- inn allur, hann var ekkert smáræði, en þar varð Hvítabandinu vel til eins og oftar og komst að góðum kjörum fyrir at- beina þeirra kvenna, er fremst stóðu í flokki, og með hjálp góðkunningja. Ekki er því að leyna, að þessi för var gerð meira af kappi en forsjá, og furidum við það þegar „á hólminn kom“, að nokk- uð brast á að veitingarnar okkar væru svo ágætar sem skyldi, eða félaginu til sóma, eins og við hefðum óskað. Einkum voru það hitunartækin, sem reyndust ónóg þegar aðsókn var mikil. Einn dag- inn kom hópur manna og bað um kaffi „í hvelli“, en við vorum ekki viðbúnar og var kvartað um kalt kaffi og seina af- greiðslu, og gerði einhver hávær náungi dálítið veður af þessu. Frammistöðustúlk- an, sem var þreytt og svefnlítil, stóð ráðalaus og lá við gráti. Þegar minnst varði „datt allt í dúnalogn“ og í sama bili heyrðist föst og ákveðin rödd Sigur- bjargar Þorláksdóttur. Hún talaði hægt og rólega, en án allrar auðmýktar, eitt- hvað á þessa leið: „Við biðjum engan að drekka kaffi hér, þeir, sem eru óánægðir, geta farið. Ef menn hafa þegar keypt eitthvað, sem þeim ekki líkar, geta þeir fengið peninga sína aftur.“ Örfáir tjald- gestir fóru út „í fússi“, en flestir sátu ró- legir við samræður unz kaffið kom, drukku það og þökkuðu með virktum. Yfirleitt mættum við þakklæti, nær- gætni og hjálpsemi í þessu umstangi öllu. Ýmsir sögðu við mig síðar: „Gott var að koma í tjaldið ykkar.“ Nú fjölyrði ég ekki frekar um veitingar okkar og vinnubrögð. Heildarminningin um þessa yndislegu vordaga og nætur er mér dýrmæt eign, sem ekki verður frá mér tekin. Svo er um allar góðar endur- HVÍTABANDIÐ 27

x

Afmælisblað Hvítabandsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Afmælisblað Hvítabandsins
https://timarit.is/publication/915

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.