Afmælisblað Hvítabandsins - 01.04.1945, Blaðsíða 35

Afmælisblað Hvítabandsins - 01.04.1945, Blaðsíða 35
Afmælishátíð Hvítabandsins Félagið minntist 50 ára afmælis síns með samsæti, er haldið var í Oddfellow 22. febr. 1945. Hófið sátu 120 manns og hófst það með borðhaldi kl. IVz e. h. Meðal g'esta, er boðnir voru, mættu yfirlæknir sjúkrahússins, spítalaráðið, frú Ragnhildur Pétursdóttir, Háteigi, frú Aðalbjörg Sigurðardóttir, form. Bandal., ísl. kv., síra Sigurbj. A. Gíslason, Har. Árnason stórkaupm., frk. Hólmfríður Rósenkrans, fósturdætur frú Ingveldar sál. Guðmundsdóttur, forstöðukonu fél. o. fl. Formaður fél., Helga Þorgilsdóttir, setti mótið og bauð félagskonur og gest- ina velkomna. Sagði hún sögu félagsins í fáum dráttum eftir því sem fundar- bækur báru með sér. Er ræðan prentuð hér á öðrum Stað í ritinu. Þar næst var sungið kvæði, er Hugrún skáldkona orti í tilefni af afmælinu og gaf félaginu. Þá talaði síra Sigurbjörn Á. Gíslason og mælti hann fyrir minni félagsins, en hann var því manna kunnugastur, þar sem bæði konan hans og hann sjálfur störfuðu áður fyrr mikið fyrir félagið. Þar á eftir var sunginn Hvítabandssöng- urinn „Yfir landið lýsi sól“. Frk. Hólm- fríður Jónsdóttir kennslukona mælti fyrir minni Islands og lýðveldisins og var þar á eftir sungið: „Ég vil elska mitt land.“ Tvær konur, er verið höfðu á stofn- fundi félagsins fyrir 50 árum og síðan alltaf starfandi meðlimir þess fram á þennan dag, voru gerðar að heiðursfélög- um. Voru það frú Jóhanna Gestsdóttir á Stýrimannastíg 7 og Bjarnfríður Einars- dóttir á Bjarnarstíg 12. Afhenti form. heiðursskjölin, og gerði um leið stuttlega grein fyrir störfum þessara merku kvenna í þágu félagsins. Þá sungu fjórir menn (kvartett) nokk- ur lög og þótti þeim takast ágætlega. Frú Aðalbjörg Sigurðardóttir talaði þar næst og sagðist vel að venju. Talaði hún vinsamlega í garð félagsins og þakk- aði boðið fyrir hönd gestanna og óskaði félaginu alls góðs. Félaginu barst mikið af blómum og voru borðin fagurlega skreytt og veit- HVÍTABANDIÐ 33

x

Afmælisblað Hvítabandsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Afmælisblað Hvítabandsins
https://timarit.is/publication/915

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.