blaðið - 12.07.2005, Page 1
Grillmatur
og krabbamein
Hvað kostar
brúðkaupið?
Tveir veiðimenn
fengu maríulaxinn
-bls.12
Ritstjórnar- og auglýsingasími: 510 3700 • bladid@vbl.is
Bæjarlind 14-16
201 Kópavogur
Sími 510-3700
bladid@vbl.is
ISSN 1670-5947
FRJALST OG OHAÐ
ÞRIÐJUDAGUR, 12. JULI. 2005
46. TBL . 1. ÁRC. ÓKEYPIS ■ ■ ýk H w Madagascar frumsýnd
blaðið k jdt 1 Hk, ; •
Yfirheyrslur í Baugsmálinu:
r1 r1 -) fj/ m
ODj.y 7|1
blaöiöj*»
Frábærar viðtökur
66% lesa Blaðið
- bls. 2
V__
Viera til Juventus?
- bls. 22
Lítill verðmunur á
bensíni
- bls. 18
Álagning á Bónusbrauð
átti að borga snekkjuna
- Feðgunum ber ekki saman um eignarhaldið á Thee Viking
Þegar snekkjan Thee Viking var
keypt árið 1999 ráðgerði Jón Ásgeir
Jóhannesson, forstjóri Baugs, að
láta neytendur borga brúsann með
sérstakri álagningu á Bónusbrauði.
Þetta kemur fram í framburði Jóns
Geralds Sullenberger við skýrslu-
töku Ríkislögreglustjóra en upphaf
Baugsmálsins má að miklu rekja til
snekkjunnar og reksturs hennar. At-
hygli vekur einnig að feðgunum Jóni
Ásgeiri og Jóhannesi Jónssyni í Bón-
us ber alls ekki saman um eignarhald
snekkjunnar við frumyfirheyrslu
2002.
Þegar ákveðið var árið 1999 að
þeir feðgar og Jón Gerald myndu
kaupa þriðju snekkjuna saman kom
til umræðu hvernig fjármagna mætti
kaupin og rekstur hennar. Á þeim
tíma voru þeir Jón Ásgeir og Jón Ger-
ald ásamt fleirum að leggja drög að
stofnun bakarís, sem seinna hlaut
nafnið Nýbrauð, en það átti fyrst og
fremst að framleiða brauð fyrir stór-
markaði.
Fimmkall á brauðhleifinn
Hafi Jón Ásgeir lagt málið þannig
upp að Baugur myndi hætta að kaupa
brauð merkt merki Baugs-samsteyp-
unnar frá Myllunni og láta Nýbrauð
sjá um þá framleiðslu. Þá hafi hann
einnig talað um að selja brauðin á 60
krónur og leggja 5 krónur ofan á verð-
ið á hverju brauði til að standa undir
afborgunum og rekstri snekkjunnar
sem þeir höfðu í hyggju að kaupa.
Þeir Jónamir áttu hvor sín 10%
í fyrirtækinu en Jón Gerald leppaði
fyrir nafna sinn enda hefði orkað tví-
mælis að hann hefði átt hagsmuna
að gæta bæði fyrir kaupanda og selj-
anda brauðsins. Á þeim tíma var þó
hvíslað um að þannig kynni að vera
í pottinn búið en framkvæmdastjóri
Nýbrauða þvertók fyrir það í fjölmiðl-
um að svo væri.
Feðga greinir á um eignarhald
Ein helsta ásökunin sem Baugs-rann-
sóknin byggir á er að Baugsmenn
hafi í raun látið fyrirtæki sem þeir
áttu með öðram, m.a. almennings-
hlutafélag, greiða fyrir einkaneyslu
sína og önnur gæði svo sem umrædd-
ar snekkjur. Eignarhald þeirra skipt-
ir því verulegu máli.
Legið hefur fyrir að snekkjurnar
voru skráðar á nafn Jóns Geralds
Sullenberger en deilt er um hvort
það hafi aðeins verið í orði eða ekki.
Athyglisvert er því að við frumyfir-
heyrslur yfir feðgunum Jóni Ásgeiri
og Jóhannesi greinir þá verulega á
um það atriði. í yfirheyrslu yfir Jó-
hannesi í Bónus hinn 29. ágúst 2002
segir hann að eignarhlutdeild í bátn-
um sé óljós en telur „ekki fjarri lagi
að telja að Gaumur hf. eigi u.þ.b. 80%
í bátnum." Vitnisburður Rristínar
Jóhannesdóttur styður þá skoðun
fóður hennar, a.m.k. að því leyti að
fjármunir til kaupanna og reksturs
bátsins hafi komið frá Gaumi, en það
er fjárfestingarfélag fjölskyldunnar.
Jón Ásgeir segir á hinn bóginn í
frumyfirheyrslunni „alveg ljóst að
þeir feðgar hafi aldrei átt neitt í þess-
um báti" og tiltekur að hann sé skráð-
ur á nafna sinn. Hins vegar hafi það
komið til tals seinna að Gaumur eign-
aðist bátinn upp í skuldir Jóns Ger-
alds við félagið, en að sögn Jóns Ás-
geirs voru umræddar greiðslur í raun
lán Gaums til Jóns Geralds, sem sá
síðarnefndi neitar alfarið.
Burðarás
fjárfestir í
sænsku fjár-
hættuspilafyr-
irtæki
Burðarás hf. JM
hefur fjárfest
í sænska get-
rauna-ogleikja-
f y r i r t æ k i n u l
Cherryföretag- EH
enAB (Cherry). Bjp|
Burðarás á
nú hlutabréf Pontus Lindwall, for-
sem samsvara stjóri Cherryföretagen
25,06% af heildarhlutafé fyrirtækis-
ins en markaðsvirði þeirra er u.þ.b.
2,3 milljarðar. Samningur um kaup-
in var undirritaður í gærmorgun.
Ný tegund veðbanka
Cherry er leikjafyrirtæki sem sérhæf-
ir sig í getrauna- og fjárhættuspil-
um. Það hefur verið starfrækt í um
§óra áratugi og hefur í mörg ár ver-
ið leiðandi einkafyrirtæki á sænska
íjárhættuspilamarkaðinum. Stór
hluti starfseminnar hefur snúið að
spilakössum sem staðsettir eru víða
í Skandinavíu m.a. á veitingastöðum
og um borð í ferjum. Nýverið hefur
Cherry að auki fjárfest í getrauna-
síðum á internetinu sem bjóða þjón-
ustu sem er gerólík því sem flestir
íslendingar þekkja. Þar er t.d. hægt
að veðja á úrslit óvenju margra
opinberra kappleikja og þar með tal-
ið leikja Landsbankadeildarinnar,
ffammistöðu einstakra leikmanna og
úrslit skákmóta.
Ekki horft til íslands
„Þetta er hratt vaxandi, arðbært fyrir-
tæki og miðað við önnur sambærileg
fyrirtæki er verðlagið á bréfunum
hagstætt” segir Friðrik Jóhannsson,
forstjóri Burðaráss aðspurður um
kaupin. „Það má segja að reksturinn
sé þrískiptur. Fyrirtækið þróar hug-
búnað fyrir leikja- og veðmálastarf-
semi, heldur úti spilakössum og rekur
getraunaheimasíður.” Þrátt fyrir að
intemetstarfsemi, á borð við þá sem
Cherry rekur, þekkist ekki á íslensk-
um fyrirtækjamarkaði telur Friðrik
ekki líklegt að rekstur Cherry verði
tengdur íslandi sérstaklega.
Pontus Lindwall, forstjóri Cherry,
segist mjög ánægður með samning-
inn. „Það er nokkuð augljóst að við
erum áhugavert fyrirtæki þar sem við
erum í hratt vaxandi viðskiptum og
höfum stækkað reksturinn mikið und-
anfarið. Tíminn leiðir í ljós hvaða áhrif
þessi ný afstöðnu kaup munu hafa og
við þurfum auðvitað tíma til að aðlaga
fyrirtækið nýjum eigendum.” Pontus
segir það alltaf áhugavert þegar nýtt
fólk kemur að rekstrinum og að hann
hlakki til að heyra og sjá hugmyndir
þeirra mn fyrirtækið. „í augnablikinu
horfum við til heimsmarkaðsins með
Evrópu efst í huga. Við lítum ekki
sérstaklega til íslensks markaðar en
á getraunaheimasíðum okkar má þó
finna margt sem snýr beint að íslend-
ingum, s.s. ýmsa möguleika á að veðja
á úrslit íslenskra kappleikja.”
Hafnar eru gagngerar endurbætur á húsnæði Menntaskólans í Reykjavík. Um er að ræða fyrsta áfangann af þremur en í þeim
fyrsta verður stigahús Casa Nova tekið í gegn. Að sögn Yngva Péturssonar, rektors skólans, verður nánast allt sem hægt er að
endurnýja lagað.