blaðið - 12.07.2005, Side 2
2 innlent
;
þriðjudagur, 12. júlí 2005 I blaðið
Ný fjölmiölakönnun Gallup:
Tæplega 70% íbúa höfuðborgar-
svæðisins lesa Blaöiö
-Lestur Blaðsins á svæðinu eftir fjögurra vikna útgáfu
rétt undir Morgunblaðinu
Blaðið er ótvíræður sigurvegari nýrr-
ar íjölmiðlakönnunar Gallup sem birt
var í gær. Samkvæmt könnuninni
höfðu 66,3% aðspurðra á höfuðborgar-
svæðinu einhvem tímann lesið Blað-
ið í könnunarvikunni, sem var 4,-10.
júní. Meðallestur á hvert blað mældist
44,4%. Blaðinu er dreift á höfuðborg-
arsvæðinu í um 80 þúsund eintökum
og því er það eini marktæki mæli-
kvarðinn á lestur þess. Athygli vekur
að þessi mikli lestur mælist þrátt fyr-
ir að Blaðið hafi einungis verið búið
að koma út í 4 vikur þegar könnunin
var gerð. Til samanburðar má nefna
að meðallestur Morgunblaðsins á höf-
uðborgarsvæðinu í könnunarvikunni
mældist 53,6%, lestur DV 16,0% og
lestur Fréttablsðsins 73%. Blaðið
virðist höfða jafnt til flestra aldurs-
hópa. Athygli vekur að talsvert var
um frídreifingu á DV og Morgunblað-
inu í könnunarvikunni. Þannig sögð-
ust 4,6% aðspurðra vera með ókeyp-
is áskrift af DV í umræddri viku
og 5,1% lesenda Morgunblaðsins.
Úrtak Gallup í þessari könnun var
1230 manns og var svarhlutfall um
51%. Sigurður G Guðjónsson stjórn-
arformaður Blaðsins segir að þessi
niðurstaða sýni að full þörf hafi ver-
ið á nýju ókeypis blaði. Enn frekari
stækkun á útbreiðslusvæði Blaðsins
sé í farvatninu og verði fyrstu áfang-
ar kynntir á næstu dögum. Stefnt sé
að því að Blaðið verði útbreiddasta
og mest lesna blað landsins innan
skamms tíma.
Lestur á höfuðborgarsvæðinu
Meðallestur
Uppsafnað
Blaðið
DV 16,0%
Morgunblaðið
Fréttablaðið
44,4%
Blaðið
66,3%
53,6%
73,0%
Morgunblaðið
Fréttablaðið
“i---1--1—:---1—i----1
20 30 40 50 60 70 80
92,9%
1--1—i—i—i—i—i—i—r
10 20 30 40 50 60 70 80 90 100
RUV með 9 af 10 vinsælustu
þættina í sjónvarpi
Ríkissjónvarpið má vel við una í
nýrri fjölmiðlakönnun Gallup. RÚV
var með 9 af 10 vinsælustu þættina
í sjónvarpi og eru fréttir RÚV vinsæl-
asta efnið eins og svo oft áður, 40,7%
áhorf. Rétt er þó að taka ffam að þrír
landsleikir í fótbolta og handbolta
koma næstir en þar er um staka
atburði að ræða. Athygli vekur að
fréttir Stöðvar 2 mælast aðeins með
25,3% áhorf og þannig munar nú
aðeins um einu prósenti á fféttum
Stöðvar 2, tíufféttum RÚV og þættin-
um Heimi farfuglanna á sömu stöð.
Þá virðast vinsældir Strákanna hafa
dalað en þeir mælast nú með 14,6%
áhorf. CSI Miami er vinsælasti þátt-
ur Skjás 1 með 16,7% áhorf og síðan
kemur Law and order með 15,2%.
vínkœlar
Verð 25.000 kr. 1 1
ís-hús Íð 566 6000
RUV
RUV
RUV
RUV
RUV
RUV
RUV
Fréttir
ísland - Svíþjóð (handbolti)
ísland - Malta (fótbolti)
ísland - Ungverjaland (fótbolti)
Aðþrengdar eiginkonur
Lífsháski (Lost)
Út og suður
Stöð 2 Fréttir
RUV Tíufréttir
RUV Heimur farfuglanna
40,7%
35,5%
33,8%
33,6%
31,8%
31,7%
30,2%
25,3%
24,4%
24,4%
10 20 30 40 50
Ný stjórn FL Group:
Stenst ekki stjórnunarstefnu
félagsins eða tilmæli
Kauphallar
Ný stjóm FL Group, sem endurspegl-
ar breytt eignarhald félagsins og deil-
ur um stjórnunarhætti innan þess, er
ekki í samræmi við stefnu félagsins
hvað stjórnunarhætti varðar. Þetta
kemur fram í ársskýrslu félagsins.
Þar er tiltekið að stjórn félagsins
leggi áherslu á að viðhalda góðum
stjórnunarháttum og tíundað hvem-
ig það sé gert. Er sérstaklega rætt
um verkaskiptingu og eins hvernig
val á stjórnarmönnum skuli vera í
samræmi við tilmæli Kauphallarinn-
ar þess efnis.
„Stjómin hefur sett sér ítarlegar
starfsreglur þar sem valdsvið stjórnar
er skilgreint og verksvið hennar gagn-
vart forstjóra," segir í ársskýrslunni.
Deilurnar innan stjórnar spruttu ein-
mitt af ágreiningi um stjórnun, hlut-
verk hins starfandi stjórnarformanns
Hannesar Smárasonar og samráð við
einstaka stjórnarmenn, sérstaklega
hvað varðaði fjárfestingarstefnu fé-
lagsins.
Ennfremur er í ársskýrslunni vik-
ið að samsetningu stjómarinnar:
„Stjóm félagsins uppfyllir skilyrði
um óhæði samkvæmt skilgreiningu í
grein 2.6 í Leiðbeiningum um stjóm-
arhætti fyrirtækja" en það eru til-
mæli frá Kauphöll íslands sem beint
er til allra félaga, sem skráð eru í
Kauphöllinni, að fylgja.
Skylda stjómarinnar er að hafa
eftirlit með þeim sem annast dag-
legan rekstur félagsins. Því er talið
æskilegt að meirihluta stjómar skipi
óháðir stjórnarmenn og að innan
þess meirihluta séu að minnsta kosti
tveir stjómarmenn sem em óháðir
stórum hluthöfum í fyrirtækinu sé
miðað við fimm manna stjórn. Stór
hluthafi er hver sá sem ræður yfir að
minnsta kosti 10% af heildarhlutafé í
félaginu, einn eða í samstarfi við sér
nótengda aðilþ.
Til þess aðfteljast óháður má við-
komandi t.d. ekki eiga verulega mikið
undir eignarhlut sínum, vera starfs-
maður eða standa í verulegum við-
skiptum við félagið, tengjast æðstu
stjórnendum þess fjölskylduböndum
eða hafa annars konar eigna- eða
stjórnunarvensl.
Eins og sakir standa stenst enginn
stjórnarmaður skilyrði tilmælanna
og hafa kaupsýslumenn lýst áhyggj-
um sínum af því. Þá hafa reyndir
menn í viðskiptalífinu lýst miHmn
efasemdum um veru þeirra Magnús-
ar Ármanns og Sigurðar Bollasonar
í stjórninni. „Þeir eru sjálfsagt liprir
samningamenn eins og dæmin sanna
en þeir hafa ’enga reynslu af rekstri
sem þessum", sagði kaupsýslumaður
sem þekkir vel til FL Group en á ekki
hagsmuna að gæta þar.
Auglýsingar
510 3744
Sumartilboð!
(3 Heiðskírt 0Léttský)a6 ^ Skýjaö £ Alskýjað
Rignlng, litilsháttar // Hignlng
í'fc i
Súld *'!'Snjókoma
*
_____________ r
Vöndud rafmagnskerra
Sterkbyggd og afar einföld
I notkun. Þessl aðstodar þlg að
fara hraðar yflr og alla leið.
Verð: 23.920,-
Verð aður 29.900.-
YHole in One
1 OOLFVERSLUN
r Opnunartími: \
Mén - fös .10-19
Laugardaga ..10-16
v 5unnudaga ..12-16
201 Kópavogur • Sirní: 577 4040 • ww’vv.holeinone.i
Amsterdam
Barcelona
Berlín
Chicago
Frankfurt
Hamborg
Helsinki
Kaupmannahöfn
London
Madrid
Mallorka
Montreal
New York
Orlando
Osló
Parfs
Stokkhólmur
Þórshöfn
Vín
Algarve
Dublln
Glasgow
23
26
27
22
26
29
27
28
21
33
26
21
23
26
28
23
30
12
19
26
22
23
*f (3
CTiqo
\^~j Slydda Snjóél ^~j
~®
Skúr
o*
11°
14'
16°
r*\Q°
^9°
—f
Veðurhorfur í dag
Veðursíminn 32 0600
Byggt á upplýslngum fró Veðurstofu fslands
w
11
14°
f morgun
16°