blaðið - 12.07.2005, Blaðsíða 4
4 innlent
þriðjudagur, 12. júlí 2005 I blaðið
Nýr fram-
kvæmdastjóri
Samson
Birgir Már Ragnarsson er nýr fram-
kvæmdastjóri eignarhaldsfélagsins
Samson en það á um 45% hlut í
Landsbanka íslands. Birgir Már er
á 31. aldursári og er menntaður lög-
fræðingur ffá Háskóla íslands. Hann
var meðeigandi í Lex-Nestor lög-
mannsstofunni og starfaði þar sem
lögmaður en áður vann hann m.a.
hjá iðnaðar- og viðskiptaráðuneytinu
og Fjármálaeftirlitinu. Birgir Már er
aðjúnkt við Lagadeild Háskólans í
Reykjavík.
Heimsókn Halldórs
Ásgrímssonar til Japans:
Eflum áhuga á
gagnkvæmum
fjárfestingum
í gær átti Halldór Ásgrímsson, for-
sætisráðherra, fund með Junichiro
Koizumi, kollega sínum ffá Japan.
Þar ítrekaði hann meðal annars mik-
ilvægi þess að ljúka við tvísköttunar-
samning milli ríkjanna í því skyni að
efla áhuga á gagnkvæmum fjárfest-
ingum. Þá voru viðskipti ríkjanna
rædd og hugsanlegar leiðir til þess
að auka þau. í því samhengi voru
einnig ræddar leiðir til þess að liðka
fyrir gerð loftferðasamnings milli fs-
lands og Japans. Þá viðraði Halldór
einnig hugmyndir um gerð fríverslun-
arsamnings.
Halldór undirstrikaði mikilvægi
Japansmarkaðar fyrir áffamhald-
andi hvalveiðar í vísindaskyni við ís-
land en Koizumi var fyrri til þess að
ræða það málefni.
Á næsta ári verður hálf öld liðin
frá því að ríkin tóku upp stjórnmála-
samband og bauð Halldór Ásgríms-
son Koizumi af því tilefni í heimsókn
til íslands.
Ók á ofsahraða og varð stúlku að bana
Eins mánaðar fangelsi
-skilorðsbundið
Nítján ára maður hefur verið dæmd-
ur í eins mánaðar skilorðsbundið
fangelsi fyrir að aka gáleysislega og
yfir leyfilegum hámarkshraða fyrir
um ári síðan með þeim afleiðingum
að stúlka á fjórtánda aldursári lést.
Stúlkan á að hafa hlaupið í veg fyr-
ir bílinn á eftir hundi sínum með
áðurgreindum afleiðingum. Viður-
kenndi maðurinn fyrir héraðsdómi
Vestfjarða að hafa verið á um 150
kílómetra hraða þegar hann varð var
við stúlkuna en að hann hafi hægt
á ferðinni með því að „tylla aðeins á
hemlana".
Engarskaðabætur
Sérfræðingur sem fenginn var til þess
að reikna hraða bflsins við árekst-
urinn komst að þeirri niðurstöðu að
hraði bflsins hefði ekki verið minni
en 112 kflómetrar á klukkustund.
Hámarkshraði á þeim stað þar sem
slysið varð er 90 kflómetrar á klukku-
stund en stúlkan er talin hafa látist
samstundis. Fóru foreldrar hennar
fram á þijár milljónir króna í skaða-
bætur en dómurinn féllst ekki á það
að um ásetning eða stórfellt gáleysi
hafi verið að ræða svo bótakröfunni
var vísað frá.
Missir ökuréttindi í hálft ár
Auk skilorðsbundins fangelsis missir
ökumaðurinn ökuréttindi í sex mánuði.
Þá þarf hann að greiða sakarkostnað.
Enn eitt lyfjaránið
Tvö rán á tveimur dögum
Um hádegisbilið í gær réðist mað-
ur inn í verslun Lyf og heilsu í húsi
Domus Medica við Egilsgötu og stal
þaðan lyfseðilsskyldum lyfjum. Mað-
urinn hafði hatt á höfði sér og huldi
andlit sitt ennfremur með klút. Hann
handlék hníf þótt hann hafi ekki ógn-
að fólki með honum. Þegar Blaðið
fór í prentun höfðu laganna verðir
ekki enn fundið manninn en honum
er lýst sem lágvöxnum og grönnum
á þrítugsaldri. Ekki hefur fengist
staðfest hversu mikið hann hafði upp
úr krafsinu en samkvæmt uppýsing-
um lögreglunnar stökk hann yfir af-
greiðsluborðið, rótaði í lyfjaskúffu og
hafði eitthvað með sér.
Þetta er annað lyfjaránið á jafn-
mörgum dögum en þeir sem rændu
Lyf og heilsu Austurveri á sunnudag
voru enn í haldi lögreglunnar þegar
ránið var framið í gær.
Vopnuð rán á lyfseðilsskyldum lyfjum eru framin nánast vikulega
um þessar mundir
Blaðið/Gúndi
Þórarinn Tyrfingsson:
Varast ber að oftúlka fjölgun lyfjarána
Þórarinn Tyrfingsson, yfirlæknir á
Vogi, varar við því að fólk oftúlki þá
fjölgun sem orðið hefur á l}djaránum
það sem af er sumri. „Þetta er munst-
ur sem maður sér oft á þessum tíma
þar sem fólk er svolítið á útigangi
þegar veðrið býður upp á það“, segir
Þórarinn og bendir á að þetta hafi
áður sést á þessum tíma árs. JÞetta
er samt sem áður merki um það að
til er stór hópur fólks sem er háður
læknadópi."
Örþrifaráð
Þórarinn segir að auðvitað
sé það þannig að þegar efni
vantar á markaðinn grípi
þetta unga og ráðvillta fólk
til örþrifaráða. „í fyrsta lagi
segir þetta okkur að það er
hópur fólks háður þessum
læknalyfjum. Lyfjamisnotk-
un hefur aukist snarlega eins
og við höfum greint ffá“, seg-
ir hann. Þórarinn segir ennffemur að
fiklarnir leiti sér helst að læknadópi
Ég vona að
þetta skili
fólki í með-
ferð á Vogí
og þá aðallega morfini.
„Þegar aðhald kem-
ur, væntanlega vegna
aukinnar umræðu og
ígripa landlæknis, má
búast við þrengingu á
markaðinum eins og
virðist vera núna”.
UTSALA
Enn meiri verðlækkun
40-70%
afsláttur
Skili fólki í meðferð
Aðspurður segist Þór-
arinn vona að framboð hafi minnkað
vegna tilkynningar landlæknis um
aukið eftirlit með útgáfum lyfseðla.
„Fyrst og fremst vona ég að þetta
skili þessu fólki í meðferð hingað til
mín á Vogi.“
Refsingar við
ofsaakstri
verði þyngdar
Ágúst Mogensen, ffamkvæmdastjóri
Rannsóknarnefndar umferðarslysa,
leggur til að refsingar fyrir ofsa-
akstri verði þyngdar. „Þú er ég ekki
að tala um það hvernig menn eru
dæmdir í banaslysum heldur viður-
lög við ofsaakstri almennt“, segir
hann. „Við viljum að það verði gerður
meiri greinarmunur á annars vegar
hraðakstursbrotum, þar sem menn
keyra 10 til 20 kílómetrum hraðar en
lög leyfa og hins vegar svokölluðum
ofsaakstri þar sem ökumenn fara allt
að tvöfalt hraðar en leyfilegt er.“
Fari á námskeið
Ágúst segir að kanna ætti það að
svipting ökuleyfis yrði lengri og
hærri sektir þegar um ofsaakstur er
að ræða. Þá verði það einnig skoðað
hvort fysilegt væri að þeir sem brjóta
svona af sér þyrftu að taka ökupróf-
ið aftur eða fara á einhvers konar
námskeið. „Það þyrfti að staldra við í
tilfellum þessara ökumanna og velta
fyrir sér hvort þeir viti hvað þeir eru
að gera og hugsanlegar afleiðingar
þess.“
Harðurárekst-
ur tveggja
vörubíla
Tveir vörubílar rákust saman í hörð-
um árekstri í Húnaþingi um hádegis-
bilið í gær. Ökumenn bílanna slösuð-
ust lítillega en þó ekki jafnilla og á
horfði í fyrstu.
Slysið varð með þeim hætti að
annar vörubfllinn fór yfir á rangan
vegarhelming til þess að taka fram
úr bílum sem höfðu hægt á sér til að
gefa rútu færi á að beygja yfir á hlið-
arveg. Áreksturinn varð harkalegur
þar sem vörubílarnir voru á sömu
akreininni en komu hvor út sinni
áttinni. Samkvæmt upplýsingum frá
lögreglunni á Blönduósi fótbrotnaði
annar ökumaðurinn. Að svo stöddu
er ekki hægt að segja frekar um af-
leiðingu eða orsök slyssins þar sem
það er í rannsókn.
Einhveijar skemmdir urðu á fólks-
bflnum sem tekið var fram úr en fólk-
ið í honum sakaði ekki.
Lyf og heilsa:
Öryggisgæsla verður aukin
KKINölAN Ö-12
Síml 566 6668
Hjalti Sölvason, rekstrarstjóri Lyf
og heilsu, kann enga skýringu á því
hvers vegna verslanir Lyf og heilsu
verða oft fyrir barðinu á ræningjum.
„Hér erum við með mjög góða örygg-
isgæslu og myndavélakerfi. Maður
getur samt ekki annað en vorkennt
þeim sem standa að þessum ránum
því þetta er greinilega ógæfufólk."
Mildi að enginn hefur slasast
Hann segir að því miður sé einhver
holskefla í ránum á apótekum en sem
betur fer hafi starfsmenn brugðist al-
veg hárrétt við og enginn slasast. Þá
hafi verið boðið upp á fyrstu áfalla-
hjálp fyrir þá sem lent hafi í ránun-
um. Nú hefur verið sett af stað ferli
þar sem farið verður yfir öll öryggis-
mál verslananna í samráði við lög-
reglu. Hjalti hrósar vinnubrögðum
lögreglunnar og þakkar þeim fyrir að
oftast hafi þessi rán verið upplýst.
Starfsfólk bregst rétt við
„Við höfum verið með fræðslu fyrir
okkar starfsmenn um það hvernig þeir
skuli haga sér í vopnuðum ránum og
það hefur skilað sér“, segir Hjalti en
nefnir að vissulega valdi þetta mikl-
um ugg, sérstaklega í ljósi þess að
þarna er starfsfólki ógnað. Hann seg-
ir að sem betur fer sé starfsfólk hans
duglegt og láti ekki slá sig út af lag-
inu. „En klárlega veldur þetta okkur
áhyggjum af öryggi okkar starfsfólks.
Öryggi starfsmannanna er númer 1,2
og 3 og gengur alltaf fyrir.“
HÁDEGISVERÐARTILBOÐ 690 ."Blandið saman alit að 3 réttum úr hitaborði
30 % AFSLÁTTUR AF HEILUM SKAMMTI í HITAB0RÐINU
Sóltún 3 Bæjarlind 14-16
S 562 9060 S 564 6111