blaðið - 12.07.2005, Blaðsíða 6
6 innlent
þriðjudagur, 12. júlí 2005 I blaðið
ESB styrkir rannsóknir íslensks fiskifræðings
Rannsóknir á ástandi
fisks í stað talningar
Evrópusambandið hefur tryggt fjár-
veitingu til rannsókna sem hérlend-
is hafa verið kenndar við Jón Krist-
jánsson fiskifræðing. Kenningar
Jóns ganga út á að taka beri tillit til
ástands fiskstofna í stað þess að telja
fiska eins og tíðkast hefur hérlendis.
Jón hefur verið að rannsaka feng-
inn fyrir norður-írska sjómannasam-
bandið og útgerðarmannasambandið
þar í landi til þess að gefa álit á fisk-
stofnum í írska hafinu. „í framhaldi af
því kynnti ég niðurstöður á ráðstefnu
í írlandi 2003. Það hafði í fór með sér
að þeir vildu halda þessu verkefni
áfram og sóttu um styrk til ESB sem
nú hefur fengist", segir Jón.
Tekur mark á nýjum leiðum
„ESB er farið að taka mark á manni
þar sem þessi hefðbundna fiskveiði-
stefna með kvótakerfi og skömmtun
er búin að setja allan fiskiðnaðinn
í þrot í Evrópu. Menn eru famir
að leita nýrra leiða og þetta er ein
þeirra. Ég er búinn að tala um þetta
við Hafró í áratugi það er bara ekkert
hlustað. Þegar kvótakerfið kom 1983
varaði ég og aðrir við því að ef menn
ætluðu að skera niður þá næðum við
aldrei að rétta við aftur. Þetta hefur
alveg staðist", segir Jón.
Spurning um fæðuframboð
„Það er farið að hlusta á það sem við
‘ALTERNATIVE
SCIENCE’ PLAN
FORIRISH SEA
An^o Morth Mrti FPO launchM gnu roots vonlura - mxnt pag* 2
Forsíðufrétt Fishing News segir frá því
að ESB styrkir rannsóknir byggðar á
kenningum Jóns Kristjánssonar fiski-
fræðings.
erum að segja héma heima að það
þyrfti að taka meira tillit til ástands
fiskanna - holdafars, kynþroska,
vaxtar og annars - í stað þess að láta
duga að telja fiskana endalaust. Til
þess að nýta fiskstofna eins og aðra
dýrastofna þá er það lykilatriði að
vöxturinn sé í lagi. Ef við erum með
fisk sem sveltur þýðir lítið að veiða
hann þar sem það gefur ekkert af
sér. Ef stofninn er stór er vöxturinn
tiltölulega lítiir, segir Jón og nefnir
að í raun sé málið sáraeinfalt. Þegar
stofn er stór er ekki nægilegt fæði
handa öllum fiskunum í stofninum
og þannig rýrna gæði fisksins. „Þessi
friðunaraðgerð og að geyma fiskinn í
sjónum gengur þvert á alla náttúru-
fræði“, bætir hann við og vísar þar
með til þeirra aðferða sem Hafrcum-
sóknarstofnun hefur notað hér á
landi.
Gengur ekki á stofninn
Aðspurður um það hvort að með aukn-
um fiskveiðum gangi ekki of mikið á
stofninn segir Jón að það sé ekki satt.
„Það er nú þannig í fiskveiðum að ef
það hættir að veiðast þá hætta menn
því þá borgar sig ekki lengur að
veiða. Svo það er langt í að slíkt ger-
ist. í gamla daga var ekki neitt vesen
þegar allir veiddu eins og þeir gátu“,
segir hann. ■
EUbackingforfirst
‘atternative’ scheme
- green light for Irish Sea research project
__ I !§*§?§
3Ö5
pp jgSKS |
Stjórnarmenn í almenningshlutafélaginu Baugi:
Gefa ekkert út á traustsyfirlýsingu
Fyrrverandi stjórnarmenn í al-
menningshlutafélaginu Baugi vilja
ekkert ræða Baugsmálið opinber-
lega að sinni. Þeir vilja ekki heldur
taka undir traustsyfirlýsingu þá,
sem stjórn Baugs Group sendi frá
sér fyrir skömmu og segjast ekki
hafa forsendur til þess að ræða um
traust sitt á Jóni Ásgeiri, hvorki af
né á.
Eftir að Ríkislögreglustjóri gaf
út ákærur á hendur Jóni Ásgeiri
Jóhannessyni og fimm öðrum sak-
borningum í hinu svonefnda Baugs-
máli sendi stjórn Baugs Group frá
sér fréttatilkynningu þar sem vísað
var til samþykkta aðalfundar fé-
lagsins í vor og áréttuð traustsyfir-
lýsing á Jón Ásgeir og alla sakborn-
inga málsins.
Margir hafa á hinn bóginn ef-
ast um gildi yfirlýsingarinnar þar
sem Jón Ásgeir og fjölskylda eigi
um 70% í Baugi Group og stjórnar-
menn í raun starfsmenn aðalsak-
borninga. Enn fremur er bent á að
hér ræði alls ekki um sama félagið,
Baugur hf. hafi verið almennings-
hlutafélag þar sem Bónusfjölskyld-
an hafi lengst af ráðið um fjórðungi
hluta.
Allir stjórnarmenn yfirheyrðir
Af þessu tilefni sneri Blaðið sér
til fyrrum stjórnarmanna í Baugi,
sem ekki tengjast Baugi Group nú,
en voru stjórnarmenn almennings-
hlutafélagsins á þeim tíma, sem ætl-
uð brot eru sögð hafa verið framin
á.
Óskar Magnússon, fyrrverandi
stjórnarformaður Baugs, kvaðst
engu vilja svara um málefni Baugs,
hvorki um yfirlýsingu þessa eða mál-
ið, sem væri tilefhi hennar.
Guðfinna Bjarnadóttir, rektor
Háskólans í Reykjavík, tók í sama
streng og kvaðst ekki vilj a ræða mál-
efni Baugs að sinni.
Þorgeir Baldursson, forstjóri
Prentsmiðjunnar Odda, kvaðst ekki
hafa neinar forsendur til þess að
taka undir traustsyfirlýsinguna eða
mótmæla henni, hann þekkti ekki
til ákæruatriða.
Allir stjórnarmenn í almennings-
hlutafélaginu Baugi hafa verið
kvaddir til yfirheyrslu vegna rann-
sóknar Baugsmálsins enda hafa
stjórnarmenn almenningshlutafé-
laga ríka eftirlitsskyldu með starfs-
mönnum þess og meðferð fjármuna
og eigna. Þar mun hafa komið fram
að á sínum tíma hafi stjórnin vissu-
lega haft áhyggjur af mögulegum
hagsmunaárekstri vegna starfa
Jóns Ásgeir fyrir ýmis fjölskyldufyr-
irtæki samhliða störfum hans fyrir
almenningshlutafélagið. Á þeim
tíma hafi menn yfirleitt fallist á
skýringar Jóns Ásgeirs í þeim efn-
um en einnig hafi komið til þess að
Baugur hafi leyst til sín fyrirtæki í
eigu Bónusfjölskyldunnar, beinlínis
til þess að eyða tali um að þar sæti
forstjórinn beggja vegna borðs.
Reykjavík:
Hópuppsagnir á gæslu-
völlum borgarinnar
Öllum starfskonum á gæsluvöllum
Reykjavíkurborgar, alls 22 talsins, var
sagt upp störfum um síðustu mánaða-
mót. Um er að ræða konur í láglauna-
störfum sem flestar eru á miðjum aldri
og eiga að baki áratuga starf á gæslu-
völlunum í þágu yngstu borgaranna.
Eru þær afar ósáttar við hvemig stað-
ið hefur verið að uppsögnum þeirra af
hálfu borgarinnar.
Frá og með 1. september 2005 verð-
ur gæsluvöllunum lokað og störf starfs-
manna þar lögð niður. Starfslok starfs-
fólks verða því 1. september og verða
þeim greidd laun á uppsagnarfresti skv.
réttindum í 3-6 mánuði frá þeim tíma
Áður en til hópuppsagnanna kom
var því heitið að ef svo færi að starf-
semi gæsluvaUanna yrði lögð niður
yrði öllum starfsmönnum boðin önnur
sambærileg störf hjá borginni við hæfi
eða að starfslokasamningar yrðu gerðir
við þá. Við þetta hefur ekki verið stað-
ið. Þess í stað er sú leið farin að segja
öllum starfsmönnunum upp en þeim
síðan bent á að þeir geti sótt um önnur
störf hjá borginni, t.d. hjá leikskólum
eða félagsþjónustunni.
Hópuppsagnir í stað starfsloka-
samninga
Töluverður munur er á því hvort valin
er leið uppsagna eða starfslokasamn-
inga. Með starfslokasamningi heldur
viðkomandi starfsmaður öllum áunn-
um réttindum haldi hann áfram starfi
hjá borginni en ekki þegar honum er
sagt upp. Á undanfómum árum hefur
Reykjavíkurborg gert fjölda starfsloka-
samninga við ýmsa starfsmenn með
sfyttri starfsaldur að baki en umrædd-
ar gæslukonur.
Þær gæsluvaUakonur sem kunna að
verða ráðnar til leikskólanna eftir að
uppsögnin tekur gildi þurfa að skipta
um verkalýðsfélag og verða því ráðnar
á lakari kjörum en þær njóta nú. Telja
þær að kjörin séu mun verri hjá Eflingu
hvað varðar áunnin réttindi.
í hópnum er m.a. fatlaður starfsmað-
ur sem unnið hefur hjá Reykjavíkur-
boig frá árinu 1978. Þessi starfsmaður
hefur ekkert boð fengið um annað starf
hjá borginni og heldur engin vilyrði fyr-
ir því að slíkt verði skoðað ■
Reykjavíkurlistinn:
Gengið til
samstarfs-
samninga á ný
Flokkarnir þrír sem standa að R-list-
anum tilkynntu í gær að þeir myndu
halda áfram viðræðum sínum um
samstarf og sameiginlegt framboð í
borgarstjórnarkosningunum að ári.
Undanfama daga hafa fulltrúar
flokkanna skiptst á misfóstum skot-
um í fjölmiðlum og vænt hverjir aðra
um að vilja slíta samstarfinu með
tillögum sínum éða tillöguleysi eftir
atvikum.
Fulltfrúar flokkanna segja í til-
kynningu, sem send var fjölmiðlum,
að „ákveðinn vendipunktur hafi orð-
ið, sem felist í nánari útfærslu og
frekara vinnuferli", hvað sem það nú
þýðir. Heimildarmenn Blaðsins segja
að ekki hafi í raun orðið nein vatna-
skil í hinum eiginlegu viðræðum og
engar nýjar eða afgerandi tillögur
á borðinu. „Það sem gerðist var að
skynsemin sigraði og menn ákváðu
að reyna að leysa ágreininginn með
viðræðum fremur en gjammi í íjöl-
miðlum", sagði einn þeirra. ■
Fríhafnarverslunin harðlega gagnrýnd
Til leigu glæsileg skrifstofa
Til leigu glæsilegt rúmgott skrifstofuherbergi með aðgengi að kaffistofu á
besta stað miðsvæðis ( Reykjavikur. Parket á gólfum og allt fyrsta flokks.
Vönduð skrifstofuhúsgögn, símkerfi og öryggiskerfi getur fylgt með í
leigunni. Á sama stað er til sölu vönduð skrifstofuhúsgögn, þar á meðal
skrifborð, fundarborð, skápar, stólar, peningaskápur og fleira.
Upplýsinqar í síma 896-2822
ÞAKMÁLUN"
S: 697 3592/844 1011
- áróður og uppspuni segir framkvæmdastjórinn
Samtök verslunar og þjónustu (SVÞ)
gagnrýna harðlega starfsemi fríhafn-
arverslunar ríkisins í Leifsstöð fyrir
að vera í beinni samkeppni við einka-
rekna verslunarstarfsemi í landinu.
Forsvarsmenn fríhafnarverslunar-
innar vísa ásökununum „til fóðurhús-
anna“.
Vafasamar verðkannanir?
Á heimasíðu SVÞ, www.svth.is, er
það gagnrýnt að ríkisrekið fyrirtæki
standi m.a. fyrir verðkönnunum á
snyrtivörum í Reykjavík og að það
auglýsi „á stórum skiltum í flug-
stöðinni að boðið sé allt að helmingi
lægra verð en í bænum.“ Sturla G.
Eðvarðsson, framkvæmdastjóri frí-
hafnarverslunarinnar, vísar gagnrýn-
inni á bug. „í fyrsta lagi gerum við
verðkannanir um allan heim og könn-
um fyrst og fremst verð í erlendum
fríhöfnum. Þar sem íslendingar eru
okkar aðalviðskiptavinir reynum við
að tryggja þeim besta verðlag sem við
getum boðið og því skoðum við auðvit-
að innanlandsverð - hvort sem það er
á snyrtivörum, raftækjum eða hveiju
því sem við seljum. Ég vísa þessu því
til foðurhúsanna. í öðru lagi eru fyr-
irtæki á markaði að selja vörur til
neytenda og þurfa því að passa upp á
verðin sín. Ég vil tryggja það að fólk
fái sanngjarnt verð þegar það kemur
í Fríhöfnina og ég geri það með því að
gera verðkannanir hér innanlands og
erlendis."
SVÞ benda á að flestir þeir íslend-
ingar sem ferðist til útlanda noti
tækifærið til að kaupa vörur án virð-
isaukaskatts og vörugjalda í Fríhöfn-
inni og séu ekki að bera saman verð
við erlendar verslanir heldur einka-
reknar, íslenskar verslanir sem þurfi
að leggja þessi gjöld á vörur sínar.
Umdeild auglýsing
„Við auglýsum eingöngu í flugstöð-
inni“ segir Sturla og tekur fram að
besta tækifæri fríhafnarverlunarinn-
ar til að ná viðskiptavinum sé þegar
þeir eru komnir í flugstöðina. „En við
höfum ekki verið að auglýsa vörur á
innanlandsmarkaði, það er alveg á
hreinu."
Fyrir síðustu jól birtist þó auglýs-
ing sem boðaði ódýrt verð svokall-
aðra iPod tónlistarspilara sem þá
voru mjög vinsælir til jólagjafa. SVÞ
bendir á að slíkar auglýsingar keppi
með beinum hætti við einkafyrirtæki.
„Þetta er bara áróður og uppspuni frá
rótum" segir Sturla. „Samtökin virð-
ast greinilega ekki skilja það, þó að
ég sé löngu búinn að útskýra það, að
þessi auglýsing var ekki á okkar veg-
um. Umboðsaðili tækjanna auglýsti
án okkar vitundar og setti merki okk-
ar á auglýsingarnar. Við greiddum
aldrei fyrir þessar auglýsingar og um-
boðsaðilinn gerði þetta því ekki með
okkar leyfi því við auglýsum hvorki á
innanlandsmarkaði né f útlöndum og
höfum aldrei gert það.“