blaðið - 12.07.2005, Qupperneq 8
8 erlent
þriðjudagur, 12. júlí 2005 ! blaðið
Lundúnaborg braggast
Bush heitir
aðstoð
bjornbragi@vbl.is
Talið er að búið sé að ná öllum líkum
úrneðanjarðarlestunumsemsprengd-
ar voru í Lundúnaborg á fimmtudag.
Lögreglan segist hafa náð að bera
kennsl á mikinn meirihluta líkanna
og hefur hafist handa við að nafn-
greina hina látnu og láta fjölskyldur
þeirra vita. Stjórnvöld hafa ítrekað
heitið því að hinir ábjTgu verði sótt-
ir til saka og halda áfram að hvetja
borgarbúa til að sýna þolinmæði og
samstöðu.
Hinum seku verður náð
Lögreglustjóri Lundúnalögreglunnar,
Ian Blair, hélt stutta tölu þegar hann
heimsótti Kings Cross lestarstöðina
og hét því að þeir sem ábyrgð bæru
á hryðjuverkunum yrðu fundnir og
sóttir til saka. Bað hann almenning
að gefa rannsóknarmönnum tíma og
sýna þolinmæði þar sem um væri
að ræða mesta glæpavettvang í
sögu Englands. Sagði hann lögregl-
una t.a.m. um þessar mundir fara í
gegnum 2.500 upptökur úr öryggis-
myndavélum og í kringum 120.000
símtöl sem henni hefðu borist. Lund-
únalögreglan sagði mikil viðbrögð al-
mennings hafa komið sér vel við rann-
sókn málsins. Þá hefur lögreglan nú
auglýst netfang sem fólk getur sent
bjombragi@vbl.is
Fræg er sagan af því þegar maður
einn miðaði byssu að ökumanni bif-
reiðar sem var kyrrstæð á rauðu ljósi
í Sao Paulo í Brasilíu. Þegar ökumað-
urinn tók af sér derhúfuna afsakaði
glæpamaðurinn sig og gekk brott því
þarna var á ferðinni enginn annar en
knattspymugoðið Pele. í dag njóta
sporgöngumenn Pele og skyldmenni
þeirra langt í frá sömu virðingar.
Á síðastliðnum sjö mánuðum hefur
mæðrum fimm knattspymustjarna
í Brasilíu verið rænt og hafa málin
vakið mikinn óhug og hræðslu í hin-
myndir og upptökur frá sprengjuárás-
unum ef það á, en hún hefur gefið út
að slíkt sé afar nauðsynlegt við rann-
sókn málsins. Lögreglustjórinn sagð-
ist myndu halda áfram að taka neðan-
jarðarlestina í vinnuna og ráðlagði
fólki að sýna ekki hræðslu og gera
slíkt hið sama - en sýna þó aðgát.
Lögreglan segist næsta fullviss um
að ekki hafi verið um sjálfsmorðsárás
að ræða. í yfirlýsingu sagði Tony Bla-
ir, forsætisráðherra Bretlands, að
sennilega hefði „hryðjuverkahópur
íslamskra öfgamanna" staðið fyrir
árásunum. Enginn hefur enn verið
handtekinn vegna árásanna. Forsæt-
isráðherrann hefur lofað öflugustu
lögreglurannsókn sem farið hefur
fram á Bretlandseyjum og sagði að
ekkert yrði til sparað í að draga hina
seku til ábyrgðar. Blair sagði stjórn-
völd hafa fyllst viðbjóði vegna hins
„grimmdarlega blóðbaðs" sem átti
sér stað síðastliðinn fimmtudag og
myndu þau bregðast við í samræmi
við það.
Tala látinna komin í 52
Tony Blair, forsætisráðherra Bret-
lands, hefur lofað minningarathöfn
vegna hinna látnu þar sem drottn-
ingin verður viðstödd. Blair hefur
auk þess lýst því yfir að tveggja mín-
útna þögn verði í landinu á hádegi
um fágaða heimi brasilískrar knatt-
spyrnu.
Arðbærir glæpir
Mannránsaldan fór af stað í nóvemb-
er síðastliðnum þegar móður efnileg-
asta leikmanns Brasilíu, Robinho,
var rænt. Ránið á hinni 43 ára gömlu
Marina Silva de Souza varð til þess
að sonur hennar Robinho tók ekki
þátt í lokahnykk brasilísku úrvals-
deildarinnar þar sem lið hans, Sant-
os, barðist um deildarmeistaratitil-
inn sem það hafði aðeins unnið einu
sinni áður. Santos tókst þó að vinna
deildina að lokum, án Robinhos. Hin
á fimmtudag, þegar vika er liðin frá
ódæðinu. Þá verður haldin vaka á
Trafalgartorgi á fimmtudagskvöldið.
Samúðarkveðjubók var opnuð í ráð-
húsinu í Lundúnaborg í gær og var
borgarstjórinn Ken Livingstone fyrst-
ur til að skrifa í bókina. í kjölfar hans
skrifuðu m.a. stjórnmálamenn, trú-
arleiðtogar og lögreglustjórinn Ian
Blair. Hundruð blómaskreytinga og
skilaboða hafa verið lögð á minningar-
vegg við Trafalgartorg og við árásar-
staðina og hafa borgarbúar sýnt hver
43 ára gamla de Souza var í haldi
mannræningjanna í 41 dag áður en
hún var látin laus. Var hún ómeidd
en var þreytt og fól og hafði verið
krúnurökuð af ræningjunum.
Fjölmiðlar greindu frá því að Ro-
binho hefði greitt mannræningjunum
rúmar 5 milljónir íslenskra króna fyr-
ir lausn móður sinnar. Þykir það afar
mikill peningur hjá þjóð sem hefur
að meðaltali um 8 þúsund íslenskar
krónur í mánaðarlaun. Virðast marg-
ir misindismenn hafa fengið innblást-
ur frá fréttunum því síðan þá hefur
fjórum mæðrum knattspyrnumanna
verið rænt. í febrúar á þessu ári var
móður Grafite, sóknarmanns brasil-
íska liðsins Sao Paulo, rænt en var
bjargað degi síðar þegar lögreglan
hafði hendur í hári mannræningj-
anna. „Það eru allir hræddir. Ég hef
komið upp gríðarmiklu öryggsikerfi
heima hjá mér og ég er að reyna að
fá foreldra mína til að flytja á nýjan
stað“, var haft eftir Grafite. Mánuði
síðar var móður Rogério, sem leik-
ur með portúgalska liðinu Sporting
Lisbon, rænt en bjargað úr húsnæði
í iðnaðarhverfi Sao Paulo þremur
dögum síðar. Stuttu síðar fylgdu rán
á mæðrum knattspymumannanna
Luis Fabiano og Marinho. Allar mæð-
urnar fimm hafa verið látnar lausar
og sakaði ekki líkamlega.
öðrum mikinn stuðning og samúð þó
auðvelt sé að greina undirliggjandi
hræðslu. Lundúnabúar eru þó farnir
að nota almenningssamgöngur á ný í
sama mæli og áður.
Fyrstu fórnarlömb hryðjuverkanna
í Lundúnaborg hafa verið nafngreind
og tala látinna er nú komin í 52. Fjöl-
skyldur þeirra sem enn er saknað
bíða hins vegar óþreyjufullar eftir að
fá að vita hvort ástvinir sínir séu á
meðal þeirra látnu.
„Heill iðnaður"
Jose Laerte Goffe Macedo, sem leiddi
rannsókn þriggja af mánnránsmál-
unum fimm, segir að á síðustu árum
hafi glæpahópar farið úr bankarán-
um í rán á flutningabílum í að ræna
fólk sem er að taka út úr hraðbönk-
um. Mannrán á mæðrum þekktra
knattspyrnumanna er hins vegar
nýjasta „æðið“ meðal glæpamanna,
samkvæmt Macedo. Macedo segir
að á meðan mannránsmál séu leyst
þannig að mannræningjum sé greitt
fyrir lausn þess sem í haldi er muni
þau halda áfram að grassera og fleira
fólki verði rænt. „Þetta er orðinn heill
iðnaður. Leikmenn hafa ástæðu til að
vera hræddir", sagði Macedo.
Stærstu knattspyrnufélög Brasilíu
hafa hvatt leikmenn sína til að forðast
íburðarmikla bíla og dýra skartgripi
og láta lítið á ríkidæmi sínu bera. Þá
hafa fjölmiðlar landsins, sem löngum
hafa angrað knattspyrnumenn með
aðgangsharðri umfjöllun, samþykkt
að leggja hönd á plóg með leikmönn-
unum. Hafa þeir lofað að gefa ekki
upp launatölur leikmanna og fjalla
ekki náið um mannránsmál sem
varða knattspyrnumenn eða greina
frá lausnarupphæðum sem greiddar
eru.
George Bush Bandaríkjaforseti hef-
ur lýst yfir stórslysaástandi í fylkj-
um Flórída, Mississippi og Alabama.
Þá hefur hann heitið umfangsmikilli
aðstoð til að reyna að endurbæta
ástandið eftir að fellibylurinn Dennis
hóf yfirreið sína yfir suðausturströnd
Bandaríkjanna á sunnudag. Hét
Bush styrkjum, tímabundnum húsa-
skjólum og lánum á góðum kjörum til
handa þeim sem ekki voru tryggðir
til að koma sér á réttan kjöl eftir felli-
bylinn. Tjón vegna fellibylsins hefur
til þessa verið mim minna en búist
var við og t.a.m. töluvert minna en
vegna fellibylsins ívans sem reið yfir
svipaðar slóðir fyrir röskum tíu mán-
uðum síðan.
Ungabarn deyr
í skotárás
Lögreglumenn í Los Angeles skutu
mann á fertugsaldri til bana í skot-
bardaga í suðurhluta Los Angeles í
gær. 19 mánaða gamalt stúlkubarn,
sem maðurinn hélt á, lést einnig í
bardaganum en samkvæmt lögreglu
er ekki vitað hvort kúlan sem hæfði
barnið hafi komið frá lögreglumönn-
um eða manninum sjálfum. Þá særð-
ist lögreglumaður í skotbardaganum
en hann mun ekki vera slasaður al-
varlega.
Lögreglan hafði fengið tilkynn-
ingu um mann sem hegðaði sér und-
arlega og hafði vopn undir höndum
sér. Hafði hún setið um hús manns-
ins klukkutímum saman þegar
hann loksins ruddist út með barnið
í fanginu og hóf skothríð. Aðstoðar-
lögreglustjóri Los Angeles-borgar,
Jim McDonnelI, sagði lögreglu hafa
gert allt sem mögulegt hefði verið til
að koma í veg fyrir að skotbardagi
brytist út. Hafi hún sýnt mikla þol-
inmæði en orðið að bregðast við með
slíkum hætti sem hún gerði þar sem
líf lögreglu og saklausra borgara hafi
verið í hættu.
Lík drengsins
fannst
Lögreglan í Idaho-fylki í Bandaríkj-
unum hefur fundið lík hins níu ára
gamla Dylan Groene en talið var orð-
ið útilokað að hann væri á lífi. Dylan
var rænt af heimili sínu ásamt átta
ára gamalli systur sinni, Shöstu Gro-
ene, þann 16. maí síðastliðinn. Móð-
ir þeirra, eldri bróðir og stjúpfaðir
ftmdust þá látin á heimili þeirra en
þau höfðu verið bundin og barin til
dauða. Shasta fannst svo fyrir rúmri
viku síðan á kaffistofu með þekktum
barnaníðingi, James Edward Dunc-
an, sem hafði rænt henni og bróður
hennar. Lögreglan telur næsta ör-
uggt að Duncan sé einnig maðurinn
sem myrti fjölskylduna. Mannrán
eitt og sér getur varðað líflátsdóm í
Idaho en ekki er enn vitað hvort sak-
sóknarar muni freista þess að finna
Duncan sekan um það.
AÐEINS FYRSTA FLOKKS DEKK • FAGMENNSKA I FYRIRRUMI
FÓLKSBÍLADEKK • JEPPADEKK
DEKKJAHOTEL
VIÐ GEYMUM DEKKIN FYRIR ÞIG ALLT ÁRIÐ GEGN VÆGU GJALDI
GÚMMÍVINIMUSTOFAN EHF.
RÉTTARHÁLSI 2*110 REYKJAVÍK • SÍMI 587 5588
WWW.GVS.IS / WWW.TILBODSDEKK.IS
Þessir pöndutvíburar eru afkvæmi kínversku risapöndunnar Guo Guo. Að sögn heilsast móður og börnum vel en þau dvelja á sér-
stakri rannsóknarstöð fyrir pöndudýr í kínversku borginni Wolong.
Ung kona er hughreyst af vinkonu sinni eftir að þær höfðu lagt blóm til minningar um
hina látnu við King’s Cross lestarstöðina í Lundúnum í gær. Unnusti konunnar er á
meðal þeirra sem saknað er eftir hryðjuverkin í Lundúnum síðasta fimmtudag.
Mannránsalda á mæðrum
brasilískra knattspyrnumanna