blaðið - 12.07.2005, Page 12
þriðjudagur, 12. júlí 2005 I blaðið
Sportvörugcröin hf.,
Skipliolt S. s. 562 H3»3.
Krossá
hefur gefið
15 laxa
Leirvogsá 130
Laxá í Kjós 247
Norðurá 1317
Gljúfurá 49
Hítará 99
Elliðaár 227
Korpa (Úlfarsá) 35
Krossá 15
Svartá 6
Við bílastæði í Vatnskoti sera er í
landi þjóðgarðsins við Þingvallavatn
er nú verið að leggja lokahönd á frá-
gang á tveimur nýjum smáhýsum
sem eiga að þjóna veiðimönnum og
öðrum sem þar koma til með að njóta
útivistar við veiði og göngur. Þetta
kemur fram á heimasíða Össurar
Skarphéðinssonar en hann er í yfir-
stjórn þjóðgarðsins og þekkir vatnið
vel. Össur hefur meðal annars skrif-
að bók um urriðann í Þingvallavatni.
Af því tilefni slógum við á þráðinn
tO Össurar og grennsluðumst frekar
fyrir um breytingarnar.
„Þetta eru tvö smáhýsi sem við er-
um að klára þessa dagana með góð-
um salemum, þar af einu sem er út-
búið sérstaklega fyrir hreyfihamlaða.
Þarna eru afdrep með vöskum og
rennandi vatni til að þvo upp og þess-
vegna þvo úr flíkum ef menn vilja.
Vatnskot er náttúrlega örskammt frá
fjölmörgum mjög góðum veiðistöðum
og þessar breytingar eru ekki síst
í anda þeirrar stefnu okkar í Þing-
vallanefnd að bæta þjónustuna við
veiðimenn. Síðasta skrefið í þessari
uppbyggingu í Vatnskoti verður því
að setja upp sérstakt borð og vaska til
að slægja og þvo aflann. Það er ekki
hægt að ætlast til að menn geri það á
sama stað og fólk er kannski að þvo
mataráhöld og flíkur þannig að þetta
verður á sérstökum stað við húsin.
Ég er sérstaklega ánægður með að-
stöðuna sem þarna er komin fyrir
hreyfihamlaða.”
Össur sagði að einnig væri verið að
ganga frá mjög finni grillaðstöðu þar
sem margir gætu grillað í einu þann-
ig að hvernig sem veður væri, rok eða
rigning væri alltaf hægt að finna skjól
og grilla. „Loks er verið að opna sér-
staka stofu í öðru húsanna sem verð-
ur alltaf opin gestum og gangandi.
Þar er hugmyndin að hafa uppi við
eintök af ýmsum bókum og bækling-
hægt að komast í jafn góða og ódýra
veiði og einmitt í Þingvallvatni. „Veiði-
leyfið kostar ekki nema þúsundkall
fyrir daginn og börn 16 ára og yngri
þurfa ekkert að borga og ekki heldur
ellilífeyrisþegar 67 ára og eldri. Svo
segja má að stórfjölskyldan geti kom-
ist í veiði fyrir j)úsundkall á dag og
hefur aðgang að fínni þvotta- og grill-
aðstöðu fyrir utan fin salerni en það
fylgir veiði- og tjaldleyfum. Tóftirnar
af gamla bænum í Vatnskoti er líka
Eitt kort
20 vatnasvæði
Miðá í Dölum:
Tveir veiðimenn
fengu maríulaxinn
Sandra Sif Sæmundsdóttir með fyrsta laxinn sinn og væna bleikju úr Miðá fyrir fáum dögum en 25 laxar hafa veiðst í ánni.
Tveggja ára
laxinum
verður að hlífa
„Við vorum að koma úr Norðurá,
veiðin var góð en tveggja ára laxinum
fækkar og fækkar, bæði í Norðurá og
fleiri veiðiám" sagði veiðimaður sem
var að veiða á aðalsvæðinu í Norðurá
en áin er að komast í 1300 laxa en
tveggja ára laxinum fækkar.
Og áhyggjur veiðimanna eru víða
en Stangaveiðifélag Reykjavíkur hef-
ur óskað eftir aðstoð veiðimanna við
að ná tveggja ára klakfiski í Soginu
og Stóru Laxá í Hreppum. Eins og
veiðimenn vita hefur seiðabúskap-
ur í báðum ám verið fremur slakur
og nú er ætlunin að reyna að bæta
úr því. Veiðimenn eru hvattir til að
setja laxana í kistur og hólka við árn-
ar og á að verðlauna veiðimenn fyrir
það. Búið er að koma kistum fyrir
á nokkrum stöðum í Stóru Laxá og
tveir hólkar eru til taks við Sogið.
„Ég var í fimm, sex mínútur að landa
laxinum en hann tók í Brúarhylnum
og þetta var mjög skemmtilegt. Fisk-
urinn tók maðk“, sagði Sandra Sif
Sæmundsdóttir sem veiddi maríulax-
inn sinn í Miðá í Dölum fyrir fáum
dögum og skömmu seinna veiddi
annar veiðimaður maríulaxinn sinn
í sömu veiðiá.
Veiðimaður sem var í ánni fyrir
fáum dögum sá torfu af laxi og voru
nokkir af löxunum vel vænir.
„Veiðin hefur verið góð. Síðustu
daga hafa veiðst 20 laxar og núna eru
komnir 25 laxar á land og eitthvað af
bleikju", sagði Lúðvík Gizurarson er
við spurðum um stöðuna í Miðá.
Engin veiði er víst stunduð í Hörðu-
dalsá en leigutakar árinnar hafa
ákveðið að loka fyrir veiði í henni í
allavega tvö ár.
Góður gangur hefur verið í Eystri-
Rangá og hafa veiðst 123 laxar í ánni
og í fyrrdag veiddust 43 laxar. í fyrra-
dag veiddust 20 laxar í Ytri-Rangá
þannig að hún er öll að koma til en
innan við eitt hundrað laxar hafa
veiðst í ánni.
um sem tengjast þjóðgarðinum sem
menn geta lesið sér til fróðleiks. Þann-
ig verður Vatnskot algerlega kjörið til
að fara með fjölskylduna í útilegu og
veiða", sagði Össur. Hann bætti því
við að líklega væri hvergi í heiminum
VEIÐI
Gunnar Bender
búið að hreinsa vel þannig að þar er
alltaf skjól £ öllum veðrum og frábært
að grilla þar líka. Þingvallanefnd er
líka búin að opna Arnarfellið sem nú
er undir þjóðgarðinum með þessum
líka fína vegi og þar er kjörin aðstaða
fyrir þá veiðimenn sem vilja vera útaf
fyrir sig.“
En hvað með urriðann spurðum
við alþingismanninn sem er þekktur
íyrir áhuga sinn á stórurriðanum og
nef
eða heimsækið vefsíðu okkar á
og kynniðykkur þessa fallegu á.
skrifaði einmitt bókina Urriðadans
um urriðann í Þingvallavatni? „Við
erum nú ekkert sérstaklega að beina
mönnum í urriðann en þess má geta
að beint fram af gamla bænum í
Vatnskoti er gjá þar sem urriðinn hélt
sig alltaf og menn lögðu urriðanet í
gamla daga. Símon gamli í Vatnskoti
fékk þar einu sinni 28 punda urriða
sem er reyndar á forsíðu bókarinnar
minnar."
VEIÐIKORTIÐ
Bætt aðstaða fyrir veiðimenn
!
Veiðivefurinn svfr.is
Frábært úrval veiðileyfa í lax og silung - og þú gengur frá kaupunum beint á netinu.
Fréttir, greinar og margt fleira