blaðið - 12.07.2005, Qupperneq 13
blaðið I þriðjudagur, 12. júlí 2005
veiði 13
Mikil veiði í
Kvíslárveitum
í sumar
Kvíslórveiturnar eru þekktar fyrir
mikla veiði og veiðast þúsundir fiska
þar árlega. Algengasta stærðin er
1.5-2.5 pund. I stuttum könnunar-
leiðangri sem farin var þann 28. júní
veiddust 30 fiskar á þrjár stangir.
Aðstaða fyrir veiðimenn í Kvíslár-
veitum hefur verið stórbætt og verða
veiðiverðir á staðnum í allt sumar,
veiðimönnum til halds og traust. Hót-
el Versalir verða opnaðir að nýju og
húsakynnin nýtt sem aðstaða fyrir
veiðimenn auk þess sem þar verður
boðið upp á léttar veitingar og gist-
ingu fyrir veiðimenn.
Kaldakvísl er urriða- og bleikju-
svæði og er henni skipt í efra og
neðra svæði. Tungnaá (gamli árfar-
vegurinn frá brú og niður eftir) er
fyrst og fremst bleikjusvæði og fylgir
Köldukvísl eins og sagt er til um. Til
að tryggja kyrrð og næði veiðimanna
eru einungis seldar sjö stangir í ána,
fjórar á neðra svæði en þijár á efra
svæði.
Efra svæðið nær frá fossinum Nefja
og niður að Trippavaði. í dag þarf ekki
að fara Trippavað þar sem ný brú er
komin neðar á Tungnaá. Á efra svæð-
inu er hægt að aka á fjórhjóladrifnum
bifreiðum nær alveg upp að fossinum
Ne§a. Bestu veiðistaðirnir eru við
fossin og um 300 metrum fyrir neðan
hann en þar í gilinu er djúpur og lang-
ur hylur. Eins eru góðir staðir neðar
í ánni þar sem tilvalið er að veiða.
Efra svæðinu fylgir jafnframt leyfi til
aðveiðaí Tungnaáfrá kl. 16-23 (með-
an leyfi gildir) en hún hefur gefið best
neðst við skilin (þar sem órnar renna
saman). Einnig eru góðir hyljir ofar
í ónni.
Neðra svæði er frá Trippavaði og
niður að skilum. Bestu veiðistaðimir
þar eru við klettana þar sem slóðin
endar (hægri megin) eða niður við
skilin þar sem ámar liggja saman.
Neðra svæðinu fylgir jafnframt leyfi
til að veiða í Tungnaá fró kl. 7-14
(meðan leyfi gildir).
Kaldakvísl er þekkt fyrir væna
urriða og bleikjur og Tungnaá fyrir
vænar bleikjur. Þessi svæði eru mikl-
ar náttúmperlur og eru veiðimenn
sérstaklega hvattir til að ganga vel
um umhverfið, aka ekki utan slóða og
skilja ekki eftir sig sorp. Veiðimenn
eru hvattir til að skila veiðiskýrslum
og færa afla i veiðibók.
Veiðiþjófnaður verður kærður til
lögreglu og hefur veiðieftirlit verið
hert til mikilla muna.
Reynisvatn er mjög vinsælt hjá veiðimönnum enda nóg af fiski
í vatninu og sjaldgæft að fólk fari tómhent heim. í vatninu er
aðallega regnbogasilungur en einnig bleikja. Hægt er að leigja
stangir og báta og er aðstaðan tilvalin fyrir starfsmannahópa
sem og veislur af ýmsu tagi. Á staðnum er veitingasala, fjöldi
grilla, innisalur og útipallar. 561 0752 og 693 7101
OPIÐ ( SUMAR:
laugardaga 10-17, sunnudaga 11-16, virka daga 9-19
Neyðarsími allan sólarhringinn 844 7000
Síðumúta 11 • 108 Reykjavfk • Síml: 588 6500 • www.utivistogveidi.is