blaðið - 12.07.2005, Blaðsíða 16
16 brúðkaup
-
þriðjudagur, 12. júlí 2005 ! blaðið
Hvað kostar
nnai
Það er ekki til nein uppskrift að hinu
fullkomna brúðkaupi. Sitt sýnist
hverjum þegar kemur að því að ganga
í hjónaband og brúðkaup verða því
jafn misjöfn og þau eru mörg. Fólk er
hins vegar farið að eyða sífellt hærri
upphæðum í brúðkaup sitt og hleyp-
ur kostnaðurinn oft á hundruðum
þúsunda.
Blaðið fór á stúfana og grennslaðist
fyrir um kostnaðinn við að ganga að
eiga sína heittelskuðu/sinn heittelsk-
aða fyrir íraman guði og mönnum.
Fatnaður:
Dömuskór: 8.000 -15.000 krónur
Herraskór: 8.000 krónur
Brúðarkjóll, sérsaumaður:
80.000 krónur
Herrafót á leigu: 10.900 krónur
Undirfatnaður: 15.000 krónur
Brúðarmeyjarkjólar á leigu,
2 stykki: 8.000 krónur
Alls: 136.900 krónur
Brúðhjón vilja að sjálfsögðu líta
sem best út fyrir stóra daginn.
Útlit:
Brúnkumeðferð fyrir brúðhjónin:
8.000 krónur
Gelneglur fyrir brúðina:
5.000 krónur
Förðun, með prufu: 5.500 krónur
Hárgreiðsla á brúðkaupsdaginn:
10.000 krónur
Hár brúðarinnar, litur og klipping:
10.000 krónur
Hár herrans, litur og klipping:
8.000 krónur
Plokkun og litun: 2.000 krónur
Alls: 48.500
Það er misjafnt hversu fjölmenn
veislan er en meðalfjöldi gesta er um
100 og miðum við hér við þann fjölda
gesta.
Veisla:
Veislusalur: 55.000 krónur
Matur í veislu: 250.000 krónur
Áfengi í veislu: 200.000 krónur
Hljómsveit í veislu: 70.000 krónur
Skreytingar: 30.000 krónur
Terta: 55.000 krónur
Borðbúnaðarleiga: 55.000 krónur
Alls: 715.000 krónur
Annað:
Boðskort: 10.000-15.000 krónur
Brúðarvöndur:
8.000 -10.000 krónur
Prestur og kirkjuvörður:
11.000 krónur
Orgelleikari: 15.000 krónur
Brúðarbíll: 16.000 króniu'
Hringar: 60.000 krónur
Myndataka: 43.000 krórnu"
Brúðkaupsnótt á hótelsvítu:
35.000 krónur
Einsöngvari í kirkju:
50.000 krónur
Alls: 255.000 krónur
Samtals allur kostnaður:
1.155.400 krónur
Eins og glögglega má sjá eru út-
gjaldaliðirnir margir og upphæðirnar
verulegar. Dæmi eru um að fólk taki
sér skuldabréf eða annars konar lán
til að að standa straum af kostnaði
brúðkaups síns.
Þess má þó geta að brúðkaup þurfa
alls ekki að kosta svo mikið og er
það undir hverjum og einum komið
hversu miklu þeir vilja kosta í stóra
daginn.
SKEIFAN 3A - 108 REYKJAVÍK
S(MI: 517 3600 FAX: 517 3604
WWW.LOCAL1 ,IS
Brúðargjafirnarfœrðu hjá okkur
Glæsilegur kristall og handunnið íslenskt gler
Frábært verð, mikið úrval
Skólavörðustíg 21 a Q T O
Sími 551 1520 UUI I lUll Q