blaðið - 12.07.2005, Síða 20
þriðjudagur, 12. júlí 2005 I blaðið
Draumastaðir þjóðþekktra íslendinga
- Siggi Hall, Ragga á KissFm og Eva María um áhugaverða staði erlendis
halldora@vbl.is
Umbria, Washington D.C. og Reykjavík
„Draumastaðirnir í mínum augum eru eiginlega þrír; Umbria-
héraðið á Ítalíu, Washington D.C. í Ameríku og svo auðvitað
Reykjavík," segir veitingamaðurinn Siggi Hall aðspurður um
þann stað sem hann vildi helst heimsækja. Hann segist þó ekki
geta gert upp á milli þessara þriggja staða. „Þetta er reyndar
ekki upptalning á einhverju sem ég á eftir að skoða heldur stað-
ir sem ég eyði miklum tíma á. Að mínu mati eru þetta allt afar
spennandi borgir og svæði en ég er meira og minna á þessum
stöðum og á því erfitt með að gera upp á milli þeirra."
Japan og aðrar framandi slóðir heilla
„Mig langar rosalega mikið að fara til Japan, sjá þar náttúruna
og fólkið. Menningin er einnig mjög áhugaverð - sér í lagi miðað
við sögu þeirra sem er mjög sérstök. Ég hef aldrei komið þang-
að og því er Japan ofarlega í huga,“ segir Ragnhildur Magnús-
dóttir eða Ragga á KissFM eins og hún er oftast kölluð. Ragga
segist hafa komið víða við í Evrópu og því langi hana hvað mest
á framandi slóðir og sjá staði sem eru ekki hvað algengastir í
ferðamennsku. „Ég væri líka rosalega til í að fara til Costa Rica
en mér skilst að þetta sé afar fallegt land. Svo heillar Suður-Am-
eríka líka svona almennt", segir hún og bætir því við að hún sé
óð í að ferðast, kynnast ólíkum menningarheimum og sjá fallega
náttúru. „Ég er reyndar ekki mikil svona Kanaríeyja-týpa þó það
sé örugglega mjög fínt fyrir marga - vil heldur óhefðbundnari
ferðir."
Vill stíga dans við danskvæði Færeyinga
„Mig langar að fara til Færeyja og kynnast Færeyingum ásamt
þeirra venjum. Þá væri ekki verra að dansa við þá við löngu dans-
kvæðin þeirra sem þeir eru þekktir fyrir, það væri eflaust mjög
skemmtilegt að taka eina nótt í það,“ segir Eva María Jónsdóttir,
sjónvarpskona, en bætir því við að færeyski maturinn þurfi þó
helst að vera mjög góður ef hún eigi að leggja í för þangað. „Ég ó
rosalega erfitt með að fara þar sem ég veit að maturinn er ekki
nógu góður en það er að mínu mati mikið atriði að njóta góðs
matar þegar maður er á ferðalögum. Mig hefur t.d. lengi langað
að heimsækja Austantjaldslöndin en ekki ennþá lagt í það þar
sem ég hef heyrt að maturinn sé slæmur. Reyndar getur það nú
breyst fró ári til árs og því óskandi að ég fari þangað eitthvert
árið.“
Gönguskór
- mikið úrval
Meindl Colorado Lady
Tilboðsverð
14.990,
Verð áður 17.990 kr.
ÚTILÍF
SMÁRALIND SlMI 545 1550 O GLÆSIÐÆ SlMI 545 1500 O KRINGLUNNI SlMI 545 1580
Nýtt tölublað
komið í verslanir
Tryggðu þér
eintak á
næsta
sölustað
fd»lórs3
’^tonjr
Sumarspil fyrir
krakkana
- tilvalið á ferðalögunum
Nú er komið á markað lítil og þróð-
laus leikjatölva fyrir krakka á aldr-
inum 6-12 ára en hverri tölvu fylgir
rafrænt spilakort með einni af hetjun-
um úr heimi Tims. Krakkamir geta
þjálfað sína fígúru, gefið henni að
borða og hvílt hana þegar nauðsyn
krefur en eftir þjálfunartímabilið er
hægt að tengjast annarri tölvu og
keppa við næsta krakka. Hetjan væl-
ir ef hún er þreytt og svöng þannig að
hver krakki þarf að passa vel upp á
sinn mann og ala hann vel upp. Hægt
er að spila leikinn einn en aðallega er
lagt upp með að krakkar spili tveir
sín á milli í sitthvorri tölvunni sem
eru þráðlauBar og skilja hvor aðra.
Geta þó krakkamir keppt sín á milli
með hetjunum en leikurinn snýst um
að gera hetjuna að meistara; byggja
upp heilsustig hennar þannig að
hraustleikinn verði í hávegum. Á
bak við heilsustigin eru þrír þættir;
hraði, kraftar og töfrar en þættina
þarf að byggja upp með því að keppa
við aðra, skipta við þá á eiginleikum
eða eiga viðskipti við þá.
Þegar kortið er búið er hægt að
fylla það á ný en einnig er hægt að
fjárfesta í fleiri karaktemm í hvem
leik. Hverri leikjatölvufylgir ein hetja
en tölvan kostar aðeins 1990 krónur.
Leikur þessi er tilvalinn í ferðalögin
í sumar en þá geta t.d. systkini spil-
að sín ó milli í aftursætunum þegar
keyrt er á milli staða eða í flugferðum
og stytt sér þannig stundir á meðan
beðið er eftir að komast á áfangastað.
Þá er þetta skemmtileg afþreying
þegar vinir hittast en í leiknum geta
krakkamir dundað sér svo tímum
skiptir. Það er því tilvalið að stoppa
á næstu Essó stöð, en þar er hægt
að nálgast leikinn, og grípa með sér
spennandi tölvuspil fyrir krakkana.