blaðið - 12.07.2005, Blaðsíða 22
4
þriðjudagur, 12. júlí 2005 I blaðið
Blake á leið
til Leeds
Enska úrvalsdeildarliðið Birming-
ham hefur samþykkt 800 þúsund
punda tilboð 1. deildarliðsins
Leeds United í sóknarmanninn Rob-
bie Blake. Blake gekk til liðs við
Birmingham frá Burnley í janúar á
þessu ári fyrir 1,25 milljónir punda
en hann hefur áður leikið með Dar-
lington, Bradford og Nottingham
Forest. Steve Bruce, stjóri Birming-
ham, sagðist hafa verið ánægður
með Blake hjá félaginu en vegna
óánægju hans með hversu Irtið
hann fékk að spila hafi þeir náð
samkomulagi um að hann fengi að
yfirgefa félagið. Kevin Blackwell,
framkvæmdastjóri Leeds, sagði
að Blake myndi færa liðinu mikla
fjölbreytni í sóknarleikinn og kvaðst
afar ánægður með komu hans.
Leeds hélt í æfingaferð til Noregs
í gær og er vonast til að Blake nái
að hitta nýju liðsfélagana þar.
í öðrum fréttum af Leeds hefur liðið
hætt við að fá til sín norður-írska
landsliðsmanninn Keith Gillespie
sem var leystur undan samningi
sínum við Leicester eftir síðasta
tímabil.__________■
Powell
snýr aftur
til Charlton
Charlton Athletic hafa fengið hinn
35 ára gamla vamarmann, Chris
Powell, aftur til liðs við sig og gert
eins árs samning við kappann.
Powell gekk til liðs við Charlton frá
Derby County árið 1998 og lék yfir
200 leiki með félaginu áður en 1.
deildarlið West Ham fékk hann að
láni fyrir síðasta tímabil. West Ham
eignaðist svo leikmanninn á frjálsri
sölu í desember og var talið fullvíst
að hann myndi leika áfram með
nýliðunum í úrvalsdeildinni í vetur.
Powell, sem hefur leikið fimm lands-
leiki fyrir Englands hönd gat þó
ekki hafnað boði gömlu félaganna
og mun því leika við hlið Hermanns
Hreiðarssonar á næsta tímabili.
loftkæling
Verð frá 49.900 án vsk.
ÍS-hÚSÍð 566 6000
Button vill það besta
Jenson Button, á hægri hönd, ásamt gamla kappakstursbrýninu David Coulthard
þegar einnar mínútu þögn var haldin í þessari hávaðasömustu íþrótt heims á Silver-
stone um helgina.
bjornbraqi@vbl.is
Breski ökumaðurinn Jenson Button
segist ekki munu ganga til liðs við
Ferrari eða nokkuð annað lið nema
hann eigi möguleika á því að vinna
heimsmeistaratitilinn með því. BAR-
Honda vonast til þess að halda í But-
ton en möguleiki þykir á þvi að But-
ton yfirgefi liðið fyrir Williams eða
Ferrari.
„Ef Ferrari verður sjötta besta liðið
á næsta ári hef ég enga ástæðu til að
flytja mig til þeirra. Það getur varla
talist nógu gott,“ sagði Button. „Ég
vil vera hjá þesta liðinu, sama hvaða
lið það er.“ Einn liður í samningi
Buttons gefur Williams-liðinu for-
gang á að fá kappann til liðs við sig á
næsta ári. Hins vegar hefur Williams
neyðst til að leita að nýjum vélafram-
leiðanda eftir að BMW tók þá ákvörð-
un að kaupa Sauber og gæti það þýtt
að Button ákveði að halda áfram hjá
BAR.
Button næsti Schumacher
Nick Fry. stjóri BAR, telur að liðið
geti fyllilega staðið undir væntingum
Buttons um heimsmeistaratitilinn.
„Við vonumst til að Jenson haldi
áfram hjá okkur", sagði Fry. „Honda
hefur unnið 11 heimsmeistaratitla og
hann veit að Honda er staðráðin í að
halda áfram að sigra. Hjá okkur eru
mestu líkumar á að hann geti orðið
heimsmeistari í Formúlu 1 - það er
engin spuming.“
Button varð fimmti í Silverstone-
kappakstrinum á sunnudag og hlaut
mikið lof frá stjóranum. „Hann hefur
þróað með sér hæfileika á borð við þá
sem Michael Schumacher hefur og
hann getur fyllilega leitt liðið. Hon-
um gekk frábærlega um helgina og
sýndi svo ekki var um villst að hann
er sannur meistari", sagði Fry. „Ef
hann myndi dvelja hjá okkur það sem
eftir lifir af ferlinum væri það afar
kærkomið, við myndum elska það“,
sagði Fry ennffemur.
Figo:
„Draumur minn að leika fyrir Liverpool“
Fyrrum besti leikmaður heims, Luis
Figo, hefur lýst því yfir að hann langi
að ganga til liðs við Liverpool frá Re-
al Madrid. Hinn 32 ára gamli Portú-
gali á eitt ár eftir af samningi sínum
við Real en honum hafði verið sagt að
hann mætti yfirgefa félagið á fijálsri
sölu. Nú virðist þó sem Madridarliðið
sé að bakka með þau loforð. Evrópu-
meistaramir hafa þegar gengið frá
samkomulagi við Figo um kaup og
kjör en félagaskiptin virðast stranda
á 2 milljóna punda greiðslu sem Real
Madrid vill fá fyrir Portúgalann. Arr-
igo Sacchi, yfirmaður íþróttamála hjá
Real, sagði að Figo verði ekki leyft að
fara frá félaginu án endurgjalds þar
sem hann eigi enn ár eftir af samn-
ingi sínum. „Okkur hefur enn ekki
borist tilboð frá Liverpool”, sagði
Sacchi. „Það þýðir að Luis verður hjá
okkur í eitt ár í viðbót."
Figo ósáttur
Luis Figo, sem gekk til liðs við Real
Madrid frá erkifjendunum í Barcel-
ona fyrir 37 milljónir pimda á sínum
tíma, er ósáttur vegna þessa en hann
hefur lýst yfir eindregnum áhuga á
að ganga til liðs við Liverpool. Jíf
Real sér mig ekki sem hluta af áætl-
unum sínum, af hveiju vilja þeir þá
ekki leyfa mér að fara“ spurði Figo
fiölmiðla. „Það er draumur minn að
leika fyrir Liverpool - en draumar
rætast jú ekki alltaf“, sagði Figo enn-
fremur.
Nýjasti leikmaður Liverpool, Bou-
dewijn Zenden, sem lék með Figo hjá
Barcelona, er vongóður um að sam-
komulagi verði náð og að þeir muni
leika saman á ný. „Hvaða lið sem
er vildi hafa Figo í sínum röðum og
hvaða leikmaður sem er myndi vilja
spila honum við hlið“, sagði Zenden.
„Augljóslega ræð ég engu um þetta
en við verðum bara að bíða og vona.“
Figo hefur einnig verið orðaður við
Newcastle, Bolton og gamla lið Zen-
dens; Middlesbrough.
Luis Figo
Sagir
Ertu ennpa að nota dukahmf ?_
Erum meö sagir
hraöastilli, sem henta vel
til að saga gifsplötur.
FESTO
Tenging viö ryksugu
tryggir nánast ekkert
ryk á vinnustað,
Beinn og góöur skurður
sem minnkar alla eftirvinnu
fyrir málara.
Minni kostnaöur
viö blikkkanta
..það aem
fagmaðurinn
ArmúU 17, IOB ReykJavOt
Sfml: 533 1234 fax: 5GB 0499
Vieira til Juventus?
Patrick Vieira, fyrirliði Arsenal, vill
hitta Arsene Wenger, stjóra liðsins,
og ræða um framtíð sína hjá félaginu
í kjölfar frétta um að Juventus vilji
fá leikmanninn til sín. ítölsku meist-
aramir hafa til þessa neitað því að
þeir séu að reyna að fá hinn 29 ára
gamla Vieira til liðs við sig og þá hafa
forráðamenn Arsenal neitað því að
fyrirliðinn sé á leið frá félaginu.Heim-
ildarmenn á Ítalíu hafa hins vegar
fullyrt að varaforseti Juventus, Ro-
berto Bettega, muni fljúga til London
í dag og ræða við forráðamenn Arsen-
al. Juventus eru sagðir hafa boðið
leikmanninn Stephen Appiah auk 5
milljóna punda fyrir Vieira en Arsen-
al er sagt vilja mun hærri upphæð fyr-
ir leikmanninn.
Forráðamenn Juventus eru einn-
ig sagðir áhugasamir um að klófesta
hinn 31 árs gamla kantmann Ar-
senal, Robert Pires. Pires ku vera
óánægður með að hafa aðeins verið
boðinn eins árs framlenging á samn-
ingi sínum við Lundúnaliðið.
Patrick Vieira
10. umferð
lýkur í kvöld
10. umferð Landsbankadeildar karla
lýkur í kvöld með tveimur leikjum
sem báðir hefjast klukkan 19:15.
Grindavík - Valur
Grindvíkingar fá Valsmenn í heim-
sókn og má búast við hörkuleik.
Grindvíkingar hafa hægt og rólega
verið að rífa sig upp eftir slakt gengi
í upphafi móts. Þeir eru ósigraðir í
síðustu fjórum leikjum og með sigri
í kvöld geta þeir kvatt fallbaráttuna,
a.m.k. í bili. Valsmenn munu og
leggja allt í sölurnar enda þurfa þeir
á öllum mögulegum stigum að halda
til að eiga möguleika á að halda í við
FH-inga í baráttunni um íslands-
meistaratitilinn. Vals-
menn eru níu stigum
á eftir Hafnfirðing-
unum en eiga leik-
inn í kvöld til góða.
Þróttur - ÍA
Hinn leikurinn er sögulegur fyrir þær
sakir að fyrrum landsliðsþjálfarinn,
Atli Eðvaldsson, hlýtur eldskím sína
sem þjálfari Þróttar þegar Skaga-
menn koma í heimsókn til þeirra í
Laugardalinn. Þróttarar sitja í botn-
sæti deildarinnar með fimm stig,
þremur stigum á eftir nágrönnunum
í Fram, og þurfa bráðnauðsynlega á
sigri að halda. Skagamenn sigla hins
vegar nokkuð lygnan sjó um miðbik
deildarinnar en munu vafalaust vilja
fylgja eftir góðum útisigri á KR-ing-
um í síðustu umferð með sigri í Laug-
ardalnum í kvöld.
Bikarkeppni
kvenna í kvöld
8-liða úrshtum bikarkeppni kvenna
lýkur í kvöld með þremur leikjinn.
Blikastúlkur fá Keflavík í heimsókn,
Fjölnir mætir ÍA í Grafarvogi og
Stjömustúlkur fá KR-inga í heimsókn
í Garðabæinn. Allir leikimir hefjast
klukkan 20. Undanúrslitin verða svo
leikin 24. ágúst næstkomandi.
Erfiður dráttur
fyrir Newcastle
Ljóst er að leið enska úrvalsdeildar-
liðsins Newcastle í gegnum Intertoto-
keppnina að Evrópukeppni félagsliða
á næsta tímabili verður ekki greiðfar-
in en dregið var í Intertoto-keppn-
inni í gærdag. Newcastle hefur leik í
þriðju umferð keppninnar þegar það
mætir slóvenska liðinu ZTS Dubnica
næstkomandi sunnudag en sigurliðið
úr þeirri viðureign mætir sigurliðinu
úr viðureign spænska liðsins Deporti-
vo La Corunia og króatíska liðsins
NK Slaven Koprivnica. Ef Newcastle
sigrar þá viðureign og kemst í einn
af þremur úrslitaleikjum keppninnar
gæti liðið þurft að mæta franska lið-
inu Marseille eða ítalska liðinu Lazio
í baráttunni um aukasæti í Evrópu-
keppni félagsliða.
Parker ekki með
Scott Parker, sem er nýgenginn
til liðs við Newcastle frá Englands-
meisturum Chelsea, verður ekki með
liðinu í Intertoto-keppninni vegna
meiðsla. „Ég hef ákveðið að gefa hon-
um eins langan tíma og mögulegt er
til að jafna sig,“ sagði Graeme Sou-
ness, stjóri þeirra röndóttu.
Souness vonast til að klófesta ann-
an leikmann í vikunni - tyrkneska
miðjumanninn Emre frá Inter Milan.
Sagði Souness að ef Emre kæmi til
Newcastle yrði hann einnig hvíldur
og tæki ekki þátt í Intertoto-keppn-
inni. „Emre fór ekki í sumarfrí fyrr
en fyrir þremur vikum þannig að
hann hefur ekkert hvílst að ráði. Á
síðustu leiktíð spilaði Evrópukeppn-
in alltof stóra rullu í tímabilinu
okkar og eyðilagði fyrir okkur deild-
ina. Við megum ekki láta það gerast
aftur“, sagði Soimess en Newcastle
hafnaði í 14. sæti ensku úrvalsdeild-
arinnar í fyrra.