blaðið - 12.07.2005, Page 25
blaðid I þriðjudagur, 12. júní 2005
nmng 25
Maðurinn á bak vi
Evan Hunter, sem öðlaðist frægð
sem Ed McBain, lést á dögunum
78 ára gamall. Á hálfrar aldar ferli
sínum skrifaði hann fjölda metsölu-
bóka, smásögur, leikrit og kvik-
myndahandrit. Á ferlinum seldi
hann rúmlega 100 milljónir eintaka
af bókum sínum. Hann hlaut nokkr-
ar viðurkenningar á ferlinum og var
fyrsti Bandaríkjamaðurinn sem fé-
lag breskra sakamálahöfunda heiðr-
aði.
Hann var sonur ítalskra innflytj-
enda og fæddist í New York. Hann
hét réttu nafni Salvatore Lombino
en breytti nafni sínu í Evan Hunt-
er árið 1952 af því hann taldi að út-
gáfustjórar væru fullir af fordómum
gagnvart rithöfundum með útlend
nöfn.
Árið 1954 skrifaði hann skáldsög-
una The Blackboard Jungle um ung-
an kennara sem kennir vandræða-
unglingum. Bókin varð að þekktri
kvikmynd með Glenn Ford og Sidn-
ey Poiter. Sakamálasaga hans, Cop
Hater, sem kom út árið 1956, þótti
raunsærri en áður hafði tíðkast. Þar
lék hin spillta stórborg stórt hlut-
verk, lýsingar voru oft hrottalegar
og samtöl þóttu sérlega trúverðug.
í kjölfarið fylgdu tugir slíkra sagna
sem hann skrifaði sem Ed McBain.
Hann skrifaði um 75 kvikmynda-
handrit og það frægasta er The
Birds sem Álfred Hitchcock leik-
stýrði svo eftirminnilega.
Skýringin á því hversu afkasta-
mikill hann var á ferlinum liggur
í því að hann skrifaði venjulega tíu
tíma á dag svo að segja alla daga vik-
unnar. ■
Ed McBain. Þessi vinsæli sakamálahöf-
undur lést á dögunum.
Claude Simon. Nóbelsverðlaunahafi
sem vildi vera titlaður sem vínrækta-
maður.
Nóbelsverðlauna-
hafi og vínrækta-
maður
Franski rithöfundurinn og Nóbels-
verðlaunahafinn Claude Simon er
látinn, 91 árs að aldri. Hann ætlaði
sér að verða málari en sneri sér að
ritstörfum og var höfundur um tutt-
ugu bóka sem einkenndust af mynd-
rænum lýsingum og samblandi af frá-
sögn og vitundarflæði. „Ég er erfiður,
leiðinlegur, ólæsilegur og ruglingsleg-
ur rithöfundur", sagði hann eitt sinn
í gríni.
Simon fæddist árið 1913. Faðir
hans féll í fyrri heimsstyrjöldinni en
sjálfur barðist hann í seinni heims-
styrjöldinni, var handtekinn af Þjóð-
verjum en flúði og gekk í frönsku
andspyrnuhreyfmguna. Hann var
pólitískur framan af en síðar á æv-
inni var hann kominn á þá skoðun að
ekki borgaði sig að ganga nokkurri
hugmyndafræði á hönd.
Simon var lágvaxinn, alvörugefinn
og fámáll maður og alla tíð ræddi
hann um ritstörf eins og hvert ann-
að starf sem væri ekkert merkilegra
en hvað annað. Auk þess að sinna rit-
störfum var hann vínræktabóndi og
bað ætíð um að þess starfs yrði getið í
ferilsskrám. Hann hlaut Nóbelsverð-
launin í bókmenntum árið 1985. ■
Ljóðasöngur
í Sigurjóns-
safni
Á sumartónleikum Listasafns Sigur-
jóns Ólafssonar þriðjudagskvöldið
12. júlí syngur Sigríður Aðalsteins-
dóttir þýska og íslenska ljóðatónlist
við undirleik Helgu Bryndísar Magn-
úsdóttur. Flutt verða verk eftir Jón
Ásgeirsson, Pál ísólfsson, Franz
Schubert, Robert Schumann, Johann-
es Brahms og Gustav Mahler.
Tónleikarnir hefjast klukk-
an 20:30. Kaffistofa safns-
ins er opin eftir tónleika.
Aðgangseyrir er 1500 kr.
WNSÆLUSH
mmm
) jlf
& , ,i)
HIDK
si i Kwy.
LJ
né f'
Hitch
Níutíu prósent af
því sem maður
segir, segir
maður ekki með
orðum. Will
Smith, Kevin
James og Eva
Mendes í frá-
bærri gaman-
mynd.
Million Dollar
Baby
Töframir felast í að
fórna sér fyrir
draum sem enginn
sér nema þú.
Óskarsverðlaun
sem besta mynd
ársins auk þrennra
aðra. Meistaraverk
sem allir verða sjá.
Hide and Seek
Sá sem vill
komast að
leyndarmálinu
verður að spila
leikinn. Robert
DeNiro er í
aðalhlutverkinu í
hörkuspennandi
sálfræðitrylli.
Assault on
Precinct 13
Eina leiðin út
liggur beint í
dauðann. Ethan
Hawke og Laur-
ence Fishburne
fara á kostum í
dúndurgóðri
hasar og
spennumynd.
©
Constantine
Helvíti bíður hans.
Himnaríki hafnar
honum. Jörðin
þarfnast hans.
Keanu Reeves er
John Constantine
sem er í æsilegri
baráttu við myrkra-
öflin í frumlegum
ævintýratrylli.
Closer
Þeir eru ófáir sem
halda því fram að
Closer sé ein besta
mynd sem gerð var
á síðasta ári og
hefur hún verið
hlaðin lofi og viður-
kenningum enda
toppleikarar í öllum
aðalhlutverkum.
The Aviator
Flestir láta sig
bara dreyma um
framtíðina. Hann
skapaði hana.
Frábær verð-
launamynd Mart-
ins Scorsese um
ævi auðkýf-
ingsins Howards
Hughes.
leetthc
Meet The
Fockers
Og þú sem hélst
að ÞÍNIR foreldrar
væru eitthvað
skrítnir. Stórstjörn-
urnar Robert
DeNiro, Ben Stiller
og Dustin Hoffman
í sprenghlægilegri
framhaldsmynd.
Ray
Á bak við einstak
tónlistina var
einstakur maður.
Jamie Foxx túikar
Ray Charles af
stakri snilld í einni
af bestu myndum
síðasta árs.
Shall We Dance?
Hvað er kallinn
eiginlega að
bauka eftir vinnu?
Stórleikararnir
Richard Gere,
Jennifer Lopez og
Susan Sarandon
í rómantískri
gamanmynd.