blaðið - 12.07.2005, Síða 26
þriðjudagur, 12. júlí 2005 I blaðið
WflR,"”WORIDS
INNRASIN ER HAFIN
- bara lúxus
Simi 553 2075
Ektd stórslysdmyrid
★ ★★
óon, nv
'Hollywood i cssinu sínu"
★★★*
Inmásin er gimlleg sumaiskemmtun, |
poppkornsmynd af bestu gerð!
★ ★★
★ ★★*
KvikmyiiíJir.is |
Sýnd Kl 5:30,8 og 10:20(POWER-SYNING). b.U4
SýndkL 10:15 U. 14
FRAB/ER GRINMYND
>•"08*
Svnd kl. 5:30
SýadkL 5:30,8 og 10:20. bxu
www.lauqa
w-
Wk:A- 'W
mA
■A*..
REGÍlBOGinn
SIMI 551 9000
Sýndkl. 5.30,8 og 10.30 - Powersýning B.i. 16 ára
400 kr. í bíó! Glldlr á allar sýnlngar merktar með rauðu
^ Mrs.
omith
Sýndkl. 5.30,8 oa 10.30 B.i. 14ára
Sýnd kl. 5.50,8 og 10.10 Sýnd kl. 6 og 9 B.i. 10 ára
SIMI564 0000
'S^
hug
SmfíRHKl BIO
HUGSAÐU STÓRT
□ÍJ Dolby /DD/ TFTx
Sýnd kl. 5.20,8,9,10.40 og 11.30 - Powersýnlng • Sýnd I lúxus kl. 6,9 og 11.30 B.i. 16 ára
Sýndkl. 3.30,5.45 og 8
BOURNÉlÍÍTTTY
Mr.,<. Mrs.
Sýndkl. 8 og 10.30 B.i. 14 ára
Madagascar ævintýrið í kvikmyndahús
Stafræna teiknimyndin Madagascar
ffá DreamWorks fyrirtækinu verður
ffumsýnd næstkomandi miðvikudag í
Sambíóunum, Háskólabíói og Laugar-
ósbíói. Áður hefur DreamWorks sent
ffó sér stórmyndirnar Shrek, Shrek 2
og Shark Tale sem hafa heillað áhorf-
endur um allan heim. Aðal vörumerki
þessara teiknimynda er grínið sem
höfðar jafnt til bama og fullorðinna
og því hafa menn beðið spenntir eftir
að bera nýjustu afurðina augum.
Strandaglópar í skóginum
Myndin fjallar um nokkur dýr í dýra-
garðinum í New York og ffábærir
gamanleikarar vora fengnir til að
ljá þeim rödd sína. Ljónið Alex (Ben
Stiller) er konungur dýragarðsins
og bestu vinir hans þar eru sebra-
hesturinn Marty (Chris Rock), gíraf-
finn Melman (David Schwimmer) og
flóðhesturinn Gloria (Jada Pinkett
Smith). Öll hafa þau eytt ævinni inn-
an vemdaðra veggja dýragarðsins og
látið mennina sjá um sig. Marty, sem
er einstaklega ævintýragjarn, verður
einn daginn mjög forvitinn um heim-
inn og vill skoða lífið utan rimlanna.
Hann ákveður því að stijúka úr garð-
inum og vinirnir þrír fylgja fast á eft-
ir. Saman flækjast þeir, ásamt nokkr-
um mörgæsum, um borgina þvera og
endilanga. Brátt fara dýrin að vekja
athygli í borginni og eru send með
skipi til heimalands síns Afríku en
ferðin endar ekki eins og skyldi og
dýrin verða strandaglópar á eyjunni
í Madagascar þar sem þau þurfa að
læra að bjarga sér sjálf. Það segir sig
sjálft að það gengur ekki allt eins og í
sögu og óhorfendur fó að fylgjast með
drepfyndnum atriðum þar sem dýrin
lenda í ótrúlegustu ævintýrum.
Myndin hefur slegið rækilega í
gegn þar sem hún hefur verið frum-
sýnd og skaust hún meðal annars í
efsta sæti topplistans í Bandaríkjun-
um eftir að hafa náð að hala inn 101
milljónum dala á fyrstu tíu sýningar-
dögunum.
Leikstjórar myndarinnar eru held-
ur ekki óþekktir teiknimyndagerð en
Eric Damell leikstýrði áður teikni-
myndinni Antz og Tom McGrath er
þekktur fyrir þættina um Ren og
Stimpy.
Myndin verður sýnd bæði með
íslensku og ensku tali í kvikmynda-
húsum og ætti því að henta allri fjöl-
skyldunni. Þeir sem sjó um íslenska
talsetningu eru þau Atli Rafn Sig-
urðsson (Alex), Rúnar Freyr Gíslason
(Marteinn), Valur Freyr Einarsson
(Melman) og Inga María Valdimars-
dóttir (Goría)
Myndatexti: Teiknimyndin Madagascar verður frumsýnd á miðvikudag og talsetning er meðal annars í höndum Ben Stiller, David Schwimmer, Chris Rock og Jada Pinkett
Smith.
Miðasala á
Patti Smith
Tónleikar á
Nasa 6. september
Eins og fram hefur komið mun rokk-
gyðjan Patti Smith halda tónleika á
Nasa ásamt hljómsveit sinni þann 6.
september. Það verða aðeins 550 mið-
ar í boði á tónleikana og því munu ef-
laust færri komast að en vilja. Miða-
sala hefst næstkomandi fimmtudag
klukkan 10:00 á öllum sölustöðum.
Miðar verða fáanlegir í verslunum
Skífunnar, BT á Akureyri og Sel-
fossi, á event.is og í síma 575-1522.
Miðaverð er 3.900 krónur.
Jackie Chan óánægður
með mótleikarann
Leikarinn Jackie Chan hefur gagn-
rýnt Chris Tucker, mótleikara sinn
úr Rush Hour myndunum, harðlega
fyrir að tefja fyrir framleiðslu þriðju
myndarinnar um fíflalegu slagsmála-
hundana. Chan segir að Tucker geri
allt of miklar kröfur og vilji til dæmis
fá heiðurinn af handritsgerðinni sem
hafi komið honum upp á kant við
framleiðendur myndarinnar. Hann
bætir því við að Tucker sé orðinn allt
of valdagráðugur en hafi engan veg-
inn efni á því þar sem hann sé enn
tiltölulega ungur og óreyndur leikari.
Tucker á þó nokkrar myndir að baki
sem hafa notið nokkurra vinsælda
og má þar nefna Friday, The Fifth
Element, Dead Presidents og Jackie
Brown. Stefnt er á að myndin verði
tilbúin á næsta óri en ef Tucker lærir
ekki að haga sér má búast við að út-
gáfa myndarinnar frestist eitthvað.
Leikstjóri myndarinnar er Brett
Ratner en hann leikstýrði einnig
fyrstu tveimur myndunum.