blaðið - 12.07.2005, Page 29
blaðið I þriðjudagur, 12. júlí 2005
[B dagskrá 29
Fjötmiðlar
Eftirminnilegar
persónur
kolbrun@vbl.is
íslendingar eru eins og kunnugt er
afar áhugasamir um skoðanir út-
lendinga á landi og þjóð. Þess vegna
hafa sennilega margir horft á bresku
myndina Stúlkan á kaffihúsinu sem
sýnd var á RÚV síðastliðið laugar-
dagskvöld. Þar kom Reykjavík við
sögu en átta helstu iðnríki heims
héldu þar fund sinn.
Vissulega mátti hafa ánægju af
svipmyndum
frá Reykjavík
og samtölum
persóna um
það sem fólk
vissi um ís-
land, sem virt-
ist aðallega
vera tvennt,
að Björk væri
íslensk og að
Fischer og
Spasský hefðu
keppt hér. Svo
mátti einnig orna sér við boðskap
myndarinnar um nauðsyn þess að út-
rýmafátækt
í heiminum
og bjarga
lífi svelt-
andi barna.
Samt verð
ég að segja
eins og er að
boðskapur
í myndum
virkar oft á
mig eins og
fyrirlestur
- og mér leið-
ast fyrirlestrar.
Myndin heillaði mig ekki vegna
umræðna um ísland og ekki heldur
vegna boðskaparins en framsetning
hans var stundum svo tilfinninga-
söm að maður varð dálítið vandræða-
legur. Það sem gerði myndina svo
eftirminnilega var einstaklega góður
leikur aðalleikara. Kelly MacDonald,
sem lék stúlkuna á kaffihúsinu, dró
upp trúverðuga mynd af einlægri og
hreinskilinni manneskju og manni
fannst að þannig myndi persónan
ætíð verða, jafnvel þótt hún yrði
níræð. Bill Nighy átti stórleik í hlut-
verki embættismannsins og túlkaði
snilldarlega feimni, hik og óöryggi
þess sem verður ástfanginn þegar
hann á síst von á því.
Það er ekki alltaf sem maður sér
mynd þar sem maður trúir á per-
sónur og stendur með þeim en það
gerðist þarna og var leikurunum að
þakka, miklu fremur en handritshöf-
undi.
Og fyrst verið er að tala um það
sem breskt er þá ber að þakka fyrir
Kastljóssþáttinn með breska sendi-
herranum. Sendiherrann kom vel
fyrir, var yfirvegaður og rökfastur.
Góður fulltrúi Breta hér á landi. ■
22.00 Tíufréttir
22.20 Fótboltakvöld
22.35 Rannsókn málsins VII (1:2)
(Trial And Retribution, Ser. 7)
Bresk sakamálamynd frá árinu 2003
þar sem lögreglan fær til rannsóknar
sériega snúið sakamál. Leikstjóri er
Charles Beeson og meðal leikenda eru
David Hayman, Victoria Smurfit, Charl-
es Dance og Neve Mclntosh. Atriði í
myndinni eru ekki við hæfi barna. Seinni
hlutinn verður sýndur að viku liðinni.
21.00 Eyes (1:13)
21.45 Shield (11:13)
(Sérsveitin 4) The Shield gerist í Los
Angeles og fjallar um sveit lögreglu-
manna sem virðist hafa nokkuð
frjálsar hendur. Vic er ekki lengur
aðalmaðurinn og verður að lúta stjóm
nýja yfirmannsins, Monicu Rawling.
Stranglega bönnuð bömum.
22.30 Navy NCIS (17:23) (Glæpadeild
sjóhersins) Bönnuð bömum.
21.00 Brúðkaupsþátturinn Já
Sjötta sumarið í röð fylgist Elín Mar-
ía Björnsdóttir með fólki sem hyggst
ganga í hjónaband.
22.00 CSI: Miami
22.45 Jay Leno
21.00 Joan Of Arcadia (3:23)
Táningsstelpan Joan er nýflutt
til smábæjarins Arcadia þegar skrýtn-
ar uppákomur fara að henda hana.
22.00 Kvöldþáttur
22.45 David Letterman
21.30 Stjörnukylfingur íslands
22.00 Landsbankamörkin
22.20 Sporðaköst II (Víðidaisá)
22.50 NBA - Bestu leikirnir
(LA Lakers - Boston Celtics 1987)
22.00 Mona Lisa Smile (Bros Mónu
Lísu) Dramatisk kvikmynd sem gerist
í Wellesley-framhaldsskólanum um
miðja 20. öldina. Þetta er stúlknaskóli
þar sem fæstir nemendanna eiga
stóra drauma um afrek í atvinnulífinu.
Þannig er tíðarandinn en hlutirnir
breytast þegar Katherine Watson
kemur til starfa í Wellesley. Hún kenn-
ir listasögu og er fljót að hrista upp f
hinu rótgróna skólasamfélagi.
k. • 'ík;
23.15 Tangled (Flækjur)
Spennumynd. Lögreglan hefur rann-
sókn þegar maður finnst illa til reika
og virðist hafa oröið fyrir líkamsárás.
Vinkona mannsins blandast í málið og
þriðji aðili sömuleiðis. Margt bendirtil
að hér sé um ástarþríhyming að ræða
og að afbrýðisemin hafi tekið völdin.
Stranglega bönnuð bömum.
23.30 The Contender (e)
Leitin að næstu hnefaleikaleikastjörnu
er hafin! Sextán hnefaleikakappar
hafa verið valdir til að taka þátt í sam-
keppni um hver er efnilegastur. í hverj-
um þætti munu tveir þeirra berjast og
sá sem tapar verður sendur heim.
4
00.15 Kastljósið
Endursýndur þáttur frá því fyrr um
kvöldið.
35.35 Dagskrárlok
00.40 Revelations (1:6)
(Hugljómun) Bönnuð bömum.
01.25 Cold Case 2 (23:23)
(Óupplýst mál) Bönnuð börnum.
02.10 Fréttir og island í dag
03.30 ísiand í bítið
Fjölbreyttur fréttatengdur dægurmála-
þáttur þar sem fjallað er um það sem er
efst á baugi hverju sinni í landinu.
05.30 Tónlistarmyndbönd frá Popp TiVí
00.15 Cheers - 4. þáttaröð (e)
00.40 Boston Public
01.20 QueerasFolk
Frábærir þættir um vináttu þriggja
samkynhneigðra karlmanna í Man-
chester.
01.35 Óstöðvandi tónlist
00.15 Friends (12:24) (Vinir)
00.40 Kvöldþáttur
01.25 Seinfeld 2 (7:13)
(Phone Message)
Við fylgjumst nú með bráðfyndna ís-
landsvininum Seinfeld frá upphafi.
00.00 Skipped Parts
(Dónalegu kaflarnir)
(Fjörutíu dagar og nætur)
Bönnuð börnum.
04.00 Mona Lisa Smile
(Bros Mónu Lisu)
Aðalhlutverk: Julia Roberts, Kirsten
Dunst, Julia Stiles. Leikstjóri: Mike Ne-
well. 2003. Leyfð öllum aldurshópum.
Molar
Ashley
gengin
út
Ashley Olsen, ann-
ar helmingur hinna
þekktu Olsen tví-
bura, er komin með
kærasta. Jared Leto
er sá heppni og hafa
þau sést saman und-
anfarið. Þau voru í
keilu nýverið þar sem
Ashley dansaði fyrir
hann á kynþokka-
fullan hátt.
Of mikill
aldursmunur
Mikið er talað um hvenær
Demi Moore og Ashton
Kutcher gangi upp að
altarinu en þau hafa
verið saman í rúm-
lega tvö ár. Vinur
hjónaleysanna telur
ástæðuna fyrir því að
þau hafi ekki enn gifst
vera sú að Demi finnst
aldursmunurinn heldur
mikill. „Demi er mjög ást-
fangin af Kutcher og hefur
aldrei verið hamingjusamari.
Hún vill sennilega ekki að þeirri
hamingjuljúkivegna ald
ursmunar.Demi
h e f u r
ekki
Af netinu
áhyggjur af nútíðinni. Hún hefur
meiri áhyggjur af framtíðinni, þeg-
ar hún er 52 ára og Kutc-
her er 37 ára. Eg held
hún haldi að þegar
hún eldist muni
Kutcher bera
hana saman
við konur á
hans aldri
og hún mun
ekki þola
samanburð-
inn.“ Þær
áhyggjur
virðast vera
óþarfar því
samkvæmt
heimildum hefur
Kutcher ekki svo
mikið sem litið á
aðrar konur síðan
hann hitti Demi.
Hvers á Dabbi að gjalda? Man ein-
hver eftir tónlistarmanninum sem
Jón Gnarr lék í Fóstbræðrum? Stóð
í strætóskýli með kúrekahatt og gít-
ar á öxlinni. Ótrúlega hallærisleg
týpa. Þetta var eitt fyndnasta atrið-
ið í þáttunum, lýsti misheppnuðum
íslenskum tónlistarmanni rosalega
vel. Textarnir voru ömurlegir og lög-
in enn lélegri en karlinn ætlaði sko
ekkert að gefast upp. Leiðinlegt... en
auglýsing hans Davíðs Smára minnir
mig óneitanlega á þennan umrædda
karakter Jóns Gnarr. Auglýsingin
er eins og eitthvað grín. Þegar hann
labbar niður brekkuna, útskeifur og
afturhallandi. Stendur síðan við hand-
riðið með aðra löppina beygða...er
hann ekki að grínast? Ég hef ekkert
á móti Davíð Smára en ef það er ekki
hann sem er að djóka með þessari
auglýsingu þá er starfsmaður á ein-
hverri auglýsinga-
stofu hér á landi
í hláturskasti ein-
mitt núna... hann
hlýtur að vera að
grínast í kallinum.
http://blog.central.
is/beggerts
Éghorfðiátvo
sjónvarpsþætti
um helgina sem
ég skemmti mér
feykilega vel
yfir. Hinn fyrri
var spjallþátt-
ur Guðmundar
Steingrímsson-
ar á Sirkus. Ég
er í þeim hópi
sem finnst Sir-
kus skemmti-
leg viðbót við
annars ágæta
afþreyingu í
sjónvarpsmiðl-
unum. Guð-
mundur er reffi-
legur gæi og
er að ná fínum
tökum á dæm-
inu. Umræður um kynlíf unglinga,
stjórnað af ungum Adda Back, voru
fróðlegar. Máni útvarpsmaður var
þar afturhaldssamastur allra og ég
deildi náttúrlega öllum skoðunum
hans. Rapportið milh Guðmundar
og Helgu Braga í sófanum á eftir var
líka flæðandi og litríkt. Kvöldið áður
var Guðmundur með Silvíu Nótt. Ég
hafði ekki séð þá merku konu áður
og hafði heyrt og lesið sitthvað um
húmor hennar. En sennilega er ég lé-
legur húmoristi því mér fannst hún
óborganleg. En aldrei mvm ég hætta
mér í viðtal við hana! Hinn þátturinn
var Kastljósið í gærkvöld. Þar voru
þrjár flottar konur. Ég gæti setið
heilt kvöld og hlustað og horft á Hildi
Helgu Sigurðardóttur. Hún er sann-
kallaður karakter í sjónvarpi. Vest-
firsk frásagnargleði hennar er engu
lík. Hún segir sögur afslöppuð einsog
hún sé stödd í eldhúsinu hjá ömmu
sinni fyrir vestan og minnti mig mjög
á sagnagleði móðursystra minna.
Dásamlegast var að hún nennti ekk-
ert að svara þeim spumingum sem
stjórnendur þáttarins vörpuðu til
hennar og hélt bara áfram að segja
frá því sem hana langaði til - með
sínum einstöku andlitsáherslum.
Kastljósið ætti að fá Hildi Helgu sem
reglulegan föstudagsgest og kannski
bjóða Silvíu Nótt líka!
http://www.web.hexia.net/rolIer/
page/ossur