blaðið - 20.10.2005, Side 6
6 I INNLENDAR FRÉTTIR
FIMMTUDAGUR 20. OKTÓBER 2005 blaftið
Meiðyrðadómur Hannesar
vegna handvammar HÍ?
Beiðni Hannesar Hólmsteins um að heimasíðu sinni yrði lokað var ekki sinnt afstarfs-
manni Háskólans, en í kjölfarið sigldi stefna Jóns Ólafssonar. Dómur í hliðstœðu máli í Kan-
ada hafnaði því að menn gœtu valið sér sóknarþing vegna meiðyrða á netinu.
BlaÖiÖ/SteinarHugi
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
óskaði eftir því við starfsmann
Háskólans að heimasíða sín yrði
tekin niður í júlí 2004, en það
fórst hins vegar fyrir þar til hann
sendi ítrekun um það í september
sama ár, eftir að stefna barst frá
Jóni Ólafssyni vegna ummæla
um sig á síðunni.
í Fréttablaðinu í gær var það
haft eftir Friðriki Rafnssyni, hjá
markaðs- og samskiptadeild Há-
skólans, að engin merki væru
um það í sínum bókum að Hann-
es hefði óskað eftir því að síðan
væri tekin niður fyrr um haust-
ið. Hannes hefur hins vegar lagt
fram tölvupósta sína um málið
og samkvæmt þeim óskaði hann
eftir því hinn 3. júlí 2004 að síðan
yrði tekin niður, en þá hafði hon-
um borist áskorun um það frá
lögmannsstofu Jóns í Englandi.
Friðrik sagði í samtali við Blaðið í
gær að þetta væri rétt athugað hjá
Hannesi og að hann hafi áfram-
sent beiðnina, en af einhverjum
ástæðum hafi henni ekki verið
sinnt. Vegna þessa tómlætis var
Hannesi stefnt, en þá ítrekaði
hann beiðnina hinn 6. septemb-
er 2004 og var hún þá loks tekin
niður.
Lögsaga á netinu vafasöm
Ailt frá því að netið varð almenn-
ingseign hafa verið uppi umræð-
ur um lögsögu á því.
Nýlega féll dómur
í Óntario í Kan-
ada í máli,
sem að
mörgu
leyti er
hlið-
stætt
m á 1 i
J ó n s
gegn
Hann-
esi. Þar
stefndi
Fílabeins-
strandar-
maðurinn Cheickh Bangoura,
sem áður var embættismaður
Sameinuðu þjóðanna, bandaríska
dagblaðinu Washington Post fyr-
ir meiðyrði um sig árið 1997, en
í greinum blaðsins höfðu komið
fram alvarlegar ásakanir á hendur
honum um kynferðislega áreitni,
fjármálamisferli og fleira.
I dómnum kom fram að stefn-
andi hefði ekki stefnt vegna um-
mælanna þegar þau voru
birt, heldur beðið með
það í mörg ár. Það
hefði hann síðan
gert í Kanada
eftir að hafa að-
eins búið þar
um þriggja
ára skeið, auk
þess sem gögn
sýndu að einu
Kanadamenn-
irnir, sem skoð-
að hefðu grein-
arnar á þeim tíma,
væru lögmenn stefn-
anda. „Væri stefnanda heimilt að
flytja búferlum og leggja fram
lögsókn þar vegna atburða, sem
áttu sér stað annars staðar, væri
það verulega íþyngjandi fyrir
stefnda.“
Jafnframt kom fram að stefndi
gæti ekki sagt fyrir um það við út-
gáfu hvert leið stefnanda lægi síð-
ar í lífinu. „Að halda öðru fram
myndi leiða til þess að lögsækja
mætti varnaraðila nánast hvar
sem er í heiminum eftir því hvar
sóknaraðili kýs að skrá lögheim-
ili sitt, löngu eftir útgáfu meiðyrð-
anna.“ ■
Tveir litir Hvrtt-Silfur
Atelur Sjálfstæðis-
flokkinn fyrir
tvískinnungshátt
Fjallað var um flugvöllinn í Reykjavík í
utandagskrárumrœðu á Alþingi ígœr
Björgvin Sigurðsson, þingmaður
Samfylkingarinnar, gagnrýndi
Sjálfstæðisflokkinn fyrir tvískinn-
ungshátt og stefnuleysi í afstöðu
sinni til flugvallarins í utandag-
skrárumræðu um Reykjavíkur-
flugvöll sem fram fór á Alþingi
ígær
Málshefjandi að umræðunni var
Guðlaugur Þór Þórðarsson, þing-
maður Sjáifstæðisflokksins, en
hann lagði fram fyrirspurnir til sam-
gönguráðherra hvort m.a. til greina
kæmi að flytja flugvöllinn og koma
upp millilandaflugvelli á öðrum
stað í borginni og nefndi sérstaklega
Miðdalsheiði í því samhengi. I svari
ráðherra kom fram að settur hefði
verið á fót sérstakur vinnuhópur til
að vinna að málinu og enn lægi ekki
niðurstaða fyrir. Hann benti einnig
á að í þessu máli væru miklir hags-
munir í húfi og taldi nauðsynlegt
að reyna komast að niðurstöðu sem
menn gætu sæst á. Ráðherra taldi
ólíklegt að byggður yrði annar milli-
landaflugvöllur á suðvesturhorninu
og sagði ennfremur að nýbúið væri
að byggja upp Reykjavíkurflugvöll
og því óráðlegt að rífa hann niður á
næstunni.
Umdeilt mál
Björgvin Sigurðsson gagnrýndi Sjálf-
stæðisflokkinn og sagði lítið sam-
ræmi milli yfirlýsinga þeirra sem
nú berjast um að fá að leiða borgar-
stjórnarflokk Sjálfstæðisflokksins
og þeirra sem sitja á þingi þar sem
annar aðilinn vilji flugvöllinn burt
og hinn að hann verði áfram. Björg-
vin lagði áherslu á að ekkert annað
kæmi til greina en að Reykjavíkur-
flugvöllurinn færi til Keflavíkur,
annað væri bara sóun á fjármunum.
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, oddviti
Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík,
sagði í samtali við Blaðið ekki taka
gagnrýni Björgvins alvarlega. Hann
segir flugvallarmálið vera erfitt mál
og nauðsynlegt sé að fá niðurstöðu í
því. „Þetta mál klýfur Reykvíkinga
í tvær fylkingar og um það hefur
verið deilt í tvo áratugi. Þetta klýf-
ur líka stjórnmálaflokka ekki síður
aðra flokka en Sjálfstæðisflokkinn
þannig að það verður að fara að fást
niðurstaða í málið.“ ■
m5
R-
EISLA
Aðeins kr. 2500.-
Munið frítt á afmælisdaginn
S. 565 1130
ahansen.is
Varnarmál:
Viðræðum um framtíð
Varnarliðsins frestað
Hætt var við viðræður íslenskra og
bandarískra embættismanna um
framtið varnarstöðyarinnar í Kefla-
vík, sem áttu að hefjast í Washing-
ton, höfuðborg Bandaríkjanna í gær,
og er íslenska sendinefndin væntan-
leg heim aftur í dag.
Ríkisútvarpið hafði það eftir Ro-
bert Lostis, formanni bandarísku
viðræðunefndarinnar, að íslenska
sendinefndin, sem er undir forystu
Alberts Jónssonar sendiherra, hefði
aflýst þátttöku Islendinga á fundin-
um og af frekari fundahöldum yrði
því ekki í bráð.
Þetta mun hafa gerst í kjölfar við-
ræðna þeirra Alberts og Lostis, en
í þeim hefði á daginn komið að við-
ræðurnar væru ekki komnar á stig
efnislegra samninga líkt og vonir
hefðu staðið til.
Ekki hafði verið búist við að við-
ræðurnar leiddu til endanlegrar
niðurstöðu, enda um flókið mál að
ræða og innan Bandaríkjastjórnar
eru ólik sjónarmið á lofti um hana.
Varnarmálaráðuneytið vill minnka
umsvifin til muna, en innan utan-
ríkisþjónustunnar og Hvíta hússins
ríkir mun meiri skilningur á af-
stöðu Islendinga.
Helsti ágreiningur ríkjanna, auk
umfangs varnarviðbúnaðar, felst
í skiptingu kostnaðar við rekstur
stöðvarinnar, en fyrir liggur að Is-
lendingar þurfi að axla frekari byrð-
ar að því leyti í framtíðinni. ■
Krani
Blaliö/SlelnarHugi
Byggingakrani við Landspitalann féll á hliðina i gær þegar jarðvegur undir honum gaf sig. Kraninn féll yfir akveg þar við hliðina en
ekki urðu slys á fólki né skemmdir á eignum. Nokkurn tima mun taka að flytja kranann í burtu og
verður því Háaleitisbraut neðan við bifreiðastæði við Landspítalann lokuð fram á Föstudag.
2005