blaðið - 20.10.2005, Síða 8
8 I XNNLENDAR FRÉTTIR
FIMMTUDAGUR 20. OKTÓBER 2005 blaöið
Rjúpnaveiði:
Gjaldtaka í góðu lagi
Sveitarstjóri Húnaþings vestra segist hafa heyrt afgagn-
rýni áfyrirkomulagveiðileyfagjalds en segir ákvörðun-
ina réttmceta.
Skúli Þórðarson, sveitarstjóri í Húna-
þingi vestra segir ekki rétt að bann
við rjúpnaveiðum hafi verið sett á
svæðinu eins og kom fram í máli Sig-
mars B. Haukssonar, formanns Skot-
vís í Blaðinu í gær. Þar sagði Sigmar
að sett hefði verið bann við rjúpna-
veiðum á Víðidalstunguheiði og
Arnarvatnsheiði. Sigmar gagnrýndi
einnig gjaldtöku þá sem viðhöfð er
í Húnaþingi þar sem heimamenn
greiða 3.000 krónur fyrir veiðileyfi
á meðan utanbæjarmenn þurfa að
greiða 5.000 krónur. „Við höfum
ekki bannað veiðar á rjúpu á þessum
svæðum," Skúli sagði það hins vegar
rétt hjá Sigmari að greiða þurfi fyr-
ir veiðileyfi í Húnaþingi, og eigi það
við um Víðidalstunguheiði og Arn-
arvatnsheiði. „Þetta eru reglur sem
sveitarstjórnin hefur samþykkt, og
við erum að mælast til að fólk fylgi.
Ég hef heyrt þessa gagnrýni á fyrir-
komulag gjaldtökunnar og er það
eitthvað sem við erum að skoða
núna. Hvort þessu verði brey tt núna
í haust eða að ári get ég ekkert sagt
um. Við teljum okkur vera í fullum
rétti til að gera þetta á þennan hátt
en við tökum ábendingunum bara
vel og vegum og metum þessa stöðu.“
Skúli sagði enga gaumgæfilega at-
hugun á því hvort það standist lög
að utanbæjarmenn þurfi að greiða
hærra verð fyrir veiðileyfi. „Hugs-
unin á bak við það að heimamenn
greiði lægra verð er einfaldlega sú
að þeir fái að njóta nálægðarinnar,
og það er ekkert óeðlilegt við það að
mínu mati.“
Styrkja Stigamót
A uppskeruhátíð byggingariðnaðarins sem haldin var í samvinnu við Steypustöðina 8. október sl. voru seld vináttubönd til styrktar
Stígamótum. Fjöimörg fyrirtæki og einstaklingar gáfu í söfnunina. (gær var svo forsvarsmönnum Stígamóta afhentur afraksturinn
sem nam alls einni og hálfri milljón króna.
vinnum meira Fyrstu vöruT á markað í nóvember
Islendingar vinna að meðaltali
4% lengur um þessar mundir
en þeir gerðu fyrir ári síðan.
Þetta kemur fram í nýjum
niðurstöðum úr ársfjórðungs-
legri vinnumarkaðsrannsókn
Hagstofu, sem birtar voru í gær.
Er ástæðan rakin til spennu
á vinnumarkaði og minna at-
vinnuleysis nú miðað við sama
tíma í fyrra. Meðalfjöldi vinnu-
stunda um þessar mundir eru
tæplega 44 klst. á viku hverri.
gorenje ÍSSKÁPUR
Verð kr. 69.900
Áður kr. 96.900
RÖNNING
Borggrtúni 24 | Reykjavík | Sími: 562 4011 | Óseyri 2 | Akureyri | Sími: 460 0800
Lifeyrissjóðir:
Mikil aukn-
ing eigna
Eignir íslenskra lífeyrissjóða
hafa aukist um 123 milljarða
króna, eða 12,5% það sem af
er þessu ári. Frá þessu er sagt
á heimasíðu Viðskiptablaðs-
ins í gær. Þar segir ennfrem-
ur að i ágúst síðastliðnum
hafi eignir sjóðanna numið
í.no milljöðrum króna.
„Erlendar eignir sjóðanna
námu 264 milljörðum króna
eða 23,8% af heildareignum.
Hlutfall erlendra eigna í árslok
2004 nam hins vegar 22,1% og
nemur aukningin tæplega 80
milljörðum króna. Sérstaka
athygh vekur að innlend
hlutabréfaeign hefur vaxið
um 28,9% frá árslokum 2004
eða um tæplega 37 milljarða
króna enda hefur úrvalsvísi-
talan hækkað um 38% frá
áramótum “ segir ennfremur á
heimasíðu Viðskiptablaðsins.
Leðurjakkar
Áður: 14.900.-
Nú: 9.990.-
Laugavegi 54,
sími 552 5201
Framkvœmdastjóri Mjólku sakar mjólkuriðnaðinn um að bregða fœti fyrir fyrirtækið.
Vífilfell hf keypti nýverið 30% hlut í Mjólku.
Ólafur M. Magnússon framkvæmda-
stjóri Mjólku segir að með aðkomu
Vífilfells hafi fyrirtækið fengið öfl-
ugan bakhjarl með langa og farsæla
reynslu af því að framleiða inn á
hinn kröfuharða íslenska neytenda-
markað. „Samstarf við Vífilfell
mun treysta Mjólku mjög í þeirri
samkeppni sem framundan er við
ríkisstyrktan samkeppnisaðila.“
Mjólka er sem kunn-
ugt er starfandi utan
greiðslumarkskerfis
landbúnaðarins og nýt-
ur því ekki framleiðslu-
styrkja frá ríkinu. „Við
höfum gengið frá sam-
starfssamningi á milli
fyrirtækjanna," segir
Ólafur í samtali við
Blaðið. „Samstarfið gef-
ur okkur ákveðin tæki-
færi sem við horfum
á til framtíðar enda hefur Vífilfell
gríðarlega mikla þekkingu á sölu og
markaðsmálum, sölu og dreifingar-
málum auk þess að vera mjög stór
framleiðandi.“ Mjólka er að vinna
að því að koma fyrstu
vöru sinni, fetaosti, á
markað.
fhuga lögsókn
„Það gengur ágætlega
nú um stundir hjá
okkur, þó að það hafi
nú gengið á ýmsu.
Það sem hefur komið
okkur mest á óvart
er ákveðin tregða í
kerfinu til þess að af-
greiða þau erindi og annað sem við
höfum þurft að fá afgreidd. Við höf-
um líka fundið fyrir því, og erum
við að láta skoða þau mál hjá lögfræð-
ingi okkar, að mjólkuriðnaðurinn
hefur beinlínis verið að bregða fyrir
okkur fæti. Þar á ég við til dæmis
að okkur hefur verið neitað um að
kaupa undanrennuduft til iðnaðar-
framleiðslu. Duftið er niðurgreitt
af ríkinu um 47% og hafa innlendir
framleiðendur þurft að sæta því að
geta ekki keypt það á heimsmarkaðs-
verði þar sem það hefur oft á tíðum
verið mun lægra. Því finnst okkur
mjög skrítið þegar einokunarfyrir-
tæki eins og Osta og smjörsalan neit-
ar að afgreiða okkur um vöruna. En
það stoppar okkur ekki neitt og við
erum farin að framleiða vörur sem
neytendur mega búast við að komi í
verslanir í nóvember." ■
RYMINGARSALA
1
SERVERLUN MEÐ INNRETTINGAR OG STIGA
7® AFSLÁTTUR AF NÝJUM VÖRUM TIL 22. OKT.
A ELDHÚS OG BAÐINNRÉTTINGUM VEGNA
ENDURNÝJUNAR í SÝNINGARSAL.
AFSL. ER VEITTUR AF
SÝNINGARINNRÉTTINGUM
W7W7W/d
Hamraborg 1 • 200 Kópavogur • Sími 554 4011 • Fax 554 4111 •
a
3JUOI
inn val@inn val. is