blaðið - 20.10.2005, Síða 16
16 I VIÐTAL
FIMMTUDAGUR 20. OKTÓBER 2005 blaöið
— — wm
Auglýsingar
Vandaðir
& ÞÆGILEGIR
Alyson Bailes
• Kryddreykt VILUGÆSABRINÚA með APPELSlNUM og sherry vinaiúrette
■ VlLLISEYÐI Cappuccino með gráðosta oc sveppafylltu ravioli
■ JURTAKRYDDAÐ GRÆNLENSKT HREINDÝR MEÐ PORTVÍNSCLJÁA
• BLÁBERJA Panna Cotta með stökkum bakstri
■ VER£>: KR. 6.200.-
SÉRVALIN VÍN MEÐ MATSEÐLI KR. 2.900.-
(0/4/ '
f 'a aiá...
... úíerbák 6/o m /y/esk e
Herinn vœntanlega
ÍSLENSK BLÓM
FJÓRIR PISKAR - FJÖOUR CIÖS
FjÓRRÉTTAÐUR /J///ÁáÁzAÆÁ//
Alyson Bailes er heimsþekktur
fræðimaður á sviði öryggis- og
varnarmála. Hún er í dag for-
stöðumaður SIPRI, Stockholm
Peace Research Institute, í
Svíþjóð en starfaði þar áður
meðal annars í bresku utanrík-
isþjónustunni og breska varn-
armálaráðuneytinu um langa
hríð. Þá hefur hún skrifað fjölda
fræðigreina um öryggis- og varn-
armál í Evrópu, samstarf Evrópu
við Bandaríkin, framtíð NATO
og afvopnunarmál svo fátt eitt
sé nefnt. Hún tók nýverið sæti í
stjórn Alþjóðamálastofnunar og
Rannsóknaseturs um smáríki við
Háskóla íslands og gildir skipun-
in til þriggja ára. Blaðið ræddi
við Alyson að þessu tilefni um
ástæðurnar fyrir því að hún sé
farin að starfa með íslenskri rann-
sóknarstofnun, stöðu íslands í
heimsþorpinu og hvað framtíðin
muni bera í skauti sér fyrir al-
þjóðasamfélagið.
Ermikill íslandsvinur
Þegar að Alyson er spurð að því
hvernig það vildi til að hún gerðist
viðriðin smáríkjasetur Háskóla ís-
lands segir hún að hún hafi heim-
sótt ísland sem ferðamaður síðast-
liðinn 24 ár og er mikill aðdáandi
lands og þjóðar. „I nýlegustu heim-
sóknum minum hef ég verið að
koma mér upp tengslum við aðila í
bæði opinberum hópum og innan
menntastofnanna landsins. Síðustu
þrjú ár hefur Háskóli íslands boðið
mér að flytja fyrirlestra á meðan
að heimsóknir mínar hafa staðið
yfir. f gegnum það samstarf hef ég
myndað vináttubönd við ýmsa aðila,
sérstaklega Baldur Þórhallsson sem
kynnti mig fyrir smáríkjasetrinu
og við erum nú þegar orðin mjög
nánir samstarfsaðilar i því verkefni.“
Aðspurð segir Alyson að henni hafi
fundist mjög áhugavert að taka þátt
í að flytja fyrirlestra í námskeiðum
setursins síðastliðin sumur og að
það hefði verið gaman að sjá hversu
fjölbreyttur hópur fólks frá hinum
ýmsu löndum sýndi þessum mála-
flokki áhuga.
Undantekning frá reglunni ef
herinn fær að vera á fslandi
Alyson segir að það sé yfirlýst stefna
Bandaríkjanna að draga saman her-
afla sinn um allan heim. Það er ekki
bara á ísland sem þessi þróun á sér
stað heldur líka í löndum eins og Jap-
an og Suður Kóreu. Hún segir að til-
gangur þessara aðgerða sé fyrst og
fremst sá að hafa eins stóran hluta
bandaríska hersins og mögulegt er
tiltækan á þeirra eigin landssvæði
og að losa herafla til að takast á við
nýverkefniíbreyttumheimi. „Ef að
Bandarikjamenn myndu leyfa þess-
um herafla að vera áfram á fslandi
þá væru þau að gera undantekningu
á yfirlýstri stefnu sinni.“
Alyson segir að þessi samdráttur
eigi sér stað allstaðar þar sem Banda-
ríkin séu með herstöðvar. „Hvar
sem er í heiminum þar sem Banda-
ríkin reyna að loka herstöðvum og
draga saman seglin eru staðbundin
öfl sem benda á þeirra eigin ástæð-
ur fyrir því að herstöðvarnar eigi
að vera áfram. Þetta eru samt sem
áður á endanum samningsviðræður
þar sem Bandaríkjamenn eru með
öll trompin á hendi,“ segir Alyson
og undirstrikar að afstaða fslend-
inga er ekki með neinu móti einstök.
Þá heldur hún ekki að vera hersins
hér á landi geri fsland að líklegara
skotmarki óvinveittra afla. Það hafi
mögulega verið raunin á tímum