blaðið - 20.10.2005, Qupperneq 20
20 I VIÐTAL
FIMMTUDAGUR 20. OKTÓBER 2005 blaAÍÖ
Verkin skipta mestu máli
Þessa dagana er Baltasar Kormákur
að gera nokkrar endurbætur á mynd
sinni Little Trip to Heaven. „Éftir
sýningu á myndinni í Toronto
ákvað ég að laga hana aðeins," segir
Baltasar. „Erlendis eru myndir
forsýndar, viðbrögð könnuð og síðan
jafnvel gerðar endurbætur en vegna
smæðar íslenska markaðarins tíðkast
þetta ekki hér heima. Menn eru líka
kannski hræddir við að mynd spyrjist
neikvætt út ef unnið er í henni eftir
forsýningu. Ég óttast þetta ekki og
ákvað að nýta tækifærið því myndin
verður ekki frumsýnd hér á landi
fyrr en eftir áramót. Síðan er ég að
undirbúa vinnslu á kvikmynd eftir
sögu Arnaldar Indriðasonar, Mýrinni,
sem ég og Lilja konan mín framleiðum.
Það var nokkuð auðvelt að gera
kvikmyndina 101 Reykjavík vegna
þess að þótt bókin hafi öðlast sinn sess
þá fékk hún á þeim tíma ekki sérlega
góð viðbrögð og það skapaði ákveðið
frelsi fyrir mig sem framleiðanda og
leikstjóra. Eiginlega er betra að gera
mynd eftir bók sem hefur ekki fengið
glimrandi viðtökur. Það eru sterkar
væntingar sem fylgja kvikmynd eftir
Mýrinni og maður hefur ekki alveg
sama frelsi. Hrokapúkinn í manni
segir: Ég geri það sem mér sýnist.
En samt er það ekki þannig með vel
heppnaðar bækur. Maður verður að
finna rödd kvikmyndarinnar og setja
sinn eigin stimpil á hana en um leið
verður maður að vera efninu trúr.“
Finnurðu stundum fyrirhrœðslu um að
mistakastsem listamaður?
,Það að mistakast er nauðsynlegur
þáttur í því að vera listamaður. Mér
hefur gengið misvel með það sem ég
hef gert þótt flest hafi gengið tiltölulega
vel. Ég held að engir alvöru listamenn
fari í gegnum lífið án þess að verða
fyrir einhverjum áföllum. Mistök
eru sennilega óumflýjanlegur þáttur
velgengninnar."
Tilheyri engum hóp
Faðir þinn, Baltasar Samper er
Spánverji. Eru spænsku ræturnar stór
hluti afþér eða líturðu algjörlega á þig
sem íslending?
„Ég lít á mig sem íslending en á móti
kemur að mér hefur aldrei fundist ég
tilheyra neinum sérstökum hóp. Ætli
ég sé ekki utangarðs að vissu leyti?
Ég varð var við það sem barn að faðir
minn var þekktur. I dag þekkja börn
ekki listmálara en þegar ég var að
alast upp vissu krakkar hver pabbi var.
Stundum var ég kaUaður Márinn, ætli
suðræna útlitið hafi ekki valdið því.
Ég er ósköp þakklátur fyrir spænsku
ræturnar en ég held að ég sé jafn mikiU
lopapeysumaður og aðrir íslendingar."
Þú ert kaþólikki, er trúin stórþáttur af
þínu lífi?
„Kaþólskan er arfleifð sem ég
fæddist með. Kaþólska trúin er eins
og foreldrar þínir. Þegar þú ert barn þá
eru foreldrar þínir bara foreldrar þínir.
Svo flyturðu að heiman og sérð þetta
fólk í öðru ljósi og berð virðingu fýrir
því á annan hátt og upp úr þrítugu
ferðu að velta því fyrir þér hvaðan þetta
fólk komi og hvar rætur þess liggja.
Þegar ég var barn heimsótti ég ömmu
mína í Pyreneafjöllin. Þá var ég ekki
meðvitaður um áhrifþess á mig að eiga
ömmu sem byggi í Pyreneafjöllunum
en ekki í Hveragerði. Það er svipað
með kaþólsku trúna. Ég ólst upp við
hana og núna geri ég mér grein fyrir
gUdum hennar og leita tU hennar án
þess að fara reglulega í kirkju. Það er
ekkert annað sem ég trúi á.“
Drakk í mig karakter
Hefurþaðháðþérálistamannsferlinum
að vera fallegur og hafa hvað eftir
annað lent á lista yfir kynþokkafyllstu
karlmenn landsins?
„Mér fannst á sínum tíma að
umfjöUunin um suðræna útlitið og
tUnefningar um kynþokka stæðu í
vegi fyrir að fólk tæki mig alvarlega.
Einhvern tíma var sagt við mig að ég
væri of myndarlegur fyrir ákveðið
hlutverk. Það særði mig mjög. I dag
get ég hlegið að þessu því mér finnst ég
hafa sannað að ég er annað og meira en
sætur strákur. Þá verður þetta léttvægt
og truflar mig ekki neitt.“
Varþetta samt ekki gottfyrir egóið?
„Eg hef sjálfsagt tekið út alla
kostina við þetta á sínum tíma.
Samt sem áður reyndist þetta mér
erfitt. Eitt sinn var ég beðinn um að
vera kynnir á styrktartónleikum í
LaugardalshöUinni. Ég gekk inn á
sviðið og stór hópur 13-16 ára stelpna
byrjaði að garga. Mér fannst verið
að niðurlægja mig. Svo öskraði ein
stelpan: Ég elska þig, Baltasar. Ég
spurði hana hvað hún væri gömul.
Fjórtán ára, svaraði hún. Kynntu
mig fyrir mömmu þinni svaraði ég í
Fullt af spennandi vörum sem þú vilt ekki missa afl
Vilt selja eitthvað á uppbod.is? Endalausir möguleikarl Hafðu samband í síma 552 7977 eða á uppbod@uppbod.is. uppbod.is