blaðið - 20.10.2005, Qupperneq 24
24 I MATUR
FIMMTUDAGUR 20. OKTÓBER 2005 blaöiö
Polenta
Eitt helsta meðlæti ítala með mat fyr-
ir utan pasta er polenta. Það getur
verið mjög skemmtilegt að breyta að-
eins til og nota polenta í matargerð-
ina heima hjá sér. Kokkar nota þetta
nú svolítið á veitingastöðum en
þetta er eitt af því léttara sem mað-
ur lagar og eitthvað sem gleymist oft
eða bara að fólk kann ekki að nota
hana. Polenta er algjör snilld sem
meðlæti, bæði með fiski og kjöti eða
bara sem aðalatriði í grænmetisrétti.
Fyrir þá sem ekki vita hvað polenta
er þá er það gróf möluð maískorn
og eru kornin ennþá gul en þetta
er ekki maís-mjöl sem er hvítt duft.
Þegar maður lagar polenta þá er
soðið vatn með einhverjum bragð-
teningum út í eins og kjúklinga eða
grænmetisteningum. Síðan er po-
lentamjölinu hellt út í ásamt sýrðum
rjóma, parmesan og smjöri. Hrært
vel í á meðan þetta sýður því þá byrj-
ar sterkjan að brotna niður og þetta
fer að þykkna. Þá er þetta smakkað
til með salti og pipar. Það er hægt að
framreiða polenta beint upp úr potti,
svona mjúka. En einnig er hægt að
hella henni í form með smjörpapp-
ír og kæla niður, því þá er hægt að
skera hana niður í alls kyns form
og steikja eða grilla. Polenta er líka
mjög sniðug í pinnamat, þá skorin í
litla bita og sett alls konar álegg ofan
á hana eins og á brauðsneið. Hægt
að bragðbæta polenta með nánast
hverju sem er en það þarf að gera
það á meðan hún er enn í pottinum.
Það er hægt að setja pestó, tómatten-
inga, sólþurrkaða tómata eða ólífur
svo eitthvað sé nefnt.
Uppskriftin sem fylgir með í dag
er forréttur: „Grilluð polenta með
blönduðum skelfiski á salati“
6 dlfiskisoð (vatn og teningur)
3 dlpolentamjöl
11/2 dl rifinn parmesanostur
1 msk smjör
1 msk sýrður rjómi
1 msk steinselja
salt og pipar
Aðferð:
Sjá í texta að ofan og í þessu tilfelli
kæld, skorin í bita og grilluð fyrir
notkun.
600 g blandaður skelfiskur
(rækjur, humar, hörpuskel,
krœklingur)
2 msk ólífuolía
1 stk hvítlauksgeiri (hakkaður)
1 dl hvítvín
1 mskpestósósa
saltogpipar
Aðferð:
Skelfiskurinn hreinsaður eins og
venjulega og steiktur í olíunni á
heitri pönnu. Þegar hann er alveg að
verða klár þá er hvítlauknum, hvít-
víninu og pestóinu bætt út í, hrært
vel saman og bragðbætt. Þá er salat
sett á disk, polentan ofan á og síðast
skelfiskurinn. Sósan sem kemur á
pönnunni er notuð á diskinn og gott
brauð með, „skothelt"
Kveðja Raggi
BlaliS/Steinar Hugi
Úr uppskriftabók
kjötmeistara Nóatúns
Fljótlegt og framandi eru orð sem
eiga einstaklega vel við þennan
seiðandi grísakjötsrétt
Nando's sósurnar eiga uppruna sinn að rekja til Suður-Afríku. En
fyrstu sósurnar sem þeir framleiddu byggðust á uppskriftum sem
þróuðust hjá portúgölskum landnemum með áhrifum frá afrískum
matarhefðum. Sósurnar eru fyrir þá sem eru tilbúnir að taka áhættu
eins og portúgölsku landnemarnir og hafa gaman af lífinu og njóta
þess til fulls.
Nando’s
Marinade & Stir
Roasted reds
Besta Shiraz vínið í Kaliforníu, fjögur ár í röð.
"hvað getur verið betra með Svínahnakka"
Delicato fjölskyldan er einn af elstu
vínframleiðendum í Kalifornlu.
Sykileyingurinn Gasparé Indelicato
stofnaði fyrirtækið Delicato í Kaliforníu
árið 1935. Undirstjórn þriggja sona
hans,Tony, Frank og Vince, hefur
fyrirtækið tekið stórstígum framförum
og vakið verðskuldaða athygli fyrir
framleiðslu sína undanfarin ár.
Fyrirtækinu hlotnaðist sá heiður að vera
kosið vínframleiðandi ársins 2003 í
Kaliforníu. Þetta er sérstakur heiður, þar
sem framleiðendur Kalifornlu kjósa hann
úrslnum röðum.
Eins má geta þess að hinn virti vínrynir,
Robert Parker sá ástæðu til að taka
sérstaklega fram að Delicato vínin væru
góð viðbót við gæðavínflóru Kaliforníu.
Árið 1988 keypti Delicato fjölskyldan San
Bernabe vínekruna, sem er ein stærsta
vínekran í allri Kalifornfu. I dag er
Delicato eitt af þeim fyrirtækjum í
heiminum sem er í hvað mesta
vextinum.
Shiraz þrúgan hefur verið þeirra aðal
þrúga, enda fengið mörg verðlaun fyrir
hana. Delicato Shiraz hefur verið
útnefnd sem besta Shiraz vínið í
Kaliforníu fjögur ár í röð, sem er
einsdæmi.
Delicato Shiraz vínið er:
Dumbrautt, með angan af grænum pipar
og lakkrfs. Afar góð fylling. Þaðermeð
kraftmiklu bragði með keim af leðri og í
löngu eftirbragðinu kemur fram bragð af
bláberjum og vanillu. Margverðlaunað
vín. Vínið er kjörið með grillmat,
sérstaklega svfnakjöti og sterksósa á
einstaklega vel við það. Vínið er einnig
afar gott með þroskuðum ostum.
Verð f vfnbúðum er 1220,- Vfnið fæst í
öllum stærri búðum.
"Smakkið og dæmið sjálf"
Nýju uppskriftaspjöldin liggja frammi í öllum verslunum Nóatúns!