blaðið - 20.10.2005, Blaðsíða 35
blaðið FIMMTUDAGUR 20. OKTÓBER 2005
KVIKMYNDIR I 35
400 kr. MIÐAVERÐ Á ALLAR MYNDIR kl: 12 UM HELGINA í SAMBÍÓUNUM KRINGLUNNI
STftRSTft KVIKMTNDAHÚS UNDSINS • HAGATORGI • S. 530 1919 • www.haskolablo.ls
FUGHTPIAN
CINDERELLA MAN
MUST LOVE DOGS
CHARUE & THE CHOCOUTE FACTORY
KÓRINN - fSLENSK HEIMILDARMTND
STRÁKARNIR OKKAR
KL. 5.50-8-10.15
KL 5.30-830-10.10
KL 6-8-10
KL 5.45-8
KL6
KL 10.15
TRANSPORTER 2
FUGHTPUN
WALUCE & GROMIT ísl. tal
MUSTLOVEDOGS
SKYHIGH
KL 6-8-10.10
KL 8-10.10
KL 6
KL 8-10.10
kl. 5.45
KL 6-8.15-10.30 B.l. 12
KL 3.45-6-8.15-10.30
KL4-6
KL 6-8.15-10.30
KL 5-8-10.50 B.1.14
KL 5.30-8.10.30
KL 8.15-10.30
KL3.40
KL3.50
KL3.45
FLIGHTPUN
FUGHTPUNViP
WALUCE & GROMIT isl. tal
WALUCE & GROMIT enskt tal
CINDERELU MAN
THE 40YEAR OLD VIRGIN
GOAL
VALIANT ísl. tal
SKYHIGH
CHARLIE & THE CH0C0UTE FACTORY
BÍÓDAGAR NORRÆNA HÚSSINS
HAWAIIOSLO KL8
HADEGISBIO
Russeli Crowe Renée Zeliweger
Uppliföu stórkostlegustu
endurkoma allra timaí
Cindereila Man
Óskarsverölaunahafarnir Russell Crowe og
Renée Zellweger fara á kostum
í sterkustu mynd ársins.
FLIGHTPLAN KL8
THE 40 YEAR OLD VIRGIN KL8
AKUREYRI
(RIHGLAN { 588 0800 C AKUREYRI C «1 4666 KEFLAVÍkC 421 1170 '
Útgáfa og tónleikar 12 Tóna
Ný plata frá Póri
Þegar Þórir var aðeins tvítugur að
aldri sendi hann frá sér sína fyrstu
plötu hjá 12 Tónum, I Belive in
This. Sú skífa fékk frábæra dóma
meðal gagnrýnenda og endaði
ofarlega á mörgum listum yfir
bestu plötur ársins. Ábreiða
Þóris af lagi Outkast, Hey Ya!,
varð feikivinsæl og ekki spillti
fyrir frumlegt myndband sem
fór í spilun. Síðan þá hefur I
Belive inThis fengið dreifingu
á Norðurlöndunum í gegnum
Dotshop.se og seldist hún
m.a. upp um tíma.
Nú í dag, einu ári seinna
kemur önnur plata Þóris út
hjá 12 Tónum og heitir hún
Anarchists are hopless
romantics. Greina má mikinn
þroska hjá tónlistarmanninum á
þessu eina ári frá því frumraunin
leit dagsins ljós. Öll áferð, hljómur
og stefna er markvissari en líkt og
áður leikur Þórir á flest hljóðfærin
sjálfur og eru lögin falleg og
áhrifarík. Ein stór breyting hefur
þó orðið á högum hins unga sveins
á göngustíg frægðarinnar. Þegar
Þórir hóf leik sem einyrki gekk hann
undir nafninu My summer as a
salvation soldier og svo
hefur
einnig
verið alla tíð á erlendri
gund. Hér heima speglaði Þórir
hins vegar sitt sjálf undir sínu
skírnarnafni. Nú hefur sú
ákvörðun verið tekin að nýta
listamannsnafnið ógleymanlega
My Summer as a Salvation Soldier á
öllum vígstöðvum.
Nýi diskurinn, sem kemur út í dag,
var hljóðritaður í hljóðhúsi Ólafs
Arnalds í Mosfellsbæ, Tónlistar-
þróunarmiðstöðinni og víðar þar
sem Þórir gat komið sér fyrir
ásamt tölvunni og Mboxinu.
Hljóðblöndun annaðist G.
Kristinn Jónsson í Geimsteini
en um masteringu sá Guy Davie
sem hefur m.a. unnið fyrir
Björk, Moby, Peaches, The Jesus
& Mary Chain og Fat Boy Slim.
Þórir / My summer as a
salvation soldier spilar á Airwaves,
laugardaginn 22. október, í
Þjóðleikhúskjallaranum klukkan
02:30. Einnig leikur Þórir í verslun
12 Tóna fimmtudaginn 20. október
klukkan 18:00 ásamt sænska
tónlistamanninum José Gonzáles,
en 12 Tónar halda úti tónleikum
alla daga Airwaves-hátíðarinnar.
Föstudaginn 21. október kl.
17:00 spilar Trabant, og kl. 18:00
spilar Architecture in Helsinki.
Laugardaginn 22. október spila svo
Viking Giant Show klukkan 13:00,
Jakobínarína klukkan 14:00 og Au
Revoir Simone klukkan 16:00. ■
..og það er byrjað
Iceland Airwaveshátíðin hófst í
gær með kraftmiklum tónleikum
hljómsveitarinnar Mammút á Gall-
erý Humar eða Frægð á Laugaveg-
inum. Þeir tónleikar voru þó með
minna sniði en það sem fylgdi því
stórtónleikar voru haldnir á fjór-
um skemmtistöðum í miðborginni
frameftir kvöldi. Aldrei fyrr hafa
jafnmargir listamenn komið fram á
hátíðinni og í ár - eða 160 hljómsveit-
ir, listamenn og plötusnúðar á sex
aðal-tónleikastöðum hátíðarinnar
í miðborg Reykjavíkur. Mikil aukn-
ing hefur orðið á heimsókn erlendra
listamanna en um 30 erlendar hljóm-
sveitir og listamenn koma fram á
Airwaves í ár, tíu fleiri en í fyrra. ■
Mynd/SteinarHugi
Plan B
ÞRJÁR NÝJAR PLÖTUR
í BYRJUN NÓVEMBER
Nýstofnað hljómplötufyrirtæki
Einars Bárðarsonar Plan B sendir
núna um mánaðamótin út þrjár
nýjar íslenskar plötur. Þar eru á
ferðinni plötur með Garðari Thór
Cortes, Nylon og Skítamóral.
GARÐAR THÓR CORTES - CORTES
Fyrsta sólóplata Garðars Thórs Cort-
es lítur dagsins ljós og hófst undir-
búningur að henni í janúar á þessu
ári. Áætlaður útgáfudagur plötunn-
ar í dag er fimmtudagurinn 10. nóv-
ember. Það er Friðrik Karlsson sem
stjórnar upptökum ásamt Robin
Sellars og fara upptökur fram um
þessar mundir í London. Friðrik og
Robin hafa unnið mikið saman með
Nigel Wright í London. Robin hefur
meðal annars stjórnað söngupptök-
um á tveimur síðustu plötum José
Carreras og Friðrik spilað allan gít-
ar á sömu plötum. Óskar Einarsson
hefur útsett tónlistina fyrir Sinfóníu-
hljómsveit en það er Sinfóníuhljóm-
sveit Bradislava í Júgoslavíu sem
mun leika undir í upptökunum.
SKfTAMÓRALL-MÁ ÉG SJÁ
Hljómsveitin Skítamórall er nú
að senda frá sér sína fimmtu breið-
skífu en sex ár eru liðin frá því að
sveitin sendi síðast frá sér plötu.
Platan mun innihalda 10 ný lög en
þrjú af þessum lögum hafa notið
mikilla vinsælda á íslandi síðustu
misseri. Það eru lögin; Ástin dugir,
Hversvegna? Má ég sjá og nú síðast
lagið Hún eftir Þorvald Bjarna Þor-
valdsson við texta Andreu Gylfadótt-
ur. Það lag hefur vægast sagt slegið í
gegn og er á góðri leið með að verða
eitt vinsælasta lagið á landinu.
NYLON - GÓÐIR HLUTIR
Nylon flokkurinn er nú að ljúka
vinnu við hljómplötu sem væntan-
leg er í verslanir 3. nóvember næst-
komandi. Hljómplatan hefur verið
í vinnslu frá því í vor og mun inni-
halda 12 lög. Flest lögin eru ný en tvö
eru endurunnin, Dans, dans, dans
og Einskonar ást sem sótt voru til
áranna milli sjötíu og áttatíu. Platan
er unnin af Óskari Páli Sveinssyni,
Friðriki Karlssyni og Richard Barr-
aclough. Meðal lagahöfunda á plöt-
unni eru: Gunnar Þórðarson, Magn-
ús Kjartansson, Magnús Eiríksson,
Friðrik Karlsson, Óskar Páll Sveins-
son og Alma Guðmundsdóttir úr
Nylon. ■