blaðið - 03.11.2005, Qupperneq 15
blaðið FIMMTUDAGUR 3. NÓVEMBER 2005
Mannfall í
átökum lögreglu
og mótmælenda
Að minnsta kosti tíu féllu þegar til
átaka kom annan daginn í röð á
milli lögreglu og mótmælenda í Add-
is Ababa, höfuðborg Eþíópíu í gær.
Degi áður féllu sex mótmælendur og
tveir lögreglumenn í átökum. Þetta
voru einhver verstu mótmæli gegn
ríkisstjórninni í marga mánuði en
36 manns fórust í mótmælum í júní
á þessu ári. Öryggissveitir beittu
táragasi til að dreifa hundruðum
mótmælendum sem höfðu komið
upp götuvígum, kastað steinum og
valdið skemmdum á eignum í mið-
bæ borgarinnar.
Með aðgerðunum vildi fólk mót-
mæla úrslitum kosninga í landinu í
maí sem það telur að hafi verið föls-
uð. „Við mótmælum vegna þess að
ríkisstjórnin hafði af okkur kosning-
arnar. Fólk fyllist reiði vegna þess
hve grimm lögreglan er,“ sagði Ghe-
bremichael Ayele, einn mótmælenda.
Merera Gudina, varaformaður Sam-
einaðs lýðræðisafls Eþíópíu, eins af
minni stjórnarandstöðuflokkanna,
gagnrýndi yfirvöld fyrir að beita
harkalegum aðferðum til að bæla
niður mótmælin. „Við sitjum á tíma-
sprengju. Hún sprakk í gær og gæti
sprungið aftur eftir viku eða mán-
uð,“ sagði hann. ■
Læknar gera að sárum konu sem slasaðist í átökum milli mótmælenda og lögreglu í
Addis Ababa í Eþíópiu.
Chavez storkar
Bandaríkjunum
Hugo Chavez, forseti Venesúela,
varaði stjórnvöld í Bandaríkjunum
við því að hann kynni að gefa Kúb-
verjum eða Kínverjum nokkrar af
F-16 orustuþotum landsins. Chavez
sagði að Bandaríkin hefðu ekki
staðið við samning um að útvega
varahluti í vélarnar sem þau seldu til
Venesúela á níunda áratugnum.
Hann gaf jafnframt til kynna að yf-
irvöld í Washington yrðu ekki mjög
ánægð með að andstæðingar þeirra
fengju aðgang að hinum háþróuðu
vélum.
„Kannski sendum við þeim þær
bara aftur, eða ef til vill sendum við
tíu vélar til Kúbu eða Kína svo að þeir
geti virt fyrir sér tæknibúnað þessara
vélasagði Chavez í sjónvarpsávarpi.
Venesúela keypti vélarnar í stjórn-
artíð ríkisstjórna sem áttu betri sam-
skipti við yfirvöld í Bandaríkjunum
en sú sem nú situr en þau líta á Cha-
vez sem óvinveittan þjóðhöfðingja. ■
„Doktor dauðr' í
felum á Spáni
Aribert Heim, austurrískur læknir
sem sakaður er um að bera ábyrgð á
morðum á hundruðum fanga í fanga-
búðum nasista í síðari heimsstyrjöld-
inni hefur verið í felum á Spáni í 20
ár samkvæmt spænska dagblaðinu
E1 Mundo. Heim sem nú er 91 árs hef-
ur verið eftirlýstur af stjórnvöldum í
Þýskalandi. „Doktor Dauði“ eins og
Heim hefur gjarnan verið kallaður,
vann í fangabúðum í Mauthausen í
Austurríki og myrti hundruð fanga
á einkar hrottafenginn hátt, meðal
annars sprautaði hann þá með eitur-
efnum og gerði tilraunir á þeim sem
leiddu til kvalafulls dauðdaga.
El Mundo segir að Heim hafi búið
á Spáni síðan 1985 og að leynihóp-
urinn Odessa hafi skotið yfir hann
skjólshúsi. Talið er að Odessa-hópur-
inn hafi aðstoðað stríðsglæpamenn
nasista við að fara huldu höfði og
útvegað þeim ný nöfn.
Heim var handtekinn eftir stríðið
Aribert Heim eða„Doktor dauði" eins og
hann hefur einnig verið kallaður.
en aðeins ákærður fyrir að hafa ver-
ið í þýska flughernum og var látinn
laus árið 1948. Þegar sannleikurinn
um fortíð hans kom í ljós árið 1962
flúði hann og dvaldi í ýmsum lönd-
um þangað til að hann settist að á
Spáni árið 1985. ■
Af hverju keyrði
ég ekki bara
Sæbrautina heim?
Við sumum spurningum fást bara engin svör.
Óhöpp henda okkur og við því er ekkert að gera.
En þú getur brugðist við strax með því að tryggja hjá tryggingarfélagi sem gefur þér skýr
svör og leggur áherslu á hraðvirkan frágang tjónamála.
Staðreyndin er því miður sú að maður er hvergi 100% öruggur í umferðinni.
Það er nógu erfitt að vera valdur að tjóni þó að ekki komi til mikill kostnaður að auki. Þess vegna
er skynsamlegt að vera við öllu búinn og tryggja bílinn rétt. Kaskótrygging TM er ekki flókinn
hlutur og það tekur enga stund að gangafrá henni.
Dæmi um hvað Kaskótrygging bætir: Dæmi um hvað Kaskótrygging bætir ekki:
// Tjón á bilnum þínum vegna áreksturs við aðra
bifreið eða kyrrstæðan hlut, veltu, útafaksturs,
bruna, grjóthruns, snjóflóðs, skriðufalls og aur-
og vatnsflóðs færðu bætt.
// Tjón vegna þjófnaðar, innbrots, skemmdarverka
eða skemmdum rúðum færðu bætt.
// Hún greiðir bílaleigubíl í allt að 5 daga verði billinn
þinn óökufær eftir tjón.
// Ef um vítavert gáleysi eða ásetning er að ræða
bætir kaskótrygging ekki tjónið.
// Þegar ökumaður telst vera óhæfur til aksturs
vegna ölvunar eða lyfjanotkunar fæst tjón ekki
bætt.
// Ef hjólabúnaður eða undirgrind skaðast í akstri
bætir kaskótrygging ekki tjónið.
// Kaskótryggingin bætir ekki tjón vegna þjófnaðar
eða skemmda á aukabúnaði, t.d. hjólkoppum og
Ijósabúnaði.
Það er góð regla að lesa vel tryggingaskilmálana, þeir eru sá grundvöllur sem samskipti þín og TM byggjast á.
Hringdu f síma 515 2000 eða farðu á www.tryggingamidstodin.is og fáðu skýr svör.