blaðið - 03.11.2005, Side 30

blaðið - 03.11.2005, Side 30
38 I ÍPRÓTTIR FIMMTUDAGUR 3. NÓVEMBER 2005 blaöiö Stjórnarformaður Arsenal vill semja frið Peter Hill-Wood, stjórnarformaður enska úrvalsdeildarliðsins Arsenal, vill að Arsene Wenger framkvæmda- stjóri Arsenal og Jose Mourinho fam- kvæmdastjóri Chelsea, semji frið og hætti þessu orðaskaki sínu í fjölmiðl- um. Að undanförnu hafa orð á við gluggagægi og heimskur verið höfð eftir þeim “félögum” í garð hvors annars og þetta er nokkuð sem ekki er þessum mönnum og knattspyrnu- félögum sæmandi að mati Peter Hill- Wood. Það er alveg hægt að taka undir þau orð stjórnarformannsins og svona nokkuð virðist eingöngu eiga við framkvæmdastjórana í ensku úrvalsdeildinni. Við erum ekki að sjá þetta í ítalska boltanum, þeim spænska eða þýska. Afhverju? Fátt um svör. X-FILES Mourinho um Wenger Jose Mourinho segist hafa 120 blað- síður um tilvitnanir Arsene Wen- Keflavík verður að vinna í kvöld í kvöld klukkan 19.15 mætast Kefla- vík og finnska liðið Laappenranta í Evrópukeppninni í körfuknattleik. Ekkert annað en sigur kemur til greina hjá Keflvíkingum sem töp- uðu fyrri leik liðanna í Finnlandi, lokatölur 92-77 og þar voru Finnarn- ir sterkari á endasprettinum. Keflvík- ingar héngu lengi vel í þeim, ef þann- ig má að orði komast, en í fjórða leikhluta sýndu Finnarnir mátt sinn og megin. Sigurður Ingimundarson þjálfari Keflavíkur býst við erfiðum leik í kvöld en sagði þó samtali við Blaðið í gær að hans drengir ætluðu sér sigur í leiknum. Allir leikmenn Keflavíkur eru í góðu formi, engin meiðsli hrjá leikmenn og því allt í standi. „Þeir eru með sex mjög góða leik- menn og tvo góða bandaríkjamenn. Þeir eru með góðar skyttur og svo er leikstjórnandi danska landsliðsins hjá þeim og er að spila mjög vel. Hvar felst möguleiki Keflavíkur í leiknum í kvöld? „Við þurfum að vera betri í fráköst- unum en í fyrri leiknum. Við lágum þar heldur betur í Finnlandi og ef við höfum betur í fráköstunum í kvöld þá vinnum við“, sagði Sigurð- ur Ingimundarson þjálfari Keflavík- ur um Evrópuleikinn í kvöld gegn Laappenranta frá Finnlandi. ■ ger þar sem Wenger sé að ræða um Chelsea og sig. í breskum fjölmiðl- um gengst þessi doðrantur Mourin- ho undir nafninu X-Files, í höfuðið á frægri sjónvarpsþáttaröð. Þegar Jose Mourinho kom til Stamford Bridge í júní 2004 og tók við Chelsea, sagði hann um Wenger og Sir Alex Ferguson. „Ef þeir koma ekki nálægt mér, þá kem ég ekki ná- lægt þeim. Ef þeir aftur á móti koma nálægt mér, þá verð ég tilbúinn að svara fyrir mig og það af enn meiri hörku", lét Mourinho hafa eftir sér fyrir rúmu ári. Fram að þeim tíma hafði einskon- ar stríð geisað á milli Sir Alex Fergu- son og Arsene Wenger. En þarna var kominn nýr útlendingur í deildina með nóg af peningum. Á eftir kom Mourinho og virðist sem Sir Alex og þá einkum og sér í lagi Arsene Wen- ger hafi snúið sér til Jose Mourinho til að kýtast útí. Þetta er nú meiri sandkassaleikur- inn sagði einhver um þessi ummæli þeirra félaga í garð hvors annars og það má alveg taka undir þau orð. Sir Alex og Mourinho mætast á Old Trafford á sunnudag og ætli þeir tak- ist í hendur fyrir leik og eftir leik? ■ Þórður Guðjónsson til ÍA: Lét hjartað ráða hvert hann fór Knattspyrnumaðurinn Þórður Guð- jónsson sem leikið hefur með enska knattspyrnuliðinu Stoke City er á för- um til íslands og leikur hér á landi í Landsbankadeildinni á næstu leiktíð. Tvö lið hafa verið nefnd oftast í sam- bandi við Þórð að undanförnu og þau eru íslandsmeistarar FH og ÍA. Full- yrt var fyrir nokkrum dögum í frétt- um á Stöð 2 að Þórður færi til FH en í gær tók hann ákvörðun um að ganga til liðs við sitt gamla félag lA. Þórður er 32ja ára gamall og hefur ekki verið í náðinni hjá framkvæmdastjóra Stoke City að undanförnu. Þórður Guðjóns- son lék síðast með félagsliði hér á landi árið 1993 þegar hann lék með ÍA. Hann fór frá ÍA til þýska liðsins Bochum og fór síðan þaðan til Genk í Belgíu. Frá Belgíu fór hann á ný til Bochum og svo var förinni heitið til Stoke City. En varþetta erfið ákvörðun fyrirÞórð að taka? „í raun og veru ekki. Ég er búinn að taka mér góðan tíma í þetta og er sátt- ur við niðurstöðuna. Eg fylgdi hjart- anu og valdi hjartansleið ef ég má komast þannig að orði“, sagði Þórður Guðjónsson í samtali við Blaðið í gær. En voru mörg lið að reyna að fá Þórð til sín? „Já, það voru nokkur lið en fyrir mér komu aðeins tvö lið til greina all- an tímann. lA og FH voru liðin sem ég hugsaði um en þessir aðilar höfðu strax samband við mig. Hér á Skagan- um er björt framtíð og fullt af ungum og efnilegum strákum. Ég hlakka til að taka þátt í þessu með Skagamönn- unum“, sagði Þórður Guðjónsson í gær. Þórður og hans fjölskylda er ný- búin að kaupa sér hús á Akranesi og gerðist það í síðustu viku. Þórður er enn á samningi hjá Stoke City en samningur hans við félagið rennur út í júní á næsta ári. Hann hyggst þó reyna að gera starfslokasamning við Stoke þannig að hann verði tilbúinn í slaginn með ÍA á réttum tíma næsta sumar. „Já, næsta skref hjá mér er að ræða við þá hjá Stoke og athuga hvaða möguleikar eru í stöðunni um að rifta samningi mínum við félagið. Ég hef ekki trú á að það verði neitt vandamál. Þeir hafa sýnt mínum málum góðan skilning þannig að þetta á allt eftir að fara vel“, sagði Þórður Guðjónsson að lokum í samtali við Blaðið í gær. ■ 15% afsláttur af öllum fótboltaskóm hjá okkur í nóvember Láttu qá þig og geröu góö kaup LIÐIÐ MITT í KVÖLD KL. 20.00 Böddi Bergs tekur á móti stuðningsmönnum ensku liðanna sem skeggræða um leikmenn, væntingar og drauma ásanit því að fjalla um gullaldarár hvers liðs. rSík . 1 mf | ( 9* TRYGGÐU PER ÁSKRIFT í SÍMA 800 7000. Á WWW.ENSKI.IS E0A l' NÆSTU VERSLUN SÍMANS. EnsHp% B 0 L T 1 N

x

blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.