blaðið - 03.11.2005, Síða 32
40 I AFPREYING
FIMMTUDAGUR 3. NÓVEMBER 2005 blaöift
PSP hugbún-
aður frá Sony
Sony hefur loksins gefið út
hugbúnað fyrir eigendur PlaySt-
ation Portable sem auðveldar
þeim að halda utan um og
flytja inn efni á tölvur sínar. Frá
útgáfu leikjavélarinnar vinsælu
hafa gagnrýnisraddir heyrst
þar sem erfiðlega hefur reynst
að nýta möguleika hennar til
fullnustu þar sem hugbúnað
hefur vantað. Nú er hins vegar
kominn PSP Media Manager
og er hægt að hlaða honum nið-
ur af vefsíðu Sony fyrir tæpa 20
bandaríkjadali. Með forritinu
er hægara að flytja tónhst, kvik-
myndir, ljósmyndir og fleira
sniðugt efni á PSP vélarnar.
Halo biblía
komin út
Útgefandinn O’Reilly hefur
______________ gefiðútbók
jkSL| f! sem á að
aðstoða þá
sem enn
eiga eftir að
klára Halo 2
tölvuleikinn.
1 bókinni
sem heitir
Halo 2 Hacks
Tips & Took
for Finishing the Fight eru
allskonar brögð kennd sem
eykur hæfileika spilaranna til
þess að hjálpa þeim að klára
leikinn. Þá er spilurum einnig
bent á hina ýmsu leynistaði
í leiknum sem einungis hörð-
ustu spilararnir hafa hingað
til fundið. Með hjálp þessarar
biblíu fær leikurinn nýtt líf í
tölvunni, lofar útgefandinn.
109 SU DOKU talnaþrautir
Leiðbeiningar
Su Doku þrautin snýst um að
raða tölunum frá 1-9 lárétt
og lóðrétt í reitina, þannig
að hver tala komi ekki nema
einu sinni fyrir í hverri línu,
hvort sem er lárétt eða lóðrétt.
Sömu tölu má aukin heldur
aðeins nota einu sinni innan
hvers níu reita fylkis. Unnt er
að leysa þrauhna út frá þeim
tölum, sem upp eru gefnar.
6 8 5 1
8 9 1
2 9
4 2 5
3 7 5 1 9
5 8 3
3 9
2 5 6
8 6 9 2
Lausn á síðustu þraut
6 3 9 5 2 4 8 7 1
8 1 5 6 7 9 4 3 2
4 7 2 1 3 8 9 5 6
7 2 3 4 9 1 5 6 8
1 4 8 3 6 5 7 2 9
9 5 6 2 8 7 1 4 3
3 8 1 7 4 6 2 9 5
2 9 4 8 5 3 6 1 7
5 6 7 9 1 2 3 8 4
Sýndar
næturklúbbur
Tölvuleikjaspilari sem keypti ný-
verið sýndarveruleika geimstöð
að jafnvirði tæpra 6 milljóna
króna vill breyta henni í næt-
urklúbb. Með þessu vill hann
einnig gjörbreyta skemmtana-
munstri f heiminum. Geimstöð-
in er í hlutverkaleik sem spil-
aður er á netinu og svipar til
Eve-online. Jafnan er skipt með
hluti f leiknum og greitt fyrir
með beinhörðum peningum.
Simpson íjölskyldan
-á næstu kynslóð leikjatölva
Risar á afþreyingarmarkaði, stórfyrirtækin Electronic Arts,
Twentieth Century Fox Television og Gracie Films tilkynntu í gær
langtíma samning sem veitir EA rétt á að framleiöa fjölda leikja
byggða á sjónvarpsþáttunum um Simpson fjölskylduna. Leikirnir
verða gerðir í nánu samstarfi við starfsfólk þáttanna, og munu
meðal annars handritshöfundar þeirra koma að framleiðslunni.
Leikirnir koma ekki út alveg strax heldur verða þeir gerðir fyrir
næstu kynslóð leikjatölva, þ.e. PlayStation 3, Xbox 360 og Nin-
tendo Revolution. Samningurinn er sá fyrsti sem þessi fyrirtæki
gera með sér en smáatriði hans hafa ekki verið gefin upp.
Það er svosem engin nýlunda að gerðir séu leikir um Simpson
fjölskylduna og meira að segja kom leikurinn The Simpsons Ro-
ad Rage fyrir PlayStation frá Electronic Arts. Samningurinn sem
undirritaður var í gær bendir þó til að nú verði meira lagt í leik-
ina en áður. Leikirnir verða framleiddir í Redwood Shores Studio,
en þeir hafa áður gert leiki á borð við From Russia With Love,
Tiger Woods PGA TOUR 06, The Lord of The Rings: Tactics, The
Godfather og The Sims.
Hver man ekki eftir baráttu Barts viö geimverurnar
á gömlu Nintendotölvunni? Símtölin á Móabar voru
oft kostuleg.
0
myndunum
jk minningar
& koma ekki aftur
Lóttu framkalla
|j. mk stafrœnu myndirnar
Þú hefur marga mögul
...þú sendir myndirnar á netinu,
‘ . .. þú kemur með minniskortið eða
* myndavélina og við aðstoðum þig
við að skoða og velja myndirnar
... þú kemur meó myndirnar á geisladiski
þú kemur meó myndirnar á USB minnislykli
...hjá okkur getur þú skoðað og valið
myndirnar þinar á snertiskjánum okkar
Alfabakka 14 s. 557 4070
www.myndval.is
Heínd Stubbs
Við höfum verið að berja afokkur uppvakninga í
fjöldamörgár án þess aðþeirhafi nokkurn mál-
svara haft. Nú erþeirra tími kominn og
gefst okkur tœkifœri að hefna uppvakn-
inganna sem hinn vinalegi Stubbs.
1 leiknum Stubbs the Zombie leikur þú hinn hnyttna Stubbs, far-
andsölumann sem stendur í stríði við borgina Högghöll (Punch-
bowl), og svo skemmtilega vill til að hann er uppvakningur.
Það sem upphaflega er hefndarför eins uppvaknings vindir
fljótt upp á sig og verður að styrjöld milli lífs og liðinna. í
þetta skiptið er þó barist fyrir sannleikanum, réttlæti
og upphafningu ástarinnar - uppvakninganna
vegna.
Leikurinn gerist í framtíðinni svo vitanlega
eru svifbílar á götum borgarinnar og hjálp-
arvélmenni víða. Til þess að verjast óvin-
unum er hægt að nota líkama Stubbs
í baráttunni með því að kasta maga-
sprengjum en vindgangur getur
einnig reynst vel. Til þess að auð-
velda verkið er náttúrulega hægt að
smita hina lifandi svo þeir skipti í þitt
lið og þannig má búa til heilan her upp
vakninga. Leikurinn er sá fyrsti til að
vinna á grunni Halo leikjanna og lofa
framleiðendur að hann nýti það til
fullnustu. Stubbs kemur til íslands
í febrúar.