blaðið - 16.12.2005, Side 28
28 I HEILSA
FÖSTUDAGUR 16. DESEMBER 2005 blaöiö
Byggt upp til framtiðar
íLeið til léttara lífs erfólki með offitu boðið upp á raunhœfa lausn við vanda sínum. Þetta erþriggja ára námskeið
þar sem sérfrœðingar halda utan um árangur einstaklinga og kenna þeim að ná tökum á þessum vanda.
BlaOiÖ/Steinar Hugi
Jakobína Sigurðardóttir sjúkraþjálfari og framkvæmdastjóri Hreyfigreiningar. Þar er boðið upp á þriggja ára nám í bættum lífstíl.
Verkefnið er unnið í samvinnu
fagstétta. Þær Sjöfn Kristjánsdóttir
læknir, Sigriður Eysteinsdóttir
næringarráðgjafi, Helma Rut
Einarsdóttir sálfræðingur, Gunnur
Róbertsdóttir sjúkraþjálfari
og Jakobína Sigurðardóttir
sjúkraþjálfari koma að því ásamt
matreiðslumeistara. Jakobína er
framkvæmdastjóri
Hreyfigreiningar,
sem heldur utan
um verkefnið.
„Fólksem ákveður
að skrá sig hjá
okkur segist ætla að
vinna að heilindum
í þessa átt í þrjú
ár“, segir Jakobína.
,Hugmyndin
er að veita
framtíðarlausn fyrir fólk sem
þjáist af offitu. Við miðum við að
svokallaður líkamsþyngdarstuðull
(BMI) sé kominn yfir 30. Þegar fólk
er komið yfir 30 sér maður að það er
illa statt.“
Hver eru inntökuskilyrðin?
,Það má segja að það, að vera tilbúin/
n að skuldbinda sig í þrjú ár, séu
okkar ströngu inntökuskilyrði. Við
förum ekki fram á meira. Að fólk
ákveði að fara í svona verkefni er
heilmikil yfirlýsing um að það ætli
sér að snúa við blaðinu. Það krefst
mikils að ná tökum á því sem fólk
er búið að temja sér á heilli ævi og
breyta því. Þess vegna er með í
verkefninu næringarráðgjafi sem
aðstoðar einstaklingana við að
velja sér hvort tveggja annan mat
og ekki síður annað neyslumynstur.
Neyslumynstrið er mjög sálrænt í
okkur, flestir sem eru of feitir vita að
þeir eiga ekki að borða það sem þeir
borða en samt sem áður gera þeir
það og þá kemur sálfræðingurinn
inn í myndina. Hann aðstoðar fólk
að skoða hvað það er að gera og hvers
vegna og hjálpar
svo að breyta því.“
Hópvinna
Einstaklingar
fara í gegnum
verkefnið í allt að
tólf manna hópum.
Þegar hefur fyrsti
hópurinn farið
af stað og taldi
hann átta manns.
Verkefninu er síðan skipt upp í
fimm stig. „Á fyrsta stiginu er
haldið mjög þétt utan um hópinn.
Síðan er slakað á smám saman og
einstaklingurinn látinn taka ábyrgð
á eigin lífi í skrefum. I lokin á hann
að vera fær um að stjórna þessu
sjálfur án aðstoðar - en auðvitað
verðum við alltaf til staðar.“
Fyrstu 17 vikurnar mætir fólk
í hreyfingu hjá sjúkraþjálfara
þrisvar í viku. „Við ákváðum að
hafa sjúkraþjálfara til að sjá um
hreyfinguna því við vitum að margir
sem þjást af offitu glíma einnig við
stoðkerfisvandamál. Þess vegna er
sjúkraþjálfari valinn til að stjórna
því hvað hentar hverjum.“
Hver eru markmiðin?
„Við aðstoðum fólk að setja sér
raunhæf markmið. Þau geta verið af
ýmsu tagi, t.d. gæti minni blóðsykur
eða lægri blóðþrýstingur verið
fyrsta markmið. Við þurfum að
kenna fólki að lifa heilbrigðu lífi,
að borða hollan mat og ná tökum
á venjum sínum. Það má eiginlega
segja að við séum að reyna að festa
í sessi breytt hegðunarmynstur. Það
sem við horfum á er að fólk læri að
haga sinni neyslu í takt við brennslu.
Þetta er einföld jafna, ef þú brennir
ekki þvi sem þú borðar, þá fitnarðu.
Hjá hverjum og einum þarf að stilla
þetta af þannig að hann sé að brenna
heldur meira en hann borðar. Þá
vinnst þetta í rólegheitum. Auðvitað
er það þannig að því meiri sem
offitan er, því erfiðari er hjallinn
sem þarf að komast yfir.“
Skyndikúrar
Þriggja ára skóli eins og Jakobína
býður er annað en fólk á að venjast.
„Skyndikúrar eru í raun bara
skyndilausn á langtímavandamáli",
segir Jakobína. „Hjá okkur eru
markmiðin auðvitað ekki bara
að létta sig. Þau eru ekki síður
að fá betri heilsu því fylgikvillar
offitunnar eru ýmsir, t.d. sykursýki,
háþrýstingur, stoðkerfisvandamál
og fleira. Ef fólk léttist um 10% á
ári telst það ansi gott. Ef sá árangur
helst ár eftir ár eru komin ágætis tök
á þessu vandamáli."
Býstu við því að allir klári?
„Eg vona það náttúrulega. Markmið
okkar er að allir klári og ég vona
svo sannarlega að brottfall verði
ekkert. Það er mikilvægt að líta á
þetta sem skóla. Við vitum að ef
einhver ætlar sér að kunna eitthvað
er hægt að læra grundvallaratriði á
námskeiðum, en það tekur tíma að
verða fagmaður. Það er í rauninni
eins í þessu, það tekur tíma áð láta
þetta síast inn.“
Kostnaður
Jakobína vill ekki gefa upp hvað
kostar að taka þátt í verkefninu.
,Þetta kostar auðvitað eitthvað.
Ég þarf að ræða við einstaklinga
áður en ég gef upp kostnaðinn.
Fólk getur leitað til mín til að fá
frekari upplýsingar eða þá skoðað
heimasíðuna okkar, www.lll.is.
Þetta er ekki ókeypis, en miðað við
það sem er innifalið myndi ég segja
að þetta sé ekki dýrt. Fyrir utan
alla þjónustu næringarráðgjafa,
sálfræðings.læknisogsjúkraþjálfara
er innifalið í þessu árskort fyrir
einstaklinginn ásamt einhverjum
stuðningsaðila í líkamsrækt í þrjú
ár. Þannig að pakkinn er drjúgur og
fyllilega þess virði að mínu mati.“
agnarburgess@vbl.is
Skyndikúrar
eru í raun bara
skyndilausn á
langtímavandamáli.
Verslun
Lámarks álagning
Miklð úrval
Búsáhöid- jólavörur- klukkur
Ljós- leikföng- sjöl- skartgripir
slæður- úr- verkfæri- veski ofl. ofl.
Allt í jólapakkann
fæst hjá okkur
Flottur fatnaður á
alla fjölskylduna
á sama verði og erlendis
nýkomið í verslun!
B.MAGNUSSON
;Austurhrauni 3,Gbæ/ KAYS (nóg af bílastæðum)
www.bmagnusson.is bm@bmagnusson.is sími: 5552866
Opið virka daga 10-18, og á Iau.17.des. 10-18
Reyðfirðingar í form
Iceland Spa & Fitness opnaði fimmtu
stöð sína á Reyðarfirði sunnudag-
inn 4. des síðastliðinn. Fyrir rekur
ISF Baðhúsið í Reykjavík, Betrun-
arhúsið í Garðabæ, Sporthúsið í
Kópavogi og Þrekhúsið í Reykjavík.
Nýja stöðin er til húsa í íþróttahús-
inu á Reyðarfirði og þykir vel hafa
tekist til. Byggð var sér viðbygging
við húsið sem Iceland Spa & Fitness
rekur heilsuræktina í.
Nýi æfíngasalurinn
Frá opnun stöðvarinnar.
Heilsuræktarstöðin er búin
tækjum frá Impulse og eru 9 upp-
hitunartæki ásamt mjög góðum lyft-
ingartækjum. Iceland Spa & Fitness
kemur einnig til með að bjóða upp á
leikifimitíma, spinning og jóga auk
)ess sem hægt verður að fá einka-
íjálfun hjá þjálfurum stöðvarinnar.
Viðskiptavinir ISF hafa aðgang
að öllum stöðvunum fimm svo
nú geta höfuðborgarbúar brugðið
undir sig betri fætinum og svitnað
á Reyðarfirði.
Tómstundahúsið,
Nethyl 2, sími 5870600,
www.tomstundahusid.is
Opið alla daga til jóla
Höfum mikið úrval leikfanga.
Spil, púsl og módel fyrir alla aldurshópa.
Til styrktar
krabbameins-
sjúkum
börnum
Það er orðinn árviss viðburður að
framvarðasveit íslenskrar popptón-
listar komi saman við áramót í Há-
skólabíói og stilli saman strengi til
styrktar Styrktarfélagi krabbameins-
sjúkra barna. Árið í ár er engin und-
antekning. Á undanförnum árum
hafa yfir 12 milljónir króna safn-
ast á þessum tónleikum, og nú er
markmiðið að sú upphæð hækki í
a.m.k. fjórtán milljónir króna. Þess
má geta að hljómsveitin Sálin hans
Jóns mins sem kemur fram á tónleik-
unum kemur nú fram á þessum tón-
leikum í sjöunda sinn.
Af gefnu tilefni vilja aðstand-
endur tónleikanna taka fram að
allir þeir sem komið hafa að tónleik-
unum hafa gefið vinnu sína til fulls.
Háskólabló hefur gefið húsnæðið
og um leið hafa allir tæknimenn
og aðrir starfsmenn tónleikanna
gefið vinnu sína. Tónleikarnir
verða fimmtudagskvöldið 29. des-
ember og hefjast stundvíslega kl.
17:00. Árlega greinast að meðaltali
10 - 12 börn og unglingar 18 ára og
yngri með krabbamein á íslandi.
Markmiðið með stofnun Styrktarfé-
lags krabbameinssjúkra barna var
m.a. að styðja við bakið á þeim og
aðstandendum þeirra bæði fjárhags-
lega og félagslega.