blaðið - 16.12.2005, Side 42
42 I BÆKUR
FÖSTUDAGUR 16. DESEMBER 2005 blaöiö
Gœfuspor - gildin í lífinu er bók eftir Gunnar Hersvein sem JPVgefur út. Þarfjallar Gunnar Hersveinn um mann-
kosti og tilfinningar, stríð ogfrið og hamingju og rósemd og varpar oft óvœntu Ijósi á rótgróin hugtök. Markmið
bókar hans er m.a. að sýna hversu mikilvœgt er að rœkta tilfinningar sínar. íþeim kafla sem hér birtist fjallar
Gunnar Hersveinn um umburðarlyndi.
Umburðarlyndi
Umburðarlyndi felst í skilningi á
viðhorfum og framkomu sem er
andstæð eða ólík eigin lífsstíl og sýn.
Umburðarlyndi birtist einnig í mildi
gagnvart yfirsjónum og mótmælum.
Herforingjastjórnir víða um heim hafa
löngum verið bölvaldar sökum skorts
á umburðarlyndi. Slík stjórnvöld þola
einungis fólk með sömu skoðun og
þau sjálf. Skortur á umburðarlyndi er
því ein af meginástæðum ofbeldis í
heiminum.
■ Er hægt að læra að vera umburðar-
lyndur? Já, meðal annars með því að
leggja stund á hófstillingu. Hún felst í
því að stjórna skapi sínu, hemja tilfinn-
ingarnar og láta ekki reita sig til reiði.
Hún er dyggð hins umburðarlynda
og eykur honum þol gagnvart óvitum
og eigin brestum. Hún stillir hugann,
lægir öldur skapsins og minnkar lík-
urnar á mistökum.
Sá sem er umburðarlyndur er jafn-
framt þolinmóður gagnvart öllu sem
lífsanda dregur. Hinn þolinmóði
hefur biðlund gagnvart sjálfum sér
og öðrum - biðlund gagnvart sann-
leikanum. Hann hefur langlundargeð
andspænis heiminum og er gæflyndur
hvað sem á dynur.
Umburðarlyndi krefst líka hleypi-
dómaleysis. Umburðarlyndi er að þola
öðrum mönnum að hafa skoðanir,
halda í heiðri hefðir, vera af ólíkum
litarhætti og iðka trú af ólíkum toga.
99..................
Umburðariyndi er að
leggja stund á hófsemi,
þolinmæði og nám sem
dregur úr hleypidómum.
Fordómar fela aftur á móti í sér til-
hneigingu til að raða öllu á bása. Þeir
eru flokkunarárátta hugans til að flýta
fyrir ákvörðunartöku án hugsunar.
Fordómar stafa því oft af því að menn
flýta sér um of og flokka sér til hægðar-
auka. Að for-dæma er að álykta út frá
ytri aðstæðum um innri gæði manna.
Fordómar vekja óvild, ýfa skap og leiða
til haturs. Umburðarlyndi er aftur á
móti lykill að bættum samskiptum því
það felur í sér að fordómum er hafnað
og það krefst biðlundar og sanngjarnra
dóma hugans um persónur, skoðanir,
tilfinningar og hegðun. Hver maður er
nefnilega háður stað og tíma og allt í lífi
hans er breytingum undirorpið. Mann-
heimurinn er settur saman úr ólíkum
heimsmyndum, trúarbrögðum, við-
horfum og athöfnum. Menningarheim-
arnir eru margir og einstaklingarnir
sem tilheyra þeim hafa tilhneigingu til
að halda að þeir einir hafi rétt fyrir sér.
Frið þrá allir, ffið til að vera það sem
þeir vilja. Gagnkvæmt umburðarlyndi
hinna ólíku menningarheima er þar
af leiðandi forsenda ffiðarins á miilli
þeirra.
Umburðarlyndi ber að sýna þeim
sem eru öðruvísi og því sem getur
batnað eða bætt aðra, en ekki böðlum
sem láta græðgina hlaupa með sig í
gönur. Umburðarlyndi er lært og því
hlýtur hver maður að þurfa að byrja
á sjálfum sér: að hemja skapið, dempa
græðgina og efla með sér löngun til að
kynnast ólíkum menningarheimum,
ólíkum lífsháttum.
Umburðarlyndi kemur í veg fyrir
að menn verði of fljótir til að dæma
en það er ein meginástæða mistaka
í samskiptum milh manna og þjóða.
Þolinmæði í þrautum vex og verður
langlundargeð gagnvart brestum,
göllum, veikleikum og eigin gæfuleysi
sem annarra.
Lífið biður um umburðarlyndi. Sá
sem ætlar að komast þangað sem hann
vill og vera þar til frambúðar verður
meðal annars að hafa þol til að líða
bresti annarra, þol til að fara að lögum,
til að beita réttlátum aðferðum, til að
hlaupa ekki að dómum, til að hemja
skap sitt, til að standast freistinguna
að traðka á öðrum og þol til að viður-
kennatakmörksín.
41%
S1B1<US Erud Þid
r, i ikiGI FÓU'. _ _ _
ekki ad gleyma
einhverjum ?!!!
Þó svo að samkeppnisaðilarnir vilji helst gleyma
okkur gera lesendurnir það ekki.
16%
tímaritum sem ætluð eru
er Orðlaus vinsælast
Af
ungt
... sama hvernig á það er litið.