blaðið - 14.01.2006, Blaðsíða 10
10 I ERLENDAR FRÉTTIR
LAUGARDAGUR 14. JANÚAR 2006 blaöiö
íranar hóta samstarfsslitum
íranar hóta samstarfsslitum við Alþjóðakjarnorkumálastofnunina
verði máli þeirra vísað til öryggisráðsins. Utanríkisráðherra Bret-
lands segir hernaðaraðgerðir ekki á dagskrá.
íranar segjast munu binda endi á
samstarf sitt við Alþjóðakjarnorku-
málastofnunina út af kjarnorku-
áætlun þeirra ef málinu verður
vísað til öryggisráðs Sameinuðu
þjóðanna. Meðal annars verða
skyndiskoðanir alþjóðlegra eftirlits-
manna ekki lengur leyfðar í landinu.
Manouchehr Mottaki, utanríkisráð-
herra frans, greindi frá þessu í við-
tali við írönsku fréttastofuna IRNA
ígær.
Bandaríkin og þrjú stærstu ríki
Evrópusambandsins lýstu því yfir
á fimmtudag að viðræður um kjarn-
orkuáætlun frana væru komnar í
blindgötu og að vísa ætti málinu til
öryggisráðsins.
Stórveldin saka íran um að snúa
baki við alþjóðasamfélaginu, fyrir
að hafa ekki staðið við skuldbind-
ingar sínar og fyrir að hafa ekki
getað sannfært heimsbyggðina um
að kjarnorkuáætlun þeirra væri
gerð í friðsamlegum tilgangi. Leið-
togar stórveldanna þriggja telja af
þeim sökum að tími sé kominn til
að öryggisráðið komi að málinu.
Condoleezza Rice, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, hefur einnig
farið fram á neyðarfund hjá Alþjóða-
kjarnorkustofnuninni til þess að
hægt verði að fara fram á að íranar
verði kærðir til öryggisráðsins.
Innrás ekkiádagskrá
,Ef f ran fer ekki að fyrirmælum, mun
öryggisráðið íhuga refsiaðgerðir,“
sagði Jack Straw, utanríkisráðherra
Bretlands eftir að stjórnvöld í Banda-
Frank Walter Steinmeier, utanríkisráðherra Þýskalands, og Jack Straw, breskur starfs-
bróðir hans kynna niðurstöður fundar um kjarnorkuáætlun (rana.
ríkjunum tóku undir beiðni Evr- valdbeiting kæmi til greina svaraði
ópuríkjanna um neyðarfund hjá hann að enginn hefði í huga að ráð-
Alþjóðakjarnorkumálastofnuninni. ast inn í f ran eða grípa til hernaðar-
Þegar Straw var spurður hvort að aðgerða gegn landinu.
NISSAN
MICRA
SKIPT_um stll
SVAKA SÆT
OG SJÁLFSKIPT LÍKA!
Micra sjálfskiptur
Verö 1.490.000,-
Micra beinskiptur
Verö 1.360.000,-
Micra er frísk og skemmtileg, falleg, fínleg
og svo eyðir hún næstum engu. Hún er
svo gott sem hinn fullkomni förunautur!
Nýárstilbod - 50.000,- kaupauki
Öllum Nissan Micra sem keyptir eru
í janúar fylgja vetrardekk.
Ingvar Helgason
Sævartiöfða 2 Sími 525 8000 www.ih.te
Opiö: Mánudaga - föstudaga kl. 9:00-18:00 og laugardaga kl. 12:00-16:00
Pílagrímar hatda aftur til Mekka eftir slysið í Mena í fyrradag.
Deilt um ábyrgð
Ásakanir ganga á milli pílagríma og yfir-
valda í Sádí-Arabíu um hver hafi borið
ábyrgð á harmleiknum við Jamarat-brúna.
Að minnsta kosti 345 fórust í miklum troðn-
ingi áfimmtudag.
Sádí-Arabar kenndu óstýrilátum
pílagrímum um troðning sem varð
að minnsta kosti 345 manns að bana
við helgiathöfn á haj-trúarhátíðinni
á fimmtudag. Margir múslimar
segja aftur á móti að betri öryggis-
gæsla hefði getað komið í veg fyrir
versta slys sem orðið hefur við
athöfnina í 16 ár. Troðningurinn
varð á síðasta degi haj-hátíðarinnar
við Jamarat-brúna í Mena, þröngum
dal í nágrenni hinnar helgu borgar
Mekka.
Yfirvöld í Sádí-Arabíu hafna ásök-
unum um ófuflkomna öryggisgæslu.
„Ríkið hefur gert allt sem í þess valdi
stendur," sagði háttsettasti trúarleið-
togi konungdæmisins í sjónvarpsvið-
tali og sakaði pífagríma um að vera
óstýriláta.
Fóru ekki að reglum
Sultan bin Abdul-Aziz, krónprins,
auk innanríkisráðherra konung-
dæmisins, skelltu einnig skuldinni
á pílagrímana sem ekki hefðu fylgt
reglum, haft farangur sinn með
sér og ekki farið að ráðleggingum
um að taka þátt í helgiathöfninni á
öðrum tíma dagsins.
„Það veldur okkur sársauka að svo
margir skufi hafa látið fífið en við
verðum að benda á að öryggissveitir
komu í veg fyrir að enn verr færi og
björguðu fjölda mannslífa,“ sagði
Nayef bin Abdul-Aziz, innanríkis-
ráðherra í viðtali við fréttastofuna
SPA.
Samningur Clinton-sjóðsins og lyfjafyrirtœkja:
Bjargar hundruðum
þúsunda mannslífa
Samkomulag hefur náðst milli Bill
Clinton sjóðsins og níu lyfjafyrir-
tækja um lækkun kostnaðar við
greiningu og meðferð á HlV-veir-
unni sem veldur alnæmi í 50 þróunar-
löndum. Samkomulagið miðar að
því að sjóðurinn og lyfjafyrirtækin
helmingi kostnað við greiningu og
lækki lyfjakostnað um þriðjung.
„Þetta er aðeins fyrsta skrefið," sagði
Bill Clinton og bætti við að sjóður-
inn vonaðist til að geta lækkað verð
á fleiri lyfjum síðar á árinu.
Hann sagði ennfremur að samn-
ingurinn væri skref i rétta átt en
hann myndi vilja að fleiri af stærstu
lyfjafyrirtækjum heims tækju þátt
í honum. Lyfin sem verða niður-
Sveitir SÞ
Sameinuðu þjóðirnar eru að vinna
að áætlun um að senda viðbragðs-
sveitir til Darfur-héraðs í Súdan.
Sameinuðu þjóðirnar bregðast
þar með við viðvörun frá Afríku-
sambandinu sem telur hættu á að
það verði að draga úr friðargæslu-
störfum á svæðinu vegna skorts á
fjármagni.
Kofi Annan, aðalritari Sameinuðu
þjóðanna, segir að enn séu framin
morð og nauðganir í Darfur og að
nýr herafli myndi þurfa á hátækni-
búnaði og stuðningi flughers að
halda. Afríkusambandið er nú með
um 6000 friðargæsluliða í Darfur.
Bill Clinton.
greidd eru notuð á fyrstu stigum
meðferðar og segir Clinton að samn-
ingurinn gæti bjargað hundruðum
þúsunda mannslífa.
til Darfur
Á undanförnum mánuðum hafa
vopnaðir menn ráðist á hersveitir
Afríkusambandsins í héraðinu.
Ekki er ljóst hver ber ábyrgð á þeim
árásum.
Annan sagði jafnframt að áætlanir
um að senda aukalið myndi krefjast
samvinnu við ríkisstjórn Súdans.
Lengi vel samþykkti ríkisstjórn
landsins aðeins afrískar friðar-
gæslusveitir í landinu.
Um tvær milljónir manna hafa
flúið heimili sín á þeim þremur
árum sem borgarastríðið í Darfur
hefur geisað.