blaðið - 14.01.2006, Síða 14
blaði
14 I ÁLIT
LAUGARDAGUR 14. JANÚAR 2006 bla6iö
Útgáfufélag: Ár og dagur ehf.
Stjórnarformaður: Sigurður G. Guðjónsson.
Ritstjóri: Karl Garðarsson.
AF HVERJU VILDI JÓN
ÁSGEIR EKKI SELJA DV?
Það hefur komið fram i fréttum að tvívegis hafi feðgarnir Björgólfur Guð-
mundsson og Björgólfur Thor reynt að kaupa DV í þeim tilgangi einum að
leggja blaðið niður. Ástæðan er einföld - þeim ofbauð sú fréttamenska sem
DV hafði stundað um árabil í skjóli eigenda sinna, þar sem Baugur á stærstan
hlut. Jón Ásgeir Jóhannesson vildi hins vegar ekki selja blaðið, þrátt fyrir að
slíkt hljóti að hafa verið freistandi, ekki síst vegna viðvarandi tapreksturs á
því. Jafnframt varði hann Gunnar Smára Egilsson með kjafti og klóm, en ef
mark er takandi á fréttum NFS þá vildu Björgólfsfeðgar hann í burtu.
Jón Ásgeir hefur verið áberandi í íslensku viðskiptalífi um árabil. Hann á
sjálfur í erfiðum málaferlum og fyrirtæki hans hafa oft verið gagnrýnd,
stundum er sú gagnrýni sanngjörn og stundum ósanngjörn. Sjálfur hefur
hann átt öruggt skjól í blöðum sínum fyrir óþægilegri umræðu þjóðfélags-
ins. Þar hefur hann getað treyst á jákvæðar fréttir um sig, bæði í almennum
fréttum og ekki síst í svokölluðum viðskiptablöðum sem fylgja Fréttablað-
inu. Á meðan Jón Ásgeir á bæði Fréttablaðið og síðan blað í anda DV hefur
hann treyst á það að geta stjórnað umræðunni á blaðamarkaðnum. Hug-
myndafræðin gekk til skamms tíma út á það að ekki væri pláss fyrir fleiri
blöð á markaðnum en Morgunblaðið, Fréttablaðið og DV. Morgunblaðið
hafði í gegnum tíðina verið íhaldssamt í umíjöllun sinni um menn og mál-
efni og því þurfti hann ekki að óttast mikið úr þeirri áttinni. Undanfarna
mánuði hefur hins vegar orðið vart stefnubreytingar og er tónninn orðinn
hvassari en áður. Með tilkomu Blaðsins varð síðan breyting á íjölmiðlalands-
laginu og Jón Ásgeir þurfti að sætta sig við að til voru fleiri raddir sem hann
gat ekki þaggað niður. Hann hefur því haldið dauðahaldi í bæði Fréttablaðið
og DV. Að gefa DV upp á bátinn gæti þýtt að aðrir aðilar hæfu útgáfu slúður-
blaðs sem væri ekki eins vinveitt.
Annað áhyggjuefni Jóns Ásgeir er síðan NFS sem er líka í hans eigu. Þar
hafa fréttmenn sýnt virðingarvert sjálfstæði í umfjöllun sinni um menn og
málefni, þannig að það er spurning hversu mikinn stuðning hann fær úr
þeirri áttinni - NFS er byggð á fréttastofu Stöðvar 2 sem býr að allt annarri
hefð en dagblöð 365.
Það eru komnir nýir ritstjórar að DV. Annar þeirra hefur þegar lýst því yfir
opinberlega að hann styðji þá ritstjórnarstefnu sem DV hefur fylgt til þessa.
Það er því ekki von á miklum breytingum.
Auglýsingastjóri: Steinn Kári Ragnarsson. Ritstjórn & auglýsingar: Bæjarlind 14-16,201 Kópavogur.
Aðalsími: 510 3700. Símbréf á f réttadeild: 510.3701. Símbréf á auglýsi ngadeild: 510.3711.
Netföng: vbl@vbl.is, frettir@vbl.is, augiysingar@vbl.is.
Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins. Dreifing: íslandspóstur.
Verð frá
* Netsmellur til Glasgow.
Innifalið: Flug báðar leiðir með flugvallarsköttum.
Þetta flug gefur 3.000 Vildarpunkta
'a
MaUcrCani
.ménHI-
ICELANDAIR
www.icelandair.is
TvíHFntír,SnctiH frViMuL/tUSiZ
DV á krossgötum
Nú stendur til að endurreisa DV úr
rústunum. Það verður ekki létt verk
fyrir nýja ritstjóra en ástæða er til
að óska þeim alls hins besta. Blaðið
var of lengi á ólánsbraut. Þannig
virtist oft jafn ógæfusöm ára yfir
blaðinu og því fólki sem það slengdi
miskunnarlaust á forsíðu og hafði af
mannorðið. Það er vissulega hægt
að reka blað af kaldri rökhyggju
og gera ógæfu annarra að söluvöru
án nokkurs tillits til tilfinninga.
En það hlýtur alltaf að koma að
skuldadögum.
Nú, eftir á að hyggja, getur maður
furðað sig á því hversu lengi blaðið
gat haldið áfram á þessari braut.
Vissulega hættu margir að lesa það
og það varð aldrei það útbreidda dag-
blað sem það átti að verða. Margir
blaðamenn flúðu þaðan, einfaldlega
vegna þess að því leið illa í umhverfi
þar sem sífellt var verið að finna
höggstað á viðmælendum og öðrum
sem þar voru til umfjöllunar. Þeir
sem neituðu viðtölum og gagnrýndu
blaðið opinberlega fengu að gjalda
þess í neikvæðum umfjöllunum og
rætnum slúðurmolum. Blaðið var
með fólk í einelti.
Iðrunarleysi ritstjóra
Vissulega var margt ágætt að finna í
blaðinu, eins og til dæmis menningar-
umfjöllun Páls Baldvins Baldvins-
sonar sem nú er orðinn einn af rit-
stjórumblaðsins. DV sankaði einnig
að sér góðum pistlahöfundum. Ég
skildi reyndar aldrei hvað allt það
hæfileikafólk var að gera þarna
innan um allar sorafréttirnar. Ég er
aðtalaumpistlahöfundasemþykjast
vera þjóðfélagslega meðvitaðir, með
góða samvisku og hjartað á réttum
stað. Ég hefði talið að langt bil væri
milli hugmyndaheims þeirra og
ritstjórnarstefnu DV. Kannski hugs-
uðu pistlahöfundarnir með sér að
þeim kæmi ritstjórnarstefnan ekk-
ert við. Þeirra væri að skrifa og taka
við laununum um mánaðarmótin.
Iðrunarleysi fyrrum ristjóra DV
er æpandi. Af viðbrögðum þeirra
Kolbrún Bergþórsdóttir
fyrstu dagana varð ekki ráðið að
þeir teldu sig hafa gert neitt rangt og
ekki varð annað séð en að þeir ætl-
uðu sér að halda áfram á sömu braut.
Þar til þeim varð ljóst að það væri
ekki hægt. Þá ákváðu þeir að hætta.
Ég efast ekki um að þeim hafi liðið
illa vegna málsins, þótt ekki hafi
þeir viljað viðurkenna það. Kannski
fundu þeir fyrir votti af þeirri van-
líðan sem fórnarlömb þeirra fundu
fyrir. Það sem menn gera öðrum
kemur svo oft aftan að þeim. En það
er engin ástæða til að grýta Jónas
Kristjánsson og Mikael Torfason
og róa að því öllum árum að hafa
af þeim æruna. Þeir kunna margt
á sínu sviði en í ritstjórnarstefnu
sinni gerðu þeir skelfileg mistök og
hafa nú axlað ábyrgð með afsögn.
Veist að blaðamönnum DV
Ég er ekki alveg ókunnug ritstjórn
DV og veit að tölvupóstur hefur
dunið á blaðamönnum þar sem
þeim eru ekki vandaðar kveðjurnar
og margt sem þar stendur er þess
eðlis og svo viðbjóðslegt að enn einu
sinni verður manni ljóst hversu
hættuleg múgsefjun getur verið því
í henni er svo lítið rými fyrir skiln-
ing og fyrirgefningu. Vissulega
hefur fréttamennska DV einkennst
af mannfyrirlitningu en það er ekki
vegna þess að blaðamenn blaðsins
séu sorpeintök af mannkyninu.
Menn völdu sér ranga braut í frétta-
flutningi, sennilega af því þeir ætl-
uðu sér að selja dagblað og var nokk
sama hvað þeir þyrftu að gera til að
ná árangri. Slík stefna hlaut fyrr eða
síðar að leiða til hörmungaratburða
en það lýsir lágkúru að ætla að
hefna sín á blaðamönnum DV, sem
ég veit að flestir taka þessa atburði
nærri sér.
Fjölmiðlamenn og almenningur
geta margt lært af atburðum síðustu
daga. Ekki síst að nærgætni ber að
sýna í umfjöllun um viðkvæm mál.
Það er ekki hlutverk fjölmiðla að
taka fólk af lífi. Fátt er skelfilegra
en dómstóll götunnar þar sem frum-
skógarlögmálið ræður ríkjum. Ég
trúi því ekki að nokkur kæri sig í
alvöru um að lifa í slíku þjóðfélagi.
Það er hlutverk fjölmiðla að koma í
veg fyrir að slíkt ástand myndist en
ekki ala á því.
Höfundur er blaðamaður
Klippt & skorið
klipptogskorid@vbl.is
Igær fór DV svo langt
yfir strikið að ómögu-
legt er að afsaka það.
... Það er að breyta rétt að
skrifa ekkl meira fyrir blaðið
(this.is/dr.gunni/gerast).
Eins og fram hefur komið í fjölmiðlum
hefur tónlistarmaðurinn Dr. Gunni,
ákveðið að hætta pistlaskrifum
fyrir DV. Hann lýsti þessu yfir á vefsvæði sínu
skömmu eftir að málið kom upp. Degi síðar
birti hann annan pistil þar sem hann lýsti
viðbrögðum Mikaels Torfasonar, fyrrverandi
ritstjóra DV, við ákvörðun sinni. Svo virðist
sem kastast hafi f kekki milli hinna gömlu
starfsfélaga og sakaði Mikael Gunnar m.a. um
að vera popúlisti. Dr. Gunni virðist hafa fengið
einhverja bakþanka vegna bloggskrifanna því
stuttu sfðar hafði hann fjarlægt ummælin um
samskipti hans og Mikaels af síðunni.
Dr. Gunni
eimasfðan riki-
ein af þeim vinsælli hér
á landi en þar er hægt jrMJWtL
að finna ýmsar upplýs-
ingar um fjármál hins opinbera. Svona rétt
til að Iffga örlítið upp á síðuna er boðið upp á
.skemmtilegan" spurningaleik þar sem gestum
gefst tækifæri til að sýna fram á þekkingu sína
f málaflokknum. Þar kemur óvænt (Ijós að
starfsmenn hins opinbera eru ekki algerlega
án húmors því (spurningu um hvað skattar á
áfengi og tóbak eru kallaðir er einn svarmögu-
leikinn „Okur". Til að kóróna „djókið" er gefið
rétt fyrir ef svarað er á þennan hátt.
Eitt hlutverk Alþýðu-
sambands íslands
snýr að verðlagseft-
irliti, og eru þar á bæ reglu-
lega gerðar vfðtækar verð-
kannanir. Þegar tilkynningar um niðurstöður
kannana eru hinsvegar gerðar opinberar
bregður svo við að þær eru ávalt sendar út á
kvöldin, oftast um klukkan níu. Draga mætti
þá ályktun að um hálfgerð myrkraverk væri
að ræða. Bent hefur verið á að með tímasetn-
ingunni sé komið f veg fyrir að fréttir birtist (
kvöldfréttatímum Ijósvakamiðla viðkomandi
kvöld, en hins vegar tryggir þetta Morgunblað-
inu frábæra aðstöðu til að vera fyrst með frétt-
ina. Þetta samstarf hlýtur að vekja spurningar
um hverjum er verið að þjóna og vill klippari
leggja það til að sambandið góða verði hér
eftir kallað Alþýðusamband Morgunblaðsins.
-