blaðið - 14.01.2006, Side 15
blaðið LAUGARDAGUR 14. JANÚAR 2006
ÁLIT I 15
Snúningsstóll leður.
54.200 Mfe.:
43.920 *
Uppsagnir
með ofbeldi
EaSSBSŒH
Leigubílsstjóri í Reykjavík hafði
samband og vildi koma fram ábend-
ingum til ökumanna. Hann sagðist
sífellt vera á ferðinni og að honum
blöskraði til að mynda iðulega
hversu margir færu af stað á van-
búnum bílum þegar færð væri erfið.
Slíkt skapaði augljósa slysahættu
eins og komið hefði í ljós í dag [gær].
Á slíkum dögum væri lögreglan
allt of upptekin við að aðstoða þá
sem hefðu lent í vandræðum til að
stoppa þá sem væru sjálfum sér og
öðrum hættulegir á þennan hátt.
Við búum jú í landi sem heitir ís-
land og ökumenn verða að haga sér,
og búa bíla sína í samræmi við það.
Hann vildi ennfremur koma á
framfæri því mati sínu að umferð-
armenningunni hefði farið aftur
að undanförnu - hraðinn hefði auk-
ist á sama tíma og tillitssemi öku-
manna væri á undanhaldi. Noktun
á stefnuljósum og almenn kurteisi
mætti vera mun meira áberandi
þegar keyrt væri um götur okkar fal-
legu borgar.
Össur
Skarphéðinsson
Leiðindalenska
er þetta að verða
að reka menn
meðslíku ofbeldi
að umleið ogþeim
er rétt uppsagn-
arbréfið er þeim
hent út í bókstaf-
legri merkingu.
Látnir ganga frá
skrifborðinu
nánast óhreyfðu. Fá kannski af
náð og miskunn að setja draslið
sitt í pappakassa undir eftirliti.
Varla þeir fái að kveðja starfsfé-
lagana. Þetta er ömurleg þróun.
Aðfarir af þessu tagi eru hugsanlega
nauðsynlegaríundantekningartilvik-
um þegar í hlut eiga stjórnendur í at-
vinnulífinu sem gætu kannski tekið
með sér mikilvæg skjöl í geðshræring-
unni sem aðfarir af þessu tagi skapa.
Þær eru jafn leiðinlegar fyrir því.
En hvernig má það vera að Öryrkja-
bandalagið rekur framkvæmda-
stjóra sinn til fimm ára með ná-
kvæmlega sama hætti? Arnþóri
Helgasyni var svo að segja fleygt út
á skyrtunni þegar hann var rekinn.
Hvað veldur því að Öryrkjabanda-
lagið, sem maður hefði nú haldið
að værií öðru partýi en stórkapít-
alið hagar sér svona? Maður er hálf-
sleginn yfir aðförum af þessu tagi.
Meira að segja Landspítalinn er
farinn að iðka svona vúlgaribus.
Mér hnykkti við þegar ég las á dög-
unum hvernig Stefán Matthíasson
yfirlæknir var látinn hætta. Honum
var hent út. Ég trúði þessu ekki upp
á Magnús Pétursson og kó. Kynnti
mér málið og þaðkom í ljós að
þeir á spítalanum eru líka smitaðir
af stórforstjóraveirunni og búnir
að taka þennan barbarisma upp.
Það var nú svo makalaust að í til-
viki Stefáns var tölvupósturinn
hans meira að segja settur í hendur
á öðrum lækni. Mig hryllti við. Er
þetta persónuverndin sem spítalinn
iðkar? Ef spítalinn ber ekki meiri
virðingu fyrir persónuvernd starfs-
manna hvaða virðing skyldi þá
borin fyrir læknaskránum um
okkur? Ég vona að fællinn um
mig sé betur verndaður entölvu-
póstur læknisins. Þetta er ekkert
annað en brot á lögum um per-
sónuvernd. Maður trúir varla að
opinber stofnun hagi sér svona.
Hvað er að verða um þetta samfélag
þegar Öryrkjabandalag og háskóla-
sjúkrahús haga sér einsog helstu bar-
barar óðakapítalismans?
Höfundur er alþingismaður
Sigríður hafði samband:
„Mig langar að koma á framfæri
kvörtun til verslunareigenda hér
á landi. Ég hafði sparað við mig
í innkaupunum fyrir jólin í því
augnamiði að gera reyfarakaup á
útsölunum. Þegar ég svo gerði mér
ferð til Reykjavíkur brá mér heldur
betur í brún. Jú jú, útsölur eru í
öllum verslunum, en það sem mér
blöskraði er verðlagning sú sem eig-
endur tuskubúða ástunda. Snjáðar
gallabuxur sem dóttir mín hafði
óskað sér voru á 30% afslætti í búð
einni. En þar sem verðið á þeim var
svo svimandi hátt áður en kom til út-
sölunnar, skánar það ekkert að ráði
þó afslátturinn komi til. Mér dettur
ekki í hug að kaupa gallabuxur á 15
þúsund krónur og þótt 11 þúsund
krónur sé heldur skaplegra verð, er
það enn allt of mikill peningur til
þess að borga fyrir gallabuxur sem
varla kosta mikið meira en þúsund
kall í framleiðslu í einhverju austan-
tjaldslandinu. Mér finnst að verslun-
areigendur ættu að sjá sóma sinn í
því að stilla álagningunni á fötin
sem þeir selja í hóf. Verðlagning
sú sem ég varð vör við í þessari bæj-
arferð minni er gjörsamlega út úr
kortinu."
'
Sófasett leður 3+2+1
233.000
191.200
i DÍ Ö
a r ■ t
H Ú S G 0 G N
BÆJARLIND 6
201 KÓPAVOGI
SÍMI 554 6300