blaðið - 14.01.2006, Blaðsíða 24
24 I TILVERAN
LAUGARDAGUR 14. JANÚAR 2006 blaöiö
mm
Aukin virðing DV manna...
Landsmenn hafa væntanlega ekki farið varhluta af umræðum
síðustu daga tengdum meintum mannorðsmorðum DV. Náði
umræðan svo eflaust hámarki sínu þegar maður tók sitt eigið
líf eftir alvarleg ummæli í áðurnefndum snepli og líkast til var
botninum í fjölmiðlum þarna náð. Grimmdarleg forsíða leit
dagsins ljós og úr varð þessi harmleikur sem lætur fáan íslend-
inginn ósnortinn.
Auðvitað er ekki hægt að draga DV algerlega til ábyrgðar
fyrir mannsföll af þessum toga en það má óneitanlega til sanns
vegar færa að DV hafi, í það minnsta, ekki gert umræddum
manni auðveldara að lifa í okkar samfélagi. Hvort hann hafi
verið sekur eða saklaus skal ósagt látið, en hafa ber í huga að
í stjórnarskrá lýðveldis íslands segir orðrétt: „Engum verður
gert að sæta refsingu nema hann hafi gerst sekur um háttsemi
sem refsiverð er samkvæmt lögum.” Þetta virti DV að vettugi,
tók sér í hendur dómsvald ríkisins og dæmdi mann án fullnægj-
andi stoða. Hins vegar vona ég að ritstjórar blaðsins séu búnir
að öðlast fyrirgefningu og aukna virðingu flestra fyrir að segja
upp störfum sínum.
Ég gat reyndar ekki annað en glott þegar ég sá Jónas
Kristjánsson standa fyrir svörum í Kastljósi á dög-
unum. Jónas talaði þarna um stefnu DV og sagði hana
vera þá að sýna fólki fram á sannleikann. Þarna
skakklappaði hann nú eitthvað greyið, en eins
og flestir vita hafa þeir ósjaldan borið ljúgvitni
og farið hamförum í eltingarleik við Gróu á leiti.
Einnig fannst mér grátbroslegt að hlusta á Jónas
tala um þær siðareglur sem þeir höfðu í frammi,
en hann vill meina að margar þeirra séu sóttar út
fyrir landssteinana. En bíddu, Jónas minn!, Þurft-
irðu að fara alla leið til Sómalíu til að finna þínar
siðareglur? Eða er orðið siðaregla ekki í þinni
orðabók?
Ég vil taka það fram að eflaust er Jónas (ásamt
hans mönnum) besta skinn inn við beinið og með
mannúð einhverja. Ég er viss um að þeir búi allir
yfir góðmennsku (þó svo að ég gangi nú ekki það
langt að kalla þá jesúbörn) og af gefnu tilefni vil ég
lýsa yfir ánægju minni með uppsögn tvíeykisins í gær.
Þarna sýna þeir sóma sinn með því að segja upp
og undirstrika þannig að þeir sjái að sér. Það er
ekki annað hægt en að taka að ofan fyrir þeim,
en þetta skref þeirra mun væntanlega hafa
áhrif á umfjöllun allra fjölmiðla hvað varðar
einstaklinga á komandi árum.
Að lokum vil ég benda á þann stjórnarskrár-
bundna rétt okkar til að fá úrlausn mála
innan óvilhallra dómstóla. Það þarf engan
> kjarneðlisfræðing til þess að gera sér grein
fyrir því að frakkir og óforskammaðir
fjölmiðlar falla ekki þar undir - jafnvel
þótt þeir telji sig hafa umboð til þess...
Það er því von mín að fyrrum stefna
DV verði engum öðrum fjölmiðli til eft-
irbreytni og allir munu þeir héðan í frá
halda sig á jörðinni í skrifum sínum
um landsmenn.
Halldóra Þorsteinsdóttir
HEIMAVÖRN SECURITAS - ÖRYGGISKERFI FYRIR HEIMILIÐ
Ertu geíandi eða þiggjandi?
Flestir þekkja málsháttinn: „Sælla
er að gefa en þiggja” og ófáir hafa
tileinkað sér þennan þankagang í
lífínu. Eflaust á þessi setning vel
rétt á sér og allir ættu að lifa eftir
þeim viðmiðum sem hún setur
fram. Hins vegar má ekki gleyma
því að þegar talað er um að gefa eða
þiggja er ekki einvörðungu átt við
veraldlega hluti eins og gjafir eða
peninga. Hér er ekki síður átt við
þann góða eiginleika að vera góður
hlustandi, góður vinur og það að
geta hjálpað þeim sem minna mega
sín. Þreyttu persónuleikaprófíð hér
fyrir neðan og þú getur komist að
raun um hvort þú hallar meira að
gefandanum eða þiggjandanum.
IVinur eða vinkona kemur hálf-
grátandi til þín og biður um
huggun. Hvernig bregstu við
þegar viðkomandi fer að segja þér
frá því sem bjátar á?
a) Ég hreinilega hef ekki þolinmæði
í eitthvað væl í vinum og vanda-
mönnum. Hver og einn verður bara
að eiga sín vandamál við sig og halda
þeim fjarri mér.
b) Að sjálfsögðu reyni ég eftir
fremsta megni að hjálpa viðkomandi
og styðja í gegnum erfiðleikana.
c) Maður reynir að aðstoða á ein-
hvern hátt, en hins vegar tel ég mig
engan sálfræðing og get ekki leikið
hlutverkhans.
2Líður þér vel þegar þú lætur
gott af þér leiða?
a) Já.þaðereinbestatilfinning
sem ég upplifi. Að geta hjálpað öðrum
á ögurstundu skiptir mig miklu mál
og ég upplifi milda vellíðan samfara
því.
b) Auðvitaðlíðurmannivelmeðþað.
Hins vegar er ég ekkert að gera það
fyrir mig og reyni að skipta mér ekki
of mikið af.
c) Þetta er nú bara eintóm þvæla,
þetta með að láta gott af sér leiða. Við
lifum öll fyrir okkur sjálf og sækjumst
eftir aukinni velferð okkar - ekki
annarra.
3Hvort fínnst þér skemmti-
legra að gefa einhverjum eitt-
hvað eða þiggja frá öðrum,
hvort sem um ræðir gjafir eða
aðstoð?
a) Mun skemmtilegra að gefa
eitthvað.
b) Égernúmeirafyriraðfáeitthvað
gefið sjálf/ur...
c) Hvorugt stendur sérstaklega
uppúr.
6Hvað af eftirfarandi lýsir þér
best?
a) Þú ert fremur sjálfselsk/ur
og hugsar fyrst og fremst um eigin
hag.
b) Þúertekkisjálfselskurenviltauð-
vitað fá þínu fram...
c) Þú ert síður en svo sjálfelskur og
lætur þig aðra varða öllum stundum.
7Ertu hógvær?
a) Já, ég er mjög hógvær - get
ekki sagt annað.
b) Nei - hógvær? Kemur ekki til
greina! Ekkert bull hér...
c) Eflaust eilítið, en ekkert sem
dregur úr mér kjark.
8Nýtirðu þess að gefa öðrum,
jafnvel þótt þú fáir ekkert í
staðinn?
a) Jújú, svosem alveg.
b) Nei, ég fæ ekkert sérstaklega
mikið út úr því að gefa fólki sem aldrei
gefur mér.
c) Já, ég nýt þess og það gefur mér
eflaust meira sjálfri/sjálfum en þeim
sem ég er að gefa.
Reiknaðu út stigin:
i. a)1 stig b) 4 stig c) 2 stig
2. a)4stig b) 2 stig c) 1 stig
3. a) 4 stig b) 1 stig c) 2 stig
4. a) 4 stig b) 2 stig c) 1 stig
5. a)1 stig b) 2 stig c) 4 stig
6. a) 1 stig b) 2 stig c) 4 stig
7. a) 4 stig b) 1 stig c)2 stig
8. a) 2 stig b) 1 stig c) 4 stig
0-8 stig:
Þú kýst heldur aö þiggja en gefa og
setur sjálfa/n þig iðulega í fyrsta
sæti. Sumir eru einfaldlega svona,
en hins vegar máttu leggja þitt af
mörkum til þess að breyta þessu. Þér
líður eflaust betur ef þú leyfir öðrum
að spila stærri sess hjá þér...
9-20 stig:
Þú ert væntanlega eins og flestir
eru. Átt jafnvel auðvelt með að gefa.
en hins vegar gerirðu ekki mikið af
því ef þú færð ekkert tilbaka. Það er
svosem eðlilegt útaf fyrir sig, en þú
mættir hugsa út í það stundum að
það þarf ekki alltaf að gjalda til baka
eða hugsa að allt þurfi að vera slétt
og fellt hvað þetta varðar. Stundum
gefum við án þess að ætlast til ein-
hvers til baka...
21-32 stig:
Glæsilegtl Þú setur sjálfa/n þig síður
en svo í fyrsta sæti og lætur þig
aðra varða hvar sem þú kemur. Þér
líður betur ef öðrum Ifður vel og vilt
leggja þitt af mörkum til þess að
svo geti orðið. Þegar kemur að pen-
ingum ertu heldur ekki sjálfselskur,
heldur horfirðu á þá sem veraidlega
hluti sem ekki skipta öllu.
4Finnst þér þú vera
að eðlisfari?
a) Nei, síður en svo. Ég gef
sem oftast þegar ég fæ tækifæri til
þess.
b) Ég get ekki sagt að nískan hrjái
mig, en ég er ekkert fyrir að spreða í
einhvern óþarfa.
c) Það er skynsamlegt að vera
nískur og það er leiðin að ríkidæmi.
Ég reyni að hafa það að leiðarljósi.
5Þú ert í veislu þar sem
boðið er upp á uppáhalds-
konfektið þitt. Manneskja
mætir þér við konfektkassann
þegar þú ætlar að ná þér í mola
og einungis einn er eftir. Hvernig
bregstu við?
a) Ég reyni náttúrulega að hirða
molann á undan honum.
b) Ég veit það ekki - þetta væri nú
ekkert stórmál held ég.
c) Að sjálfsögðu beiti ég mér fyrir
því að viðkomandi fái molann
- annað er dónaskapur.