blaðið - 14.01.2006, Side 34
34 I VÍSINDI
LAUGARDAGUR 14. JANÚAR 2006 blaAÍA
Lœrðu betur
á símann!
Gagnlegt nám hjá Mími
BlaöiH/Frikki
Örvænting skín úr augum þessa simaklaufa! Honum veitti líklega ekki af byrjendanám-
skeið í símatækni.
Hjá símenntunarstöðinni Mími í
Reykjavík er nú fjórða árið í röð
boðið upp á námskeið í notkun og
meðhöndlun GSM síma undir heit-
inu „Lærðu betur á GSM símann
þinn“. Námskeiðið er haldið í sam-
starfi við Símann, sem leggur til
kennara og námsgögn á það. Blaðið
freistaði þess að leita upplýsinga
um námskeiðið hjá kennurum þess
en vegna strangra samskiptareglna
Símans við fjölmiðla reyndist það
ekki unnt að sinni, enda eldfimt
mál á ferð. Sigríður Einarsdóttir,
verkefnisstjóri hjá Mími, er hins-
vegar flestum hnútum kunnug varð-
andi námskeiðið og segir almenna
ánægju með það til staðar hjá
útskrifuðum símameisturum, sem
eru fjölmargir frá upphafi.
„Mér hefur fundist á fólki sem
rík ánægja væri með námskeiðið
og það sem þar er kennt, enda ekki
sjálfgefið að nútímatækni liggi jafn
beint fyrir öllum. Nú er námskeiðið
í fyrsta sinn haldið á tveimur stigum,
fyrir byrjendur og lengra komna,“
segir Sigriður. „Á byrjendanám-
Óríon - suðupottur í
1500 ljósára fjarlægð
Ungstirni, smástirni og gasgljúfur á nýjum
lægum fyrirbærum. Meðal þess sem
líta mátti í nýrri mynd frá honum,
sem NASA opinberaði sl. miðviku-
dag, voru andvana fæddar stjörnur,
smástirni og gríðarstór gas- og ryk-
gljúfur, að því er Reuters greinir frá.
I tilkynningu sem NASA sendi frá
sér með myndinni er haft eftir full-
trúa stofnunarinnar að „Orion sé
suðupottur virkni“.
Stjörnuþokan Orion er í aðeins
1500 ljósára fjarlægð frá jörðu og því
nær okkur en flestar. Hún þykir því
einkar hentug til þess að rannsaka
hvernig stjörnur fæðast og hefur
verið í skoðun frá þvi Hubble-sjón-
aukinn var tekinn í notkun, en
honum var skotið á loft árið 1990.
Meðal þess sem sjá má á mynd-
inni nýju eru ungir brúndvergar
- einnig þekktir sem „misheppnaðar
stjörnur” - fyrirbæri sem aldrei
náðu að verða stjörnur þar sem
þeim skorti eiginleika til þess að
viðhalda kjarnasamruna í kjarna
sínum líkt og sólin gerir. Meðal þess
sem hvað helst grípur augað á mynd-
inni eru líklega ljósholrými þar sem
þúsundir stjarna eru að myndast.
náið i grundvallaratriði
GSM símanna, fyrirbæri eins og
SMS, númerabirtingu, simaskrána
og millilandasímtöl. Þessi angi er
mikið sóttur af eldra fólki sem hefur
áhuga á því að tileinka sér helstu
möguleika símans.“
Fróðir kennarar
Framhaldsnámskeiðið er, að sögn
Sigriðar, hugsað fyrir fólk sem fest
hefur kaup á nýrri gerðum GSM
síma og vill læra á ýmsa agnúa
þeirra og .möguleika, s.s. myndsend-
ingar, internetflakk, WAP, VIT o.fl.
„Kennslan fer fram í litlum hópum
og er algjörlega sniðin að þörfum
og símtækjum hvers og eins. Kenn-
ararnir eru fróðir í sinu fagi og geta
sjálfsagt kennt sparnaðarráð til
jafns við annan fróðleik sem þeir
útdeila. Námskeiðinu er svo skipt á
tvö kvöld, þannig að fólk getur æft
sig á milli og leitað svara við spurn-
ingum sem kvikna," segir Sigriður.
Byrjendanámskeið í símanotkun
fer fram um miðjan febrúar og
kostar þátttaka kr. 2.200. Hægt er að
skrá sig i það á www.mimir.is
Nýjasta mynd Hubble af Óríon-stjörnuþokunni. Heimurinn er býsna ótrúlegur.
myndumfrá Hubble
Hubble-sjónaukinn frægi heldur
áfram að skerpa sýn mannanna á
„Klárbyssan" hindrar
gikk-glöð krútt og krimma
Lœrir að þekkja eigandann
Ef að líkum lætur er þess skammt
að biða að svonefndar „klárbyssur“
(e. „smart guns“) komi á almennan
vopnamarkað, en vísindamenn við
Tæknistofnun New Jersey (New
Jersey Institute of Technology, NJIT)
sýndu í siðasta mánuði frumgerð
af slíkri sem yrði nægilega ódýr í
framleiðslu til þess að hinn almenni
borgari hefði efni á. Jafnvel er búist
við gripnum á markað fyrir árið
2008. Byssan er hönnuð til þess að
þekkja grip eiganda síns og verður
óvirk þegar ókunnir lófar, t.d. glæpa-
manns eða barns, grípa um hana.
Fékk stofnunin um 2 milljónir
bandaríkjadala í hönnunarstyrki
frá bandaríska ríkinu til verksins.
Frá þessu greinir vefritið Popsci-
ence.com
Skynjarar og örgjörvar í hand-
fangi byssunnar nema og greina hið
flókna samspil beina og vöðva sem
þarf til þess að hleypa af byssunni á
örskotsstundu. Haft er eftir Donald
Sebastian, varaforseta þróunarsviðs
hjá NJIT, að kraftarnir sem þarf til
verksins séu einstakir í hverjum
manni. Hugmyndin er að vænt-
anlegir eigendur byssunar muni
„kenna“ byssunni að þekkja sig á þar-
tilgerðum „skotstöðvum" á vegum
lögreglunnar og þurfi að hleypa af
um tíu sinnum til þess. Hvert skot
mun virkja þrýstingsnemana í hand-
fangi byssunnar og örgjörvar í kjöl-
farið nýta gögnin til þess að læra á
eigandann.
Af „klárum" vopnum
Áætlað er að um 29.000 manns deyi
af skotsárum í Bandaríkjunum ár
hvert. Telja formælendur skotvopna-
öryggis að „klárbyssan" geti lækkað
þær tölur stórlega, en sumir vilja
þó meina að tæknin sé enn óörugg
og gæti valdið meiri vandræðum
en henni er ætlað að leysa. Sam-
kvæmt NJIT gerir nýjasta gerð byss-
unnar þeirra mistök í einu af hverju
hundrað skiptum sem tekið er í gikk-
inn. Áður en hún kemur á markað
er ætlað að villutíðnin verði komin í
eitt skipti af hverjum 10.000. (sem er
staðall bandaríska varnarmálaráðu-
neytisins fyrir hernaðarvopn) með
því að fjölga nemum byssunnar úr
32 í nokkur hundruð og bæta jafn-
framt úrvinnsluforrit hennar.
Bregðist byssan klára gæti svo ein-
hver bent formælendum skotvopna-
öryggis í BNA á að í þeim löndum
þar sem skotvopnaeign er ekki
almenn er fjöldi dauðsfalla tengdum
þeim i algeru lágmarki ár hvert.
Þessi byssa verður ekki mörgum að meini, þó hún sé ekki tiltölulega klár.