blaðið - 14.01.2006, Blaðsíða 36
36 I ÝMISLEGT
LAUGARDAGUR 14. JANÚAR 2006 blaðið
Hœttur að reykja eftir 25 ár ogþrjá pakka á dag
Reykingar haía ekkert
með vana að gera
Valgeir Skagfjörð leikari var stór
reykingamaður og hafði reykt í
25 ár, allt upp í þrjá pakka á dag.
í dag hefur hann ekki reykt í tíu
ár en sú ganga var ekki alltaf
þrautalaus. Hann hætti fyrst
i heilt ár en féll í freistni einn
afdrifaríkan dag. Valgeir
samdi bókin: „Fyrst ég gat
hætt getur þú það líka“, þar
sem hann flettir ofan af
blekkingum, hugsana-
villum og eitrinu sem
umlykur tóbakið.
Bókin er sögð ein-
staklega áhrifarík
og þrælvirka.
svo hafi ekki verið. „Af hverju ætti
að vera erfitt að gera eitthvað gott
fyrir sjálfan sig og taka við þessum
gjöfum sem maður fær? Allir reyk-
Valgeir segir að
honum líði miklu
betur eftir að
hann hætti að
reykja. „Ég get
alveg fullyrt að ég
er betur á mig kom-
inn núna, að verða
fimmtugur, heldur
en ég var fertugur. Það
er náttúrlega bara út af
reykingunum. Ég er ekki í
líkamsrækt á hverjum degi eða
borða heilsufæði. Eg lifi bara venju-
legu lífi eins og hver annar og geri
allt eins og ég gerði áður en ég hætti
að reykja. Þetta er farið og maður er
bara alít í einu frjáls og hefur tíma,
einbeitingu og orku til að gera það
sem manni langar til að gera og
njóta lífsins.“
Reykingarnar helsti óvinurinn
Aðspurður að því hvort það hafi ekki
verið erfitt að hætta segir Valgeir að
prótein
Fáar
hitaeiningar
inga-
menn líta á að það sé fórn að hætta
að reykja, að þeir séu að láta eitthvað
frá sér og jafnvel kveðja sinn besta
vin. 1 stað þess að hugsa þetta öfugt,
því þetta er náttúrlega bara helsti
óvinur manns og í staðinn fyrir að
vera að sjá eftir einhverju þá tek-
urðu við þessum gjöfum sem þú
færð, þetta nýja frelsi. Það er regin-
munurinn á hugarfarinu hjá mér í
þessitvöskipti,“segirValgeirogbætir
við að það sé svo ótrúlega margt sem
lagaðist og gekk til baka þegar hann
hætti. „Maður fer að anda dýpra,
sofa betur, þrekið verður betra, súr-
efnismettunin er betri og svo fram-
vegis. Reykingarnar ráðast á allt í
líkamanum, ekki bara lungun,
heldur allan líkamann.
Maður er undirlagður,
æðakerfið, stoðkerfið
og allt annað. Að
hætta að reykja er
það besta sem ég
hef nokkurn tím-
ann gert fyrir
sjálfan mig.
Þannig er það
með reykinga-
menn sem ná
að skilja þetta,
þeir finna þetta
frelsi og þeir
njóta þess. Það
er ekkert verið að
væla og sýta það að
geta ekki reykt við ein-
hver ákveðin tækifæri.
Maður er að hitta reyk-
ingamenn sem hafa verið
hættir í ár og áratugi og segja
síðan blákalt við mann að þá langi
alltaf í sígarettur. Þetta er svo mikill
óþarfi því það er verið að viðhalda
einhverjum ranghugmyndum."
Allt í höfðinu á reykingamanninum
Margir reykingamenn tala um
að þeim finnist erfitt að hætta að
reykja vegna vanans, þeir séu vanir
því að reykja alltaf eftir mat, svefn
Valgeir Skagfjörð: „Reykingar hafa ekkert með vana að gera."
og svo framvegis. Valgeir segir að
það sé einungis í höfðinu á reykinga-
manninum og vaninn komi málinu
ekkert við. „Reykingar hafa ekk-
ert með vana að gera. Það vantar í
rauninni ekki neitt þegar maður er
laus við þetta. Ef þú hugsar rökrétt
um vanann þá sérðu að reykingar
eru ekki vani. Það var keyrt vinstra
megin á Islandi fram til 1968 þegar
hægri umferð var tekin upp. Það
færðu sig allir á hægri vegarhelm-
ing og það var ekkert mál. Samt
var fólkið búið að keyra í vinstri
umferð árum og áratugum saman.
Svo þurfti allt i einu að skipta um og
það var ekkert mál. Þannig skilgreini
ég annars vegar vana og hins vegar
fíkn. Fíknin kallar á meira níkótín.
Svo eru það þessar aðstæður sem
reykingamaðurinn skapar sjálfum
sér, þessar huglægu og sálrænu
aðstæður sem hann er búinn að búa
til. Hann er búinn að búa til sálfræði-
legar tengingar sem segja honum að
við þessar aðstæður eigi að reykja.
Það eru þessar aðstæður sem skapa
fyrst og fremst ákveðna tilfinningu
og þessar tilfinningar tengjast oft
kvíða, spennu og ótta. Það er þetta
sem gerist. Þetta er allt í höfðinu á
reykingamanninum,“ segir Valgeir
ákveðinn.
svanhvit@bladid.net
Breyttir mannasiðir
Ertþú
Flest okkar lærðu einhverja
mannasiði þegar við ólumst upp.
Ekki tala með fullan munninn,
ekki hringja í annarra manna
hús um kvöldmatarleytið, sýnið
öðrum virðingu og svo framvegis.
En í dag eru aðrir tímar sem við
mörg hver kunnum lítið á. Með
farsímum, notkun tölvupósta,
breyttri kynhegðun og ýmsu
öðru hefur ansi margt breyst og
að sama skapi virðast almennir
mannasiðir vera hverfandi.
dóni?
Áframsendið tölvupóst með varúð
Fæst okkar hafa tíma né áhuga á að
lesa áframsendan tölvupóst. Auk
þess er ekki mjög líklegt að einhver
hafi sett sprautunál með HlV-veir-
unni á bekk í Kringlunni eða að
einhver maður út í heimi ætli að
borga okkur stórfé fyrir það eitt
að áframsenda tölvupóstinn hans.
Hvað þá að það sem þú óskar þér heit-
ast muni gerast, en bara ef þú sendir
tiltekinn póst til tíu vina þinna. Ef
svo ólíklega vildi til að þetta væri
satt, heldurðu að þú myndir ekki
heyra um það í fréttum fyrst?
Hættu að monta þig
Ef þú setur stöðugt allan póstlistann
þinn í To dálkinn á tölvupóstinum
þá er eins að þú sért að monta þig
af því hve marga þú þekkir. Eða
kannski enn frekar hverja þú þekkir.
Ef þú þarft að senda einn tölvupóst
til allra vertu þá hógvær og settu
það í Bcc. Enda er ekki víst að þessir
aðilar vilji að hver sem er viti tölvu-
póstfang sitt.
Óþarfa uppiýsingar
Það er í rauninni munur á reply og
reply all. Ef þú hefur ekki eitthvað að
segja sem kemur hverjum og einum
á listanum við þá skaltu nota reply
í stað reply all. Það getur verið ansi
pirrandi að fá stöðuga tölvupósta
sem eru í rauninni einungis ætlaðir
einum einstaklingi.
Slökktu á símanum
Þegar farsímarnir komu fyrst á
markað þótti ekkert skrýtið, sama
hve pirrandi það var, að fólk gleymdi
að slökkva á þeim við ýmis tækifæri.
Nú eru ansi mörg ár liðin og enn
er fólk að gleyma að slökkva á sím-
unum við vandræðalegustu tækifæri,
eins og í kvikmyndahúsi, jarðar-
för, brúðkaupi og svo framvegis.
Þetta er vægast sagt óþolandi, svo
ekki sé minnst á dónalegt.
Ekki nota farsíma:
• I öllum aðstæðum þar sem er
fjöldi fólks sem hlustar á tölu
(jarðarför, brúðkaup, ræða).
Setjið símann í víbra eða
slökkvið hreinlega á honum.
Enginn er ómissandi.
• I tilfinningaríkum samtölum á
almannafæri. Trúðu mér, öllum
líður óþægilega að hlusta á þig
tjá ást þína, óhamingju eða van-
sæld í tólið.
• Þegar þú ert undir stýri, nema
þú sért með þráðlausan búnað.
Ef þú neyðist til að svara símanum
þá skaltu afsaka þig og fara út úr
herberginu, ef mögulegt er. En vertu
endilega ströng/strangur á hvaða
símtöl flokkast undir neyðartilfelli.
Óvænt símtal frá leikskóla barnsins
þíns flokkast til dæmis undir neyðar-
tilfelli á meðan símtal frá ástvini
um hvað skal gera um kvöldið er
það ekki.
Stjórnsöm brúður
Þótt þú sért brúðurin eða brúðgum-
inn þá merkir það ekki að þú sért
nafli alheimsins. Þú átt ekki að
stjórna öllu í fari gesta þinna. Heyrst
hefur um brúður sem vildi stjórna
því hvað aðrir klæðast, hvaða gjafir
hún fengi og svo framvegis. Með því
er gengið allt of langt.
Samkynhneigðar veislur
I nútímasamfélagi er mikið af nýjum
veislum og samkomum, eitthvað
sem við erum kannski ekki vön.
Sýndu virðingu en vertu óhrædd/ur
við að mæta. Sem gestur í samkyn-
hneigðri veislu, skírn eða þess háttar
þá er um að gera að vera kurteis,
sýna virðingu og haga þér eðlilega.
Sérstaklega þar sem þetta er eðlileg-
asti hlutur í heimi, þótt þetta sé jafn-
vel nýlunda. Það sama á við þegar þú
sækir veislur fólks af öðru þjóðerni
eða annarri trú.
Allt þetta hold
Með lágum gallabuxum hefur
skapast glæný tegund af ósæmi-
legum klæðaburði. Þekkið takmörk
ykkar og takið smá tillit til hverjir
munu sjá allt þetta hold.
Pirringur í umferðinni
Þó að bíll smeygi sér fyrir framan
þig og þú verður nokkrum sek-
úndum seinni þá er óþarfi að æsa
sig upp úr öllu valdi. Það eru allir að
flýta sér jafn mikið og þú. Hleyptu
persónunni að og haltu áfram að lifa
þínu lífi.
svanhvit@bladid.net
HEILDARLAUSNIR
í DRIFSKÖFTUM
Landsins mesta úrual
af hjöruliðum og
drifskaftsvörum
Jafnvægisstillingar
FjALLABÍI
Stál og stansar ehf.
Vagnhöfða 7
1lO Reykjavík
Sími: 517 5000