blaðið - 14.01.2006, Page 47
blaöið LAUGARDAGUR 14. JANÚAR 2006
ÍPRÓTTIR | 47
Risapottur
um helgina
I dag laugardag er til mikils að
vinna fyrir þá sem eru getspakir
í getraununum. Fyrsti vinningur
verður um það bil 50-55 milljónir
og er þetta fyrsti Risapotturinn á
árinu. Sölukerfi Islenskra get-
rauna lokar klukkan 14.00 í dag.
Úrslit leikja í ensku bikarkeppn-
inni síðastliðinn laugardag voru
það fyrirsjáanleg að mestu leiti
að vinningar fyrir 10 leiki rétta
náðu ekki lágmarksuppútborgun.
Vinningsupphæð fyrir 10 rétt er 26
milljónir og færist því öll upphæðin
á 1. vinning f dag þar með er skýr-
ingin komin á þessum Risapotti
sem er í dag hjá íslensku getraunum.
Borgarsiagur
íManchester
Það verður svo sannarlega mikill
slagur í dag klukkan 12.45 þegar
Manchester-liðin City og United
mætast á City of Machester-leik-
vanginum. City-menn verða með
nýja leikmanninn sinn Albert Ri-
era í leikmannahópnum en Claudio
Reyna og Danny Mills verða ekki
með vegna meiðsla. Ben Thatcher
og David Sommeil eru í leikbanni
þannig að það er þó nokkuð um for-
föll hjá Stuart Pearce framkvæmda-
stjóra Manchester City.
Paul Scholes verður ekki með
United eftir höfuðhöggið sem hann
fékk f leiknum gegn Birmingham
28.desember síðastliðinn. Nýju
leikmennirnir, Nemanja Vidic og
Patrice Evra eru báðir í leikmanna-
hópnum og fastlega er reiknað með
að þeir fái tækifæri í leiknum, að
minnsta kosti annar þeirra. Ruud
van Nistelrooy verður í framlínunni
ásamt Wayne Rooney en þeir hafa
skorað 25 af 40 mörkum United í
deildinni. Louis Saha verður á vara-
mannabekknum. Leikinn dæmir
Mark nokkur Halsey eða Headlines
Halsey eins og hann hefur stundum
verið kallaður.
City hefur aðeins hlotið eitt stig
af sfðustu 12 mögulegum og hefur
ekki skorað mark f 272 mínútur f
úrvalsdeildinni.
Liðin hafa mæst 18 sinnum í úr-
valsdeildinni og þar hefur United
unnið 10 leiki, City 2 og 5 hefur
lokið með jafntefli.
Þegar liðin áttust við í fyrra á
heimavelli City vann United 0-2 og
þar skoraði Wayne Rooney fyrra
mark Manchester United.
Framtíð Souness hangir á bláþræði
Newcastle mætir Heiðari Helgu-
syni og félögum í Fulham í ensku
úrvalsdeildinni í dag. Breskir fjöl-
miðlungar hafa verið að velta sér
upp úr því hvort og þá hvenær Gre-
ame Souness verði rekinn úr stöðu
framkvæmdastjóra hjá Newcastle.
Margur er á því að ef Newcastle
tapi í dag þá verði Souness rekinn.
Það gæti þó kostað félagið skilding-
inn. Samkvæmt fréttum er talið að
félagið verði að borga Souness 540
milljónir íslenskra króna ef hann
verði rekinn. Félagið er talið skulda
um 90 milljónir sterlingspunda
sem er jafnvirði um 9.700 milljóna
fslenskra króna. Völlur félagsins,
St.James’s Park er metinn á um 10
milljarða íslenskra króna.
Newcastle er með næstbestu að-
sóknina á enska boltanum eða um
50.000 áhorfendur að meðaltali á
leik. Félagið þarf nauðsynlega að
komast f Evrópukeppnina á næstu
leiktíð en fátt bendir til að það
verði þar sem Newcastle er um
miðja ensku úrvalsdeildina.
Tvær fjölsyldur eiga 64 % í fé-
laginu, Douglas Hall-fjölskyldan
og Freddie Shepherd-fjölskyldan
og sögusagnir frá Bretlandi segja
að Newcastle United sé falt en
verðmiðinn yrði að vera nálægt
skuldum. Spurningin er aðeins
þessi. Hver á 10 milljarða til kaupa
á Newcastle? Enn einn rússneski ol-
íukongurinn? Hví ekki? Eitt er víst
að fáir aðrir hafa slíka fjármuni í
handraðanum.