blaðið - 14.01.2006, Page 54
541FÓLK
LAUGARDAGUR 14. JANÚAR 2006 blaöiö
borgarinn
SORGLEGUR
HÓPUR
Smáborgarinn er vanafastur maður
með eindæmum. Meðan hann bjó í
sveitinni hafði hann til að mynda aldrei
inn í aðra verslun komið en Kaupfélagið,
enda trúði hann því af staðfestu að þær
vörur sem ekki fengust í þeirri frábæru
búð þyrftu menn ekki á að halda.
Þegar smáborgarinn flutti síðan á
mölina fyrir um áratug lenti hann í tals-
verðum vanda. Hann ráfaði um meðal
ókunnugra vörurekka og vissi ekki hvar
Bragakaffi, frosin ýsa eða aðrar nauð-
synjar væri að finna. Hann tók því þá
ákvörðun að velja sér eina verslun og
halda sig við hana. Öll innkaup fara nú
fram í þeirri búð og smáborgarinn unir
sáttur við sitt. Hins vegar gerðist það á
dögunum að vegna vörutalningar var
þessi ágæta búð lokuð þegar smáborg-
arinn kom að henni eftir vinnu. Þarsem
ekki var að finna ætan bita heima við
voru nú góð ráð dýr. Smáborgarinn hélt
á rúntinn og fann að lokum verslun
sem honum leist ekki mjög illa á. Hann
hélt inn í búðina og fann fljótlega fyrir
sömu tilfinninugu og hann hafði upp-
lifað um áratug áður - tilfinningu van-
máttar og vanþekkingar þar sem hann
ráfaði um búðina í leit að einhverju til
að seðja sárasta hungrið um kvöldið.
Eftir nokkra stund var smáborgarinn
kominn með nokkra hluti í körfu og
stóð í biðröð við kassa. Þá tók hann
eftir langri biðröð við það sem leit út
fyrir að vera nokkurs konar mötuneyti.
Þar stóð hópur karlmanna í langri röð
og beið eftir því að tveggja metra hár
náungi f hvítum kokkaklæðnaði
skammtaði þeim mat í brúna plast-
bakka. Mennirnir í röðinni voru ákaf-
lega einsleitir. Flestir voru þeir mið-
aldra, þreytulegir og smáborgarinn var
nokkuð viss um að þeir kæmu þarna
við eftir langan vinnudag. Hann ákvað
líka að næsta skref þeirra væri að fara
heim í tóma íbúðina sína, „gúffa" í sig
matnum fyrir framan sjónvarpið þar
sem þeir annað hvort sofnuðu fljótlega
eða sætu og horfðu þar til þeir flyttu
sig inn í svefnherbergi og svæfu til
morgun. Þá tæki við annar dagur af
vinnu, mötuneyti og sjónvarpsglápi.
Um leið og smáborgarinn hélt heim á
leið við þar sem kötturinn beið, með
1944 rétt og Pepsi dollu í poka, gat
hann ekki annað en vorkennt þessum
mönnum og þakkað guði fyrir að þetta
væru ekki hans örlög.
HVAÐ FINNST ÞÉR?
Egill Helgason, þáttastjórnandi.
Hvað finnst þér um stöðu mála hjá DV?
„Mér líst að mörgu leyti ágætlega á ritstjórana nýju, en mér finnst þeir hins vegar skrítið par.
Annar frekar til vinstri og hinn mjög til hægri. Björgvin er í stjórn Blaðamannafélagsins á
meðan Páll Baldvin er svona menningarblaðamaður sem lítur svolítið stórt á sig. Af þessu
vali er engin leið að ráða hvert þeir ætla að fara með blaðið. Ég velti einnig fyrir mér hve
vel þessir menn munu láta að stjórn, því það verður að segjast eins og er að DV hefur verið
í einskonar varðhunds hlutverki fyrir eigendur sína. Svo finnst mér nú stjórnin og forstjóri
fyrirtækisins aðeins of dugleg við að fría sig ábyrgð á þessu blaði sem þeir hafa nú haldið
úti í tvö ár. Ég hefði viljað sjá þá taka á sig einhverja ábyrgð á því sem þarna hefur verið að
gerast síðastliðin ár.“
Páll Baldvin Baldvinsson og Björgvin Guðmundsson voru i gær ráðnir ritstjórar DV í kjölfar þess að fyrrum ritstjórar
sögðuafsér.
Paris í London
Skipuleggjandi Brit Awards-bresku tónlistarverðlaunanna
er að reyna að fá fyrirsætuna/raunveruleikasjónvarps-
stjörnuna/kaupsýslukonuna/leikkonuna/hönnuðinn og
poppstjörnuna Paris Hilton til að kynna verðlaunin þann
15. febrúar þegar afhendingin fer fram. Dagblaðið The Sun
segir frá: „Paris Hilton er sú ameríska stjarna sem er nógu
ögrandi til að koma sér oft í klandur, og því verður gaman
að sjá hvort á hana verður baulað af tónlistarmönnunum
í salnum, eða hvort þau hafa gaman að henni. Hvað sem
gerist mun þetta alla vega ekki verða leiðinlegt.“ Vonum
að Paris komist til London, því stúlkan er stuðbolti.
(
Kate kemur heim
Kate Beckinsale er að yfirgefa Hollywood til að koma aftur heim til London
og stofna heimili með manni og dóttur. „Ég er nýbúin að festa kaup á húsi
í Notting Hill,“ sagði hún í viðtali við tímaritið Tatler. „Það verður ljúft að
koma aftur og gera eitthvað skemmtilegt. Mér finnst eins og ég hafi verið
niðri í kanínuholu í langan tíma, þar sem ég var að einbeita mér að móð-
urhlutverkinu, og nú kíki ég loks upp úr henni.“ Beckinsale flutti til Los
Angeles fyrir fjórum árum, með kærastanum og barnsföður Michael Sheen.
Parið hætti saman og í maí 2004 giftist hún Len Wiseman, 28 ára, sem leik-
stýrði henni í myndunum Underworld og Underworld: Evolution.
Lindsay neitar átröskun
Það er smá misskilningur sem ríkir milli Lindsay Lohan og tíma-
ritsins Vanity Fair. Eftir nýlegt viðtal við Lindsay sagði tímarit-
ið að hin unga leikkona hefði fiktað við eiturlyf og hefði átt við
átraskanir að stríða undanfarin ár. En Lindsay hefur nú svarað
fyrir sig og segist ekkert hafa rætt um meinta átröskun við tíma-
ritið. í tilkynningu sem hún sendi frá sér sagði hún: „Það sem ég
sagði blaðamanninum hjá Vanity Fair var misnotað og mistúlk-
að og ég er eyðilögð yfir því hvernig þeir gerðu þetta. Blaðamað-
urinn laug og breytti svörunum mínum, og ég get bara þakkað
þann skilning sem ég hef mætt í vinnunni og hjá fjölskyldum og
vinum.“ Tengill Lindsay, Leslie Sloane Zelnick, segir að hin 19 ára
leikkona þjáist ekki, né hafi hún nokkru sinni þjáðst af átröskun.
En Vanity Fair heldur því hins vegar fram að hvert orð Lindsay
Lohan sé til á upptöku, og því standi blaðið við skrif sín.
heimila og fyrirtækja
*,i,klia,ablaðiÖH
eftir Jim Unger-
Þú ættir aldrei að reyna að gera við
rafmagnsrakvélina þína sjálfur.
3-28
by
United
Media, 2001
O Jim Unger/dist.
HEYRST HEFUR...
Jóhannes Jónsson í Bónus, Jói
sjálfur, lét fjarlægja auglýs-
ingaspjöld með forsíðu DV úr
Bónusbúðunum, en blaðið er
eftir sem áður selt þar á þeirri
forsendu að það hljóti að vera
neytenda að taka ákvörðun um
það hvort þeir
kaupi blaðið
eður ei. Gott og
ttWt vel. En nú hefur
' komið fram í
^ opinberri um-
. ■' ræðu að fólk
' ’ ! 'A‘ veigrar sér við
að hafa blaðið
uppi við þar sem börn eru á
heimili eða von er á sómakæru
fólki í heimsókn. Væri e.t.v. rétt
fyrir þá, sem á annað borð vilja
selja DV, að umgangast þann
varning eins og tóbak? Hafa
blaðið í luktum hirslum þar
sem enginn sér til, þar til ein-
hver spyr um það? Ennfremur
er hægt að velta því fyrir sér
hvort láta eigi hliðstæðuna
ganga ennþá lengra og banna
börnum undir 18 ára aldri að
kaupa DV.
Iumræðu undanfarinna daga
hefur mörgum orðið tíðrætt
um ábyrgð eigenda DV, en
þar eru vitaskuld Baugsmenn
fremstir í flokki. Starsýnna
hefur mönnum verið á umtals-
verðan hlut Landsbankans
í Dagsbrún, útgáfufélagi DV,
og spyrja hvað Björgólfarnir
eigi upp á
dekk með
kvartanir
sínar yfir
blaðinu
þegar 17,72% hluta í Dagsbrún
eru skráðir á Landsbankann.
Bankinn átti á sínum tíma um
fimmtung í Íslandssíma og þeg-
ar hann lét DV inn í 365 fékk
hann líka nokkurn hlut í félag-
inu. Þegar grannt er skoðað er
hins vegar aðeins um 1% Dags-
brúnar í eigu bankans og það
í veltubókinni, bréf sem ganga
kaupum og sölum dag frá
degi. Aðra hluti hefur bankinn
losað sig við fyrir all nokkru.
Afgangurinn, sem skráður er
á bankann, felst í framvirkum
samningum, en þar koma helst
við sögu málaliðar Baugsveldis-
ins á borð við Árna Hauksson,
Gunnar Smára Egilsson, Magn-
ús Ármann, Pálma Haraldsson
í Feng og Sigurð Bollason.
Fregnir af því að Björgólfs-
feðgar hafi í tvígang boðið
í DV til þess að leggja það niður
hafa ekki vakið minni athygli,
en óneitanlega þykir mörgum
sérkennilegt að Jón Ásgeir
Jóhannesson,
forstjóri
Baugs, hafi
vísað þeim
frá sér
u m r æ ð u -
laust. Hann
hefur hing-
að til ekki
slegið hend-
inni gegn
beinhörðum bankaseðlum og
honum hefði sjálfsagt ekki þótt
verra að eiga hönk upp í bakið á
Bjöggum. Ekki síður þykir það
þó merkilegt vegna vinskapar
Björgólfs Guðmundssonar og
Jóhannesar Jónssonar í Bónus,
en Jói mun hafa viljað taka til-
boðinu.
Pykir mörgum með ólík-
indum að Jón Ásgeir hafi
frekar viljað gera ágreining við
föður sinn en að láta hnífinn
komast milli sín og Gunnars
Smára Egilssonar, en sá síðar-
nefndi telur DV í núverandi
mynd öldungis ómissandi i fjöl-
miðlasafni Dagsbrúnar.