blaðið - 25.03.2006, Side 2

blaðið - 25.03.2006, Side 2
2 I IWWLEWDAR FRÉTTIR LAUGARDAGUR 25. MARS 2006 bla6iö blaöió™ Bæjarlind 14-16,201 Kópavogur Sími: 510 3700 • www.vbl.is FRÉTTASÍMI: 510 3799 netfang: frettir@ bladid.net AUGLÝSINGADEILD: 510 3744 netfang: auglysingar@bladid.net r/Mistök sem verða leiðrétf' Tölvuleikur sem bannaður er innan 18 ára aldursfylgirfermingartil- boðstölvufrá BT. Framkvœmdstóri fyrirtœkisins harmar mistökin. f auglýsingu sem verslunin BT sendi frá sér gær er auglýst PC tölva á fermingartilboði. Með tölvunni fylgir ókeypis glænýr leikur sem ber nafnið Guðfaðirinn. Slíkt væri vart í frásögur færandi ef leikurinn væri ekki kyrfilega merktur að ekki þyki rétt að hann sé spilaður af einstak- lingum undir i8 ára aldri, en börn fermast eins og kunnugt er vel flest á 14 aldursári. Framkvæmdastjóri BT segir að um sé að ræða mistök sem verða leiðrétt. Verkfræðinemar brúa bilið Verkfræðinemar efndu til keppni í brúarsmfði í gær. Hér koma þeir félagar Bjarni Ólafur Stefánsson bg félagi hans Haraldur Hrann- ar Haraldsson brúnni sinni, sem þeir kalla „Cambridge" fyrir í prófunarstæðinu. X-F í Kópavogi? Frjálslyndi flokkurinn heldur í dag málþing á Hallveigarstöðum við Túngötu. Umfjöllunarefni þingsins verða annars vegar málefni aldraðra, fatlaðra og skattkerfið og hins vegar sveitarstjórnarmál og kosningar. Samkvæmt heimildum Blaðsins er verið að skoða framboðsmál flokksins víða, til að mynda í næst stærsta bæjarfélagi landsins, Kópa- vogi. Framkvæmdastjóri flokksins, Margrét Sverrisdóttir sagði í sam- tali við Blaðið að ekkert væri komið á hreint í þeim efnum. „Við erum búin að vera að skoða hvernig landið liggur í Kópavogi og reyndar víðar, en það er allt óvíst á þessari stundu." Margrét sagði allt koma til greina í þessum efnum. „Við förum hins vegar ekki af stað nema okkur finn- ist jarðvegurinn vera frjór, ef svo má segja. Það er oft betur heima setið en af stað farið í þessum málum.“ Margrét sagði að á málþinginu í dag yrðu þessi mál vafalaust rædd og hún sagði ýmislegt vera í deiglunni í framboðsmálum víða á landinu, án þess að hægt væri að ræða þau mál nánar eins og staðan væri í dag. Tölvukerfi breytt vegna samkyn- hneigðra Ríkisstjórnin samþykkti í gær að verja einni og hálfri milljón af sam- eiginlegu ráðstöfunarfé til að fjár- magna breytingar á forritum Hag- stofunnar. Steingrímur Ólafsson, upplýsingafulltrúi forsætisráðherra sagði breytingarnar nauðsynlegar til þess að mögulegt sé að skrá sam- kynhneigða í sambúð. „Það þarf að gera breytingar á grunnforritum Hagstofunnar til þess að hægt verði að skrá samkynhneigða í sambúð í þjóðskránni þegar málið gengur í gegn á Alþingi,“ sagði Steingrímur. Fá annan leik í staðinn „Við erum ákafir talsmenn þess að farið sé eftir þeim reglum sem settar eru um aldurstakmörk á tölvuleikjum. Við reynum að benda kaupendum leikja sem eru háðir aldurstakmörkunum á merkingar, og veggspjöld með gildandi reglum hanga uppi í búðum okkar,“ segir Bjarni Kristinsson, framkvæmda- stjóri BT. „Ég var sjálfur ekki búinn að átta mig á þessum mistökum, en ég geri ráð fyrir að þetta sé einfaldlega ákaflega vinsæll leikur og það hafi gleymst að skoða aldurstakmark- anir áður en auglýsingin var birt.“ Bjarni segir ennfremur að leikur- inn myndi ekki fylgja fermingartil- Auglýst var að leikur sem bannaður er innan 18 ára fylgdi þessu fermingartilboöi BT. boðum, en þeir myndu nýta umrætt tilboð með öðrum leik í staðinn. Fátt um svör Blaðið hafði samband við fjölmargar stofnanir sem hafa með velferð barna að gera í gær vegna málsins. Umboðsmaður barna, Ingibjörg Rafnar, sagði að henni þætti þetta óheppilegt. „Verslunin ætti að þekkja þetta betur en flestir þar sem reglur um aldurstakmarkanir eru settar í sam- vinnu við framleiðslu- og dreifingar- aðila.“ Ingibjörg sagði hinsvegar að eftirlit með slíku, eða möguleikar til að taka á svona málum væri ekki í höndum hennar embættis. Hjá Barnaverndarstofu feng- ust svipuð svör, sem og hjá Neytendastofu. Hlutabréf KB banka falla um 7,5% Hlutabréf lækkuðu mikið í verði í Kauphöll íslands í gær og féll úrvalsvísitalan um rúm 4,4%. Mest lækkuðu bréf KB-banka eða um 7,5% í viðskiptum upp á tæpa þrjá milljarða króna. Bréf í FL Group lækkuðu líka verulega, eða um 6,7% og Landsbankinn lækkaði um 5%. Aðeins eitt fyrir- tæki jók verðmæti sitt í kauphöll- inni í gær, en það var Dagsbrún sem hækkaði um 0,14%. Krónan tók líka dýfu í gær, en hún veiktist um 2,25% sam- kvæmt tölum frá KB-banka. End- aði gengisvísitalan í 123 stigum í lok dags eftir að hafa staðið í 120,25 stig um morguninn. Varnarviðræð- ur í næstu viku Viðræður Islendinga og Banda- ríkjamanna um varnarsam- starfið fara fram á íslandi næstkomandi föstudag. Utan- ríkisráðuneytið skýrði frá þessu ígær. Tap hjá Avion mbl.is | Tap Avion Group nam 9,94 milljónum dala á fyrsta árs- fjórðungi sámanborið við 21,68 milljón dala tap á sama tímabiii árið 2005. Námu heildartekjur fé- lagsins fyrstu þrjá mánuði ársins 321,49 milljónum dala. Handbært fé til rekstrar fyrir skatta og vexti nam 76,58 milljónum dala á fjórð- ungnum samanborið við 10,11 milljónir dala á fyrstu þremur mánuðum 2005. Rekstur Avion Group á fyrsta ársfjórðungi var í takt við væntingar stjórnenda, samkvæmt fréttatilkynningu. Blaöiö/Frikki Bílvelta við Smáralind Bíll valt við Smáralind seinni- partinn í gær. Engin teljandi slys urðu á fólki en eftir slysið þurfti slökkviliðið að hreinsa upp olíu sem lak frá bílnum. Gæða sængur 02 heilsukoddar. Opið virka daga: 10-18, lau: 11-15 Reykjavík: Mörkin 4, s: 533 3500 0HelSsklrt 0Lé«sKýia6 ^Skýjað 0 Alskýiað Rigning, litllsháttar í'// Rignlng ? 5 Súld * Snjókoma Amsterdam Barcelona Berlfn Chicago Frankfurt Hamborg Helsinki Kaupmannahöfn London Madrld Mallorka Montreal New York Orlando Osló París Stokkhólmur Þórshöfn Vín Algarve Dublin Glasgow 09 18 04 -01 10 04 -02 02 12 16 18 0 04 09 02 09 0 04 08 17 05 05 it -3% '■¥ f -2° * -r ** * -3” 3 0° ◄m*) Veðurhorfur i dag kl: 15.00 Veðursíminn 902 0600 Byggt 6 upplýslngum frð Veöurstofu islands •jj Slydda Sni6él '• *, -3° * -3£ 0 % -6° Á morgun -4° * _6°* -3« ®-9“ -1°

x

blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.