blaðið - 25.03.2006, Qupperneq 4
4 I INNLENDAR FRÉTTIR
LAUGARDAGUR 25. MARS 2006 blafiið
Þór Sigfússon forstjóri Sjóvá og Jóna
Hildur Bjarnadóttir framkvæmda-
stjóri Sjóvá Kvennahlaups (S( viö
undirritun samnings.
Sjóvá styrkir
Kvennahlaupið
Kvennahlaup ÍSl mun fara fram í
sautjánda sinn í sumar, nánar til-
tekið þann to. júní næstkomandi.
í tengslum við það hafa Sjóvá og
ÍSÍ gert með sér samstarfssamn-
ing til þriggja ára um að Sjóvá
verði bakhjarl hlaupsins. Fyr-
irtækið hefur verið aðalstyrkt-
araðili hlaupsins síðastliðin 14
ár og samkvæmt sameiginlegri
tilkynningu frá ÍSÍ og Sjóvá er
þetta „sá íþróttaviðburður sem
Sjóvá hefur styrkt hvað lengst“.
1 tilkynningunni segir enn-
fremur að markmið Kvenna-
hlaupsins frá upphafi hafi verið
að hvetja og styðja konur á öllum
aldri til aukinnar hreyfingar
og heilsueflingar, ekki aðeins
þennan eina dag heldur sem
flesta daga ársins. Fjölmennasta
hlaupið á ári hverju er haldið í
Garðabæ en þar hafa á bilinu 6
til 8.000 konur tekið þátt.
„Nefndinni gerðar upp skoðanir'
Jónína Bjartmarz segir tœkifœri til skynsamlegrar umrœðu um heilbrigðiskerfið ekki nýtt.
Jónína Bjartmarz, þingkona Fram-
sóknarflokks, hvetur til þess að
menn komi fram með hugmyndir
um hvernig mæta eigi aukinni fjár-
þörf heilbrigðiskerfisins. Hún segist
ekki líta á það sem svo að umræðan
á Alþingi sem fram fór á miðviku-
daginn hafi verið um efni eða þær
tillögur sem fram komu í skýrslu Jón-
ínunefndarinnar sem kölluð hefur
verið svo, heldur hafi urmræðan
snúist um hvort hinir ríku eigi að fá
að kaupa sér forgang að heilbrigðis-
þjónustu. Hún segir að í umræðunni
hafi efni skýrslunnar og tillögur
nefndarinnar verið rangfærðar og
nefndarmönnum gerðar upp bæði
tillögur sem skýrslan geymi ekki og
skoðanir.
Búum við tvöfalt kerfi
Siv Friðleifsdóttir, heilbrigðisráð-
herra, sagði á Alþingi að allir flokkar
væru sammála um að ekld ætti að
taka upp tvöfalt kerfi í heilbrigðis-
þjónustu. Jónína bendir á í samtali
við Blaðið að Framsóknarmenn hafi
alltafhafnað tvöföldu heilbrigðiskerfi
en hins vegar búum við við tvöfalt
kerfi. „Við erum með ákveðin lækn-
isverk sem Tryggingastofnun tekur
ekki þátt í að greiða s.s. ákveðnar
augnaðgerðir, fegrunaraðgerðir og
tannlækningar 16-67 ára einstak-
linga og þjónustu sálfræðinga. Við
vitum líka að við getum nýtt mun
betur dýra aðstöðu, tæki og þekk-
ingu heilbrigðisstarfsmanna, bæði
innan og utan heilbrigðisþjónustu
sem framlög á fjárlögum og samn-
ingar við sjálstætt starfandi heilbrigð-
isstarfsmenn setja skorður.
www.expressferdir.is
GUNS 'N' ROSES
{STOKKHÓLMI
26.-28. JUNI
Þá er loksins komið að því.
Guns 'n' Roses eru mættir
aftur, betri en nokkru sinni fyrr.
Guns 'n' Roses mæta I
Globen-höllina í Stokkhólmi
26. júní næstkomandi og við
ætlum að vera á staðnum.
Hvað um þig?
TÓNLEIKAR í STOKKHÓLMI
39.900 kr.
INNIFALIÐ: Flug og flugvailaskattar, 2
nætur á hóteli með morgunverði
og miði á tónleika Guns 'n' Roses.
Miðað er við að tveir séu saman I
herbergi.
» Nánar á www.expressferdir.is
Expross Ferðir, Grímsbæ,
Efstalandi 26, sími 5 900 100
Express Ferðir
Ferðaskrrfstofa i eigu lceland Exprei
Óvissuferðir
Þrautaferðir
Tröllaferðir
Álfaferðir
Draugaferðir
Hafðu samband og athugaðu hvað
við getum gert fyrir þig!
Ciuómundur Tyrfmgjion dif
gt@gtyrfingsson.is Sími 568 1410
www.gtyrfingsson.is
Jónína vill því að þeirri spurn-
ingu sé velt upp hvernig megi auka
hagkvæmni í heilbrigðisþjónustinni
og hvernig eigi að mæta vaxandi
fjárþörf hennar. Við hvetjum til um-
ræðu um það hvort eigi að gera þeim
sem geta og vilja greiða meira eða
fullt verð fyrir heilbrigðisþjónustu
að gera það - ef það finnast leiðir
til þess án þess að það leiði til
lakari þjónustu fyrir aðra.og
efnaminna. „Við hvetjum
til málefnalegrar og gagn-
rýninnar umræðu um
þetta í samfélaginu,
við leggjum þetta
ekki til,“segirjónína
og bætir við að þetta
atriði hafi verið
rangfært í umræð-
unni síðustu daga.
að við takmörkum greiðsluþátttöku
Tryggingastofnunar annað hvort
með því að rfkið greiði minna í ákveð-
inni þjónustu eða ekkert." Margir
þeir sömu og tali um forgangsröðun
semlausn
MJÓLKURVÖRUR
I SÉRFLOKKI
w
vOrur m m
FLOKKI
Er mataræðið
óreglulegt?
LGG+ erfyrirbyggjandi vörnl
Forgangsröðun
Jónína bendir á að
sumir tali fyrir hag-
ræðingu í heilbrigð-
iskerfinu og leggi alla
áherslu á að ekki verði
gengið lengra með fram-
lögum á fjárlögum en nú
er gert. Aðrir segist vilja leysa
aukna fjárþörf með forgangs-
röðun. „Ef forgangsröðun á að leiða
til þess að setja útgjöldum skorður þá
gerir hún það ekki nema annars vegar
á þann veg, að einhver sem bíður eftir
þjónustu fær hana aldrei, því annars
sparast ekki neitt, og hins vegar með
því að forgangsröðun sé beitt þannig
Skyndibitafæði, sætindi, óreglulegar
máltiðir - allt þetta dregur úr innri
styrk, veldur þróttleysi, kemur
meltingunni úr lagi og stuðlar að
vanliðan. Regluleg neysta LGG+
vinnur gegn þessum áhrifum
og flýtir fyrir þvi að jafnvægi
náist á ný. Dagleg
neysla þess tryggir
fulla virkni.
kalli í
annan tíma eftir aukinni greiðsluþátt-
töku ríkisins og aukinni og betri þjón-
ustu á öðrum sviðum. „Umræðan er
þvf gjarnan út og suður án þess að
henni sé lent í einhverri sátt.
Ég heyrði ekki í þessari umræðu
viðurkenningu á ört vaxandi fjárþörf
heilbrigðiskerfisins," segir Jónína,
„en það treystir sér heldur enginn til
þess að afneita henni. Það benti eng-
inn á raunhæfar leiðir til að mæta
henni. Það er í stefnuskrám allra
flokka að það eigi ekki að
mismuna fólki eftir efna-
hag og nefndin var alls
ekki að leggja það til.
Að því leyti hefur
umræðan verið
rangfærð."
„Við leggjum
ekki af stað
5 með þetta mál
sem tillögu
I j um forgang
< ; hinna ríku.
. ■ I j Við leggjum af
staðmeðþetta
semhvatningu
til umræðu um
hvernig eigi að
mæta aukinni
fjárþörf í kerfinu.
Það benti enginn
á neinar leiðir í því í
þessari umræðu," segir
Jónfna og bætir við að það
sé nauðsynlegt að menn tali
sig niður á einhverja sátt í þessum
efnum. „Það koma oft á ári upp til-
efni til að taka ábyrga og skynsama
umræðu um þessi mál, en þeim tæki-
færum hefur því miður verið ýtt út af
borðinu."
perur
Listahátíð Seltjarnarnes-
kirkju hefst á sunnudag
Listahátið Seltjarnarneskirkju
verður sett í kirkjunni á sunnudag
kl. 15 en þema hennar verður „Kær-
leikurinn fellur aldrei úr gildi“. Við
setninguna mun Ragnheiður Stein-
dórsdóttir leikkona lesa „Óð Páls
postula til kærleikans" úr 1. Kor-
intubréfi. Þá verður opnuð mynd-
listarsýning Kjartans Guðjónssonar
listmálara og kl. 16.00 hefjast söng-
tónleikar Vieru Manasek, en Jónas
Sen leikur með á pfanó. Þeir Gunnar
Hrafnsson og Björn Thoroddsen
munu leika á bassa og gítar í safn-
aðarheimili kirkjunnar frá kl. 14.45
á opnunardaginn. Veitingar verða
að setningu lokinni. Allir eru vel-
komnir á hátíðina og er aðgangur
ókeypis.
Listviðburðir hátíðarinnar munu
fara fram allt til 7. maí. Málverka-
sýningin stendur yfir allan tímann
og verður opin frá kl. 10-17 alla daga
nema föstudaga.
Þetta er í níunda sinn sem efnt er
til listahátíðar f Seltjarnarneskirkju,
en sú fyrsta var haldin árið 1992 og
síðan annað hvert ár.
Pylsubarínn LaugardáT'
Myndlist og tónlist
Kjartan Guðjónsson er einn af
þekktustu myndlistarmönnum
þjóðarinnar. Hann bjó um árabil á
Seltjarnarnesi og er því mörgum Sel-
tirningum að góðu kunnur. Margar
mynda hans eru undir áhrifum frá
ljóðum Jóns úr Vör, einkum ljóða-
bók hans Þorpinu, og er ekki laust
við að greina megi áhrif frá Seltjarn-
arnesi í sumum þeirra. En þarna eru
einnig trúarlegar myndir og mynd
sem ber heiti hátíðarinnar.
Á söngdagskrá Vieru Manasek
verða m.a. aríur eftir Mozart, Deli-
bes, Offenbach og Rimsky-Korsakov,
svo og þrjú ljóð eftir Rachmaninoff.
Meðal annarra viðburða á hátíð-
inni má nefna ritgerðarsamkeppni
nemenda í Valhúsaskóla, afhjúpun
glerlistarverks eftir Ingunni Bene-
diktsdóttur við guðsþjónustu á
páskadagsmorgun, en það er Kven-
félagið Seltjörn sem gefur kirkjunni
verkið. Þá má nefna kvikmynda-
sýningar kvikmyndaklúbbsins
Deus ex cinema, þar sem kynnt
verður hvernig óður Páls postula
til kærleikans kemur fyrir í ýmsum
kvikmyndum, biblíuljóðasöng
Margrétar Bóasdóttur söngkonu og
eiginmanns hennar, sr. Kristjáns
Vals Ingólfssonar, en lokaatriði há-
tíðarinnar verða tónleikar Sinfón-
íuhljómsveitar áhugamanna undir
stjórn Pavels Manasek og einsöngur
Vieru Manasek sópran sem fram
mun fara sunnudaginn 7. maí.
Formaður listahátfðarnefndar
er dr. Gunnlaugur A. Jónsson pró-
fessor en formaður Listvinafélags-
ins er Ólafur Egilsson sendiherra.
Auk þeirra hafa unnið að undirbún-
ingi Listahátíðarinnar þau Þórleifur
Jónsson lánastjóri Glitnis, Hekla
Pálsdóttir bókavörður, Pavel Mana-
sek organisti, Katrfn Pétursdóttir
forstjóri Lýsis og prestar kirkjunnar
þau sr. Sigurður Gréfar Helgason og
sr. Arna Grétarsdóttir ásamt Svövu
Guðmundsdóttur kirkjuverði.